Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sögusviðið er árið 1918. Bjarminn af eldgosinu í Kötlu er sýnilegur frá Reykjavík, styrjöld geisar úti í hinum stóra heimi, það er kolaskortur, landsmenn búa sig undir að þjóðin verði fullvalda og spæ... more
FAQs about Mánasteinn - drengurinn sem var ekki til:How many episodes does Mánasteinn - drengurinn sem var ekki til have?The podcast currently has 43 episodes available.
January 20, 202018. Vitaverðirnir á Flannan eyjumFlannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900. Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?...more0minPlay
January 16, 202013. þáttur - Númi Snær KatrínarsonÍ þessum þætti ræðir Jafet Máni við Núma Snæ Katrínarson sem er fæddur árið 1980. Hann Stofnaði líkamsræktarstöðina Grandi101 ásamt fjölskyldu sinni árið 2017. Einnig var hann einn af eigendum Crossfit Nordic sem staðsett er í Svíþjóð. Í þáttunum Fram á við talar Jafet Máni við fólk sem hefur náð langt í sínum geira eða skarað fram úr í íslensku viðskiptalífi svo eftir því sé tekið....more0minPlay
January 13, 202017. Týnda borgin í AmazonÁrið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu. Þessarar borgar er einungis getið í einu gulnuðu handriti frá átjándu öld, en Fawcett var handviss um að hana væri að finna einhverstaðar djúpt inni í regnskógarþykkninu - og varð heltekinn af þeirri tilhugsun um að sjá borgina með eigin augum....more0minPlay
January 06, 202016. Líkið í álminumVorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins. Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar....more0minPlay
January 02, 202012. þáttur - Hrefna Rósa SætranÍ þessum þætti ræðir Jafet Máni við Hrefnu rósu Sætran. Hún er meðeigandi eigandi í Fisk- og grillmarkaðnum, Skúla craft bar, bao bun og Bríet íbúðargistingu. Í þáttunum Fram á við talar Jafet Máni við fólk sem hefur náð langt í sínum geira eða skarað fram úr í íslensku viðskiptalífi svo eftir því sé tekið....more0minPlay
December 30, 201915. Dauðsfallið á SuðurskautslandinuÞað er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar. Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið. Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni....more0minPlay
December 23, 201914. Aleppó handritiðEitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem. Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna....more0minPlay
December 19, 201911. þáttur - Geoffrey SkywalkerÍ þessum þætti ræðir Jafet Máni við Geoffrey Skywalker sem er fæddur árið 1988. Hann er einn af eigendum Priksins. Samhliða því er hann að vinna með Guðfinni Sölva eða Finna á Prikinu í hinum ýmsum verkefnum og fyrirtækjum. Í þáttunum Fram á við talar Jafet Máni við fólk sem hefur náð langt í sínum geira eða skarað fram úr í íslensku viðskiptalífi svo eftir því sé tekið....more0minPlay
December 16, 201913. Eitraða konanKvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á að einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar....more0minPlay
December 09, 201912. Morðið við refaturninnÁ köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flestir Pekingbúar frekar með hugann við yfirvofandi innrás Japana en dularfullan dauðdaga ungrar stúlku. En faðir hennar, fyrrverandi konsúll á áttræðisaldri, gafst ekki svo auðveldlega upp....more0minPlay
FAQs about Mánasteinn - drengurinn sem var ekki til:How many episodes does Mánasteinn - drengurinn sem var ekki til have?The podcast currently has 43 episodes available.