Menningarpúlsinn

Menningarpúlsinn

By RÚV HlaðvörpTV & FilmSociety & CultureArts
Download on the App Store

All Menningarpúlsinn episodes

  • Pabbar og Fyrsta skiptið
    Aron Martin Ásgerðarson, Þóra Karítas Árnadóttir og Íris Björk Gunnarsdóttir ræddu dansverkið Papa og myndasöguna Fyrsta skiptið í Menningarpúlsinum hjá Erlu Björgu. Hinseginleikinn var alltumlykjandi ásamt umræðu um list sem sameinandi afl í skautuðu samfélagi.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Föðurlandið, jólabækur og notalegar bíóferðir
    Gestir Erlu Bjargar eru Dorothee Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands, Grímur Hákonarson kvikmyndagerðarmaður og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins. Rætt er um myndina Fatherland eða Föðurlandið ásamt spjalli um jólabókaflóðið, helgarrúnt á listasöfn og nýja kvikmynd Gríms sem gerist í Kópavogi upp úr miðri síðustu öld.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    51 min
  • Högg, hlutverk menningar í mannlegum tengslum og bókasöfn
    Gestir Erlu Bjargar Gunnarsdóttur voru Vigdís Másdóttir kynningar- og markaðsstjóri Kópavogsbæjar, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Pétur Blöndal blaðamaður og ljóðagrúskari. Umræðan snerist meðal annars um Högg í Þjóðleikhúsinu og hlutverk bókasafna í samfélaginu.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    54 min
  • Grasrótin, gjörningar, Fasteignamartröðin og Þjóðarópera
    Gestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Menningarpúlsinum voru þau Pétur Guðjónsson leikstjóri, Sindri Swan leikari og Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður. Þátturinn var sendur út frá Akureyri og umræðan snérist um menningarlífið fyrir norðan. Spjallað var um grasrótina sem er að eflast, Fasteignamartröðina hjá Leikfélagi Akureyrar auk frumsýningar Undir sömu stjörnu hjá Þjóðaróperunni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    51 min
  • Óli K. og Digger
    Gestir Fríðu Þorkelsdóttur eru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, Daníel Daníelsson, rithöfundur og Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmynda- og bókmenntafræðingur. Þau ræddu um ljósmyndasýningu Óla K. í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og kvikmyndina Digger.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum
    Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum. Umsjónarmaður er Kristján Guðjónsson og gestir eru Anna Dröfn Ágústsdóttir, Álfheiður Karlsdóttir og Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    51 min
  • Bíó og kammer

    Bíómenning og kammertónlist er til umræðu í þætti vikunnar, gestir þáttarins sáu kvikmyndirnar Paper Tiger (Pappírstígur) og Club Kid (Partípabbi) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og fóru á upphafstónleika Kammermússíkklúbbsins í vetur sem fagnar 70 ára starfsafmæli um þessar mundir.


    Viðmælendur: Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndafræðingur og lektor, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Tumi Torfason tónlistarmaður.

    Umsjón: Pétur Eggertsson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • Fjallaklifur, angist nútímamannsins í eldhúsinu og þráin eftir að eignast barn
    Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Urður Hákonardóttir tónlistarkona og Valur Grettisson fjölmiðlamaður. Rætt var um Varkár, nýja sannsögulega skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Hinsta ferðin á K2 sem er opnunarmynd RIFF og Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson sem er sýnt í Kassanum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min
  • Gervigreind, einmanaleiki, súrmæður, U2 og Bíó Paradís
    Gestir Júlíu Margrétar að þessu sinni voru Sólveig Arnarsdóttir leikkonar, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur. Rætt var um Gunnellu í Tjarnarbíói, Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba, hljómsveitina U2 og 79 af stöðinni. Menningarstofnanirnar Tjarnarbíó og Bíó Paradís voru mærðar og nútímalist sett í samhengi við gervigreind og einmanaleikann sem faraldur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min
  • Tyrfingur Tyrfingsson, ritskoðun á list, Ólafur Kárason og PISA
    Viðmælendur Júlíu Margrétar voru þau Steinunn Sigurðardóttir skáld, Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur og Agnar Jón Egilsson leikari. Rætt var meðal annars um slaufunarmenningu, ritskoðun á list, ólíkindatólið Tyrfing Tyrfingsson, Heimsljós, nýja bók Steinunnar Sigurðardóttur og PISA könnunina.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min