Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, spjallar um mat, uppskriftir og sitthvað fleira sem tengist matargerð í Mannlega þættinum á rás 1 á föstudögum.... more
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.
September 15, 2020Sigurlaug og matarminningarMatarspjallið með Sigurlaugu Margréti hefst á ný í dag. Hún fer með okkur til, að núna virðist, fjarlægari tíma, þegar allir voru í útlöndum að upplifa og veita sér vel í mat og drykk. Matarupplifanir í útlöndum eru minningar sem stundum hafa breytt lífinu og eru núna fallegar minningar sem við getum yljað okkur við, í bili. En Sigurlaug segir að við getum gert ýmislegt heima við, við getum sett upp þröngan franskan veitingastað heima og eldað froskalappir. Já þetta er spurningin um að hugsa í lausnum!...more11minPlay
June 05, 2020Matarspjall með Guðmundi AndraVið fengum góðan gest í Matarspjallið í dag, rithöfundinn og alþingismanninn Guðmundur Andri Thorsson. Hann rifjaði upp hvað var á matarborðinu í æsku hans, en móðir hans, Margrét Indriðadóttir, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, var listakokkur, en faðir hans Thor Vilhjálmsson eldaði einu sinni og það var eftirminnilegt....more20minPlay
May 29, 2020Pasta, pasta, pasta!Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínum stað og í dag sat Kristján Jóhannsson, föstudagsgestur þáttarins, áfram og það var spjallað um ítalskan mat, pasta, pasta og meira pasta!...more19minPlay
May 25, 2020KEA skyr, norðlenskt góðgæti og lundiMatarspjall dagsins í dag var landshornanna á milli, Sigurlaug Margrét var í hljóðveri RÚVAK fyrir norðan, Guðrún var stödd í Efstaleitinu og Gunnar var um borð í Herjólfi á leiðinni til Eyja. Rætt var um KEA skyr og bara skyr yfir höfuð og annað norðlenskt góðgæti....more14minPlay
May 15, 2020Gamlar matreiðslubækurSigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, var í símanum að norðan í matarspjalli dagsins. Í þetta sinn sagði hún okkur frá gömlum uppskriftarbókum, handskrifuðum af húsmæðrum þessa lands....more12minPlay
May 15, 2020LautarferðarkarfanÍ matarspjalli dagsins dustaði Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, rykið af „pikknikk“ körfunni, gerði samlokur, skrúfupasta, hellti upp á kaffi og setti í brúsa. Mjólkin fór auðvitað í gamla tómatsósuglerflösku og svo skundaði húnm með okkur í lautarferð....more12minPlay
April 24, 2020Kolkrabbar og smokkfiskarSigurlaug Margrét var með matarspjallið á þessum föstudegi eins og yfirleitt og í dag var það hafið sem kallar. Hver getur ekki fundið hjá sér fallega minningu um sjávarfang í suðrænni borg, veitingastaður sem býður uppá grillaðan kolkrabba og fylltan smokkfisk,og vindurinn er heitur og leikur um andlitið. Já líklega hafa flestir upplifað eitthvað svipað þótt kolkrabbi og smokkfiskur séu kannski ekki fyrir alla en við yljuðum okkur við þessar minningar í matarspjalli dagsins....more15minPlay
April 17, 2020Djúpt SesarsalatÍ matarspjalli dagsins fengum við Þórhildi Ólafsdóttur, kollega okkar hér á Rás 1 úr Samfélaginu. Hún sagði okkur stórskemmtilega reynslusögu frá því þegar hún bjó til Sesarsalat fyrir fjölskylduna, með eiginmanninn andandi ofan í hálsmálið á henni. Sem sagt salat í matarspjalli dagsins....more20minPlay
April 08, 2020Páskamaturinn, lamb og súkkulaðiMatarspjallið var á dagskrá í dag því Mannlegi þátturinn fer í páskafrí eftir daginn í dag og fram á þriðjudag. Sigurlaug Margrét var með páskalegt matarspjall að þessu sinni. Súkkulaði og Lambakjöt er það sem manni dettur helst í hug en ýmislegt fleira kom við sögu....more15minPlay
February 28, 2020Jón Kristinn Snæhólm brauðtertumeistariÞað styttist í fermingarnar og ómissandi á veisluborðinu er brauðtertan gamla og góða og hún nýtur enn mikilla vinsælda og á facebook hafa sprottið upp nokkrar síður henni til heiðurs auk þess sem sérstakar keppnir eru haldnar um hönnun brauðterta. Í matarspjallinu tölum við um brauðtertur og til okkar kemur góður gestur, Jón Kristinn Snæhólm sem ræðir um brauðtertumenningu landans, en hann segir sjálfur að hann búi til eina allra bestu brauðtertu, ekki í heiminum, heldur hreinlega í alheiminum....more13minPlay
FAQs about Matarspjallið:How many episodes does Matarspjallið have?The podcast currently has 92 episodes available.