
Sign up to save your podcasts
Or


Þessi saga fjallar um þrjá vini, Tínu, Silku og Döggva. Þegar Tína og Silka halda að himininn sé að gráta vegna mikillar rigningar, útskýrir Döggvi fyrir þeim hvernig vatnshringrásin virkar og hvers vegna það rignir.
Þessi saga fjallar um lítinn íkorna Hnoðra, sem þráði ekkert heitar en að fá svefnfrið, en hlutirnir fóru ekki alveg eins og hann hafði vonast til.
Þessi saga fjallar um Tínu sem nennir ekki að bursta tennurnar áður en hún fer að sofa. Um nóttina vakna felupúkar í munninum hennar, en daginn eftir hjálpar ofur tannburstinn henni að losna við þá. Sagan kennir börnum mikilvægi þess að bursta tennurnar á hverjum degi.
Þessi saga fjallar um Döggva sem á stundum erfitt með að sofna á kvöldin. Til að slaka á leyfir hann ímyndunaraflinu að fara með sig í falleg ævintýri.
Þessi saga fjallar um Bjössa sem lenti í dálitlu óvæntu þegar hann tók með sér gos í skólann.
Sagan fjallar um litla stjörnu sem þráði að fá að skoða allt það dásamlega sem jörðin hafði upp á að bjóða.
Þessi saga fjallar um litla trúðfiska sem lenda í hættu þegar hákarl reynir að plata þá, en með hugrekki og útsjónarsemi tekst þeim að bjarga sér
Þessi saga fjallar um systkinin Laufdísi og Döggva sem eiga fullt af böngsum í herberginu sínu. Laufdís trúir því að bangsarnir vakni á nóttunni, en Döggvi trúir því ekki alveg. Eitt kvöld ákveður Laufdís að vaka og sjá hvað gerist.
Honum Benna finnst ekkert betra heldur en að borða sælgæti.
Einn laugardag eftir fimleika æfingu, fær hann leyfi til að kaupa nammi fyrir sig og systkini sín til þess að eiga yfir bíómynd um kvöldið en hann gerir svolítið sem hann á ekki að gera.
Þessi saga fjallar um systurnar Túlu og Tínu sem læra mikilvægi þess að fara snemma að sofa.
From the publisher's feed