
Sign up to save your podcasts
Or


Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.
Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.Inga Dóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland.
Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli.
Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sitt sem er ævintýralega spennandi og segir að það sé hægt að fyrirgefa fólki allt ef það sé fyndið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhúsið, hvað hafi nýst henni best á framabrautinni og hvað henni líði hræðilega illa í ljótum fötum.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá einstæðri móður, tölum um sorgina sem hefur bankað upp á og stóru ástina sem hann fann snemma á lífsleiðinni.
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
From the publisher's feed