Mál Málanna

Mál Málanna

By Mál MálannaHistory
Download on the App Store

Mál Málanna episodes

  • Fisher v. University of Texas - Jákvæðar aðgerð fyrir minnihlutahópa

    Þáttur vikunnar fjallar um Abigail Fisher og hennar lögsókn á höndum Háskólans í Texas, því hún komst ekki inn, að hennar mati því hún var hvít? Vegna affermative action, eða jákvæð aðgerð fyrir minnihlutahópa taldi Fisher að hennar höfnun í skólann væri byggð á hennar kynþætti. 

    Við tölum einnig um eldri mál eins og Bakke v. University of California og Grutter v. Bollinger sem lögðu grunninn að þessu máli. 

    Þar til í næstu viku!

    34 min
  • Buck v. Bell - Löglegar leyni ófrjósemisaðgerðir

    Í þætti vikunnar förum við yfir gamalt mál frá árinu 1927 þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að læknar Carrie Buck mættu framkvæma ófrjósemisaðgerð á henni, en hún var talin óhæf til að fjölga sér. Eftir það voru svo gerðar 60.000-70.000 fleiri ófrjósemisaðgerðir á fólki sem vildi það ekki. 

    Survival of the fittest?


    Minnum á Instagram! @malmalanna

    35 min
  • Castle Rock v. Gonzales - Nálgunarbann + Heimilisofbeldi

    Mánudagur og gleðilegan nóvember! Þáttur vikunnar er erfiður og við vörum við efninu!

    Jessica Gonzales fékk nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann sinn vegna heimilisofbeldis sem hún þurfti að þola, en málið fór á allt aðra vegu en hún hefði getað ímyndað sér. Við ræðum einnig um Francine Hughes og Thomia Hunter.

    Njótið vel og við minnum á Instagrammið okkar, @malmalanna

    33 min
  • Adoptive Couple v. Baby Girl - Saga Veronicu

    Mánudagur! Nú ætlum við að gefa þætti frekar út á mánudögum, en það hentar okkur betur.

    Þáttur vikunnar er um Baby Veronicu og hvernig hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í hennar máli hver skyldi vera með forsjá yfir henni. Spennó!

    Minnum á okkur á Instagram @malmalanna og segið vinum ykkar frá okkur! 

    35 min
  • Mapp v. Ohio - Leitarheimild

    Jæja, eftir djúpar samræður í síðustu viku erum við systur komnar aftur í góðan gír og ræðum leitarheimild, persónufriðhelgi og öryggi almennings!

    Ekki gleyma fylgja okkur á Instagram @malmalanna!

    29 min
  • Líknardráp í Hollandi

    Jæja, loksins ekki í Bandaríkjunum!

    Þáttur vikunnar er ekki fyrir viðkvæma, enda viðkvæmt efni sem við systur tökum fyrir (reynum að gera það skemmtilegt samt lofa!). 

    33 min

About Mál Málanna

From the publisher's feed

Mál og dómar sem skipta máli í sögulegu ljósi. Skemmtilegir fræðsluþættir