
Sign up to save your podcasts
Or


Þessi saga fjallar um prinsessuna Lilju sem þekkir ekkert annað en lífið innan kastalaveggjanna. Einn daginn vaknar hún og finnur hjá sér löngun til að upplifa líf venjulegs fólks. Hún leggur því af stað í ferð og kynnist fjölskyldu sem sýnir henni allt annað líf en hún þekkir.
Þessi saga fjallar um hana Túlu sem elskar að dreyma. Í hvert sinn sem hún lokar augunum bíða eftir henni ný og skemmtileg ævintýri.
Þessi saga fjallar um Döggva sem á stundum erfitt með að sofna á kvöldin. Til að slaka á leyfir hann ímyndunaraflinu að fara með sig í falleg ævintýri.
Þessi saga fjallar um lítinn íkorna Hnoðra, sem þráði ekkert heitar en að fá svefnfrið, en hlutirnir fóru ekki alveg eins og hann hafði vonast til.
Sagan fjallar um stúlkuna Ævisól sem býr á sveitabænum Glóhóli. Einn daginn heyrir hún dularfulla tónlist úr fjósinu og fer að skoða hvað sé á seyði. Þegar hún sér hvaðan tónlistin barst og hver hafði kveikt á henni varð hún heldur betur hissa.
Þessi saga fjallar um litla stjörnu sem þráði að fá að skoða allt það dásamlega sem jörðin hafði upp á að bjóða.
Þessi saga fjallar um Tínu sem nennir ekki að bursta tennurnar áður en hún fer að sofa. Um nóttina vakna felupúkar í munninum hennar, en daginn eftir hjálpar ofur tannburstinn henni að losna við þá.
Sagan kennir börnum mikilvægi þess að bursta tennurnar á hverjum degi.
Þessi saga fjallar um músina Mæju sem dreymir um að geta flogið eins og fuglarnir. Einn daginn fær hún hjálp frá óvæntum vini til að láta draum sinn rætast.
Tvíburabræðurnir og bestu vinirnir, þeir Daniel og Gummi lenda í töfrandi ævintýri á leiðinni heim úr skólanum þegar þeir finna töfrastein sem glóir.
Þessi saga fjallar um Bjössa sem lenti í dálitlu óvæntu þegar hann tók með sér gos í skólann.
From the publisher's feed