
Sign up to save your podcasts
Or


Hefur þú velt því fyrir þér hvar þín mörk liggja i rómantiskum samböndum, i samskiptum við fjölskyldu, vini eða vinnustaðinn.
Î þessum þætti fjalla ég um mikilvægi þess að setja heilbrigð mörk ❤️
Í þætti dagsins fjalla ég um töfrana sem felast í því að segja já við lífinu. Jafnvel þó að við séum með önnur plön og þetta sé þvert á allt sem við höfðum séð fyrir okkur.
Við erum mörg hver sérfræðingar í að vita hvað við viljum ekki, á meðan við hugsum svo sjaldan um hvað það er sem við virkilega viljum. Niðurstaðan er oft sú að við fáum það sem við viljum ekki - því það er í raun eina planið sem við höfum.
Heimurinn er í raun okkar og við getum farið hvert sem er. En það er nú samt þannig að ef við vinnum ekki í okkur, skiljum okkur og umhverfi okkar þá erum við bara að skipta um stað, en fá það sama. Breytingin verður að gerast innra með okkur ef eitthvað á að breytast í okkar ytra umhverfi.
Til að skilja hluti er ekki nóg að vera á yfirborðinu heldur þurfum við alltaf að fara í kjarna málsins. Það er einmitt það sem ég ætla að gera í dag, fara í kjarna ástarinnar. Það er hægt að nálgast þetta viðfangsefni á marga vegu en hér fjalla ég um það um það hvernig tilfinningaleg tenging okkar við foreldra okkar getur fylgt okkur inn í sambönd á fullorðinsárunum. Af hverju endum við stundum á að velja það sem við vorum að flýja?
Draumar eru okkar áttaviti í lífinu og eru jafnvel einn af lyklum lifshamingjunnar. En hvað verður til þess að við lifum lífi þvert á það sem okkur dreymir um. Í þættinum í dag fjalla ég um þetta og margskonar hliðar á því að láta drauminn rætast.
-
Rétt upp hönd ef þú vilt eiga heima
Í heimi þar sem er í lag’ að dreyma
Rétt upp hönd ef þú trúir því að draumar geti ræst.
Jón Jónsson
Eru konur sérfræðingar í að brjóta sig niður í stað þess að byggja sig upp. Er kominn tími til að kveðja óheilbrigð bjargráð. Hvað getum við gert til að auka sjálfstraust og breyta neikvæðum hugsunum okkur í hag.
From the publisher's feed