Myndugleikinn

Myndugleikinn

By MyndugleikinnEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Myndugleikinn episodes

  • Hugrekki og þægindahringurinn

    Í þessum þætti ræðum við um ást okkar á raunveruleikasjónvarpi í bland við að velta þægindahringnum fyrir okkur. Hvað er þægindahringurinn, af hverju eru til svo margar skilgreiningar á því hvað hann er og af hverju er self help kúlturinn svona oft að hvetja fólk til að fleygja sér út úr honum. Oft þurfum við eða viljum víkka þægindahringinnút, en það kallar gjarnan á smá spagettílappir og dash af hugrekki 💪

    45 min
  • 4 hlutir sem við hefðum viljað vita fyrir 25 ára

    Eftir smá Tene pásu er Myndugleikinn kominn aftur. Í þessum þætti deilum við 4 hlutum sem við hefðum viljað heyra fyrir 25 ára aldur.  Sársaukinn við að vaxa, samviskubitið sem lætur stöðugt á sér kræla, meðvirkni ásamt smá Taylor Swift og Leonardo DaVinci er meðal þess sem við snertum á í þættinum.

    Endilega fylgið Myndugleikanum á Instagram og deilið með okkur ykkar reynslu og lærdómi. Takk fyrir að hlusta <3 

    52 min
  • Konur og meðvirkni á vinnustað

    Þakklátar og nánast orðlausar yfir viðtökum fyrsta þáttar Myndugleikans kynnum við með gleði næsta þátt. Við fjöllum um meðvirkni á vinnustað, tökum dæmi um fáránlegar aðstæður sem við höfum gripið okkur í á hápunkti meðvirkninnar, ræðum spennuna og togstreituna sem getur skapast milli frama og móðurhlutverksins og “half-össum” þetta eins okkur einum er lagið 👊💛

    59 min
  • Myndugleikinn 1. þáttur

    Myndugleikinn er hugarfóstur Önnu Margrétar og Hjördísar Evu, sem báðar deila brennandi ástríðu fyrir því að læra, ræða og miðla þekkingu og reynslu til kvenna sem styður þær í að lifa lífi sínu á eigin forsendum.

    Í þessum upphafsþætti Myndugleikans fjalla Anna og Hjördís um mikilvægi þess að skapa rými fyrir opnar og heiðarlegar umræður um fjölbreytt málefni sem tengjast konum, ekki síst þær margþættu kröfur sem samfélagið gerir til kvenna og sem þær gera til sín sjálfar. Konur er oft settar í hlutverk sem endurspegla ekki endilega þeirra eigin vilja eða langanir. Með því að ræða opinskátt um þessi málefni og deila reynslusögum, leitast Hjördís Eva og Anna Margrét við að veita öðrum konum innblástur og hvatningu til að finna og fylgja sinni eigin leið – leið sem er skilgreind af þeim sjálfum



    41 min

About Myndugleikinn

From the publisher's feed

Myndugleikinn er hugarfóstur Önnu Margrétar og Hjördísar Evu, sem báðar deila brennandi ástríðu fyrir því að læra, ræða og miðla þekkingu og reynslu til kvenna sem styður þær í að lifa lífi…