Marta María býður heim

Marta María býður heim

By Marta María WinkelSociety & CultureRelationships
Download on the App Store

Marta María býður heim episodes

  • 13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar
    Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hún flutt til London. Margrét á mörg líf að baki. Hún sló eftirminnilega í gegn sem Mæja í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en í þættinum segir hún frá því hvernig það æxlaðist allt saman. Á dögunum útskrifaðist Margrét Hugrún með BA próf í mannfræði þar sem hún skrifaði lokaritgerð um stafræna mannfræði en í þættinum útskýrir hún meðal annars hvers vegna við ættum alls ekki að vera á félagsmiðlum eins og Facebook. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
    1 hr 31 min
  • 12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera

    Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist á við veikindin með æðruleysi.

    Hún er stemningsmanneskja sem er alltaf tilbúin til að taka aukaskref svo lífið verði örlítið skemmtilegra.

    Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.

    1 hr 44 min
  • 11. Gylfi Þór Þorsteinsson: Veröldin hrundi þegar mamma var myrt

    Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og hvernig hann náði seinna á lífsleiðinni að koma hlutunum á réttan stað. Hann ræðir líka hvernig veröldin hrundi á nýjan leik þegar hann missti vinnuna og gekk í gegnum skilnað.

    Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshruni 5.

    1 hr 32 min
  • 10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum

    María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn og segist þakklát fyrir ástina og það að vera umvafin góðum vinkonum. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.

    1 hr 40 min
  • 9. Einar Þorsteinsson: Skíðin voru ekki ástæða skilnaðarins
    Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar segir að lífið geti verið flókið og því skipti máli að fara reglulega til hjónabandsráðgjafa. Í þættinum ræðum við skíðaiðkun Einars og hvernig það kom til að skíðin hans enduðu heima hjá þáttastjórnanda. Hann segir að skíðin hafi ekki verið ástæða skilnaðarins. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
    1 hr 11 min
  • 8. Brynjar Níelsson: Góð kona og guð það eina sem getur hjálpað fólki í vandræðum.

    Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en hann fór inn á þing og segir að reynslan hafi kennt honum að það sé bara tvennt sem geti bjargað fólki út úr alvarlegum vandræðum. Það er að eiga góðan maka eða finna guð. Hann var orðinn fullorðinn þegar hann komast að því að faðir hans hefði eignast tvö börn utan hjónabands. Hann upplifði aldrei að foreldrar hans væri hamingjusamir. Það er kannski þess vegna sem fjölskyldan skiptir hann öllu máli í lífinu.

    Þátturinn er í boði:

    Icelandair

    Blue Lagoon Skin Science

    SkincareLab í Smáralind

    Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5

    1 hr 13 min
  • 7. Þorvaldur Davíð sættist við pabba sinn áður en hann féll frá.

    Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari seldi steina með ömmu sinni niður í bæ þegar önnur börn voru í leikskóla. Hann var barnastjarna en var alltaf að reyna að ýta leiklistinn í burtu. Í þættinum ræðir hann um uppvöxtinn, æskuna og það að eiga föður sem glímdi við alkóhólisma. Hann náði að sættast við pabba sinn áður en hann féll frá.

    Marta María býður heim er í boði:

    Icelandair

    Blue Lagoon Skin Science

    SkincareLab í Smáralind.

    1 hr 27 min
  • 6. Ellý Ármanns fann bróður sinn nýlega

    Faðir Ellýjar reyndi að senda skipsfélaga sinn í DNA-próf því hann vildi ekki gangast við henni. Móðir hennar gafst ekki upp og réð lögmann til að fá úr faðerni Ellýjar skorið. Fyrir stuttu fann Ellý bróður sinn sem nánast jafngamall henni sjálfri. Við ræðum ástina, gjaldþrotið og hamingjublöðruna. En líka andlegar tengingar og hvað gerist þegar fólk fylgir hjartanu.

    Marta María býður heim er í boði:

    Icelandair

    Blue Lagoon Skin Science

    Skincarelab í Smáralind

    1 hr 22 min
  • 5. Helga Hlín er alltaf með olnbogana úti
    Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og eigandi Strategíu lætur engan segja sér hvernig hún að haga sér. Í þættinum segir hún frá því þegar hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri með barn á handleggnum og tíkarspena í hárinu til þess að hefja lögfræðinám. Svo rann upp sá dagur að hún mætti á þykkbotna Buffalo-skóm inn í fjármálaheiminn. Hún segist hafa verið rétt kona á réttum tíma en þetta var ekki bara heppni því hún er eldklár og fyndin. Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind.
    1 hr 30 min
  • 4. Strákurinn í blokkinni sem lét ekkert stoppa sig

    Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík er alinn upp í blokk í Álfheimum og þurfti sjálfur að hafa fyrir lífinu, ólíkt því sem margir halda. Við ætlum að fara yfir lífshlaupið, ræða sigra og fyrirmyndir og hvað lífið verður miklu skemmtilegra þegar það er stemning. Eitt af því fyrsta sem Ari kenndi mér fyrir 25 árum var að drekka Mojito.

    Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind.

    1 hr 44 min

About Marta María býður heim

From the publisher's feed

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.