
Sign up to save your podcasts
Or


Já vitleysan heldur áfram. Aron sér drauga og nú í annað sinn er það gert að sérstöku umræðuefni. Aroni áskotnaðist EMF-mæli og draugaútvarp í í liðinni viku og endaði í myrkum kjallara Aðventukirkjunnar með eldrauðan mæli. Hlustun er sögu ríkari í þætti dagsins. Verið góð hvort við annað.
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
Umræðuefni:
0:00 Nýtt intro og konur
3:55 Draugamælir á tökustað
6:26 Kjallari Aðventukirkjunnar
13:05 Drengurinn á Hallveigarstíg
17:54 Pabbi Arons á línunni
30:13 Serrano og Happatreyjur
31:52 Hvað mæla draugamælar?
37:43 Leitin að reimdu húsi
43:57 RKV Foto og Teya
49:10 Axlar-Björn og Spánverjavígin
53:53 GTA 6 og Erla
1:00:52 Peysurnar koma
https://undra.land/
"Framtíðin er framhjáld" kann að stinga ykkur í augun, kæru hlustendur en framtíðin gæti heldur betur ráðist af einu framhjáhaldi. Forstjóri stærsta fyrirtækis heims féll í slíkan pitt þegar hann féll fyrir kínverskum njósnara sem gæti hæglega endað með heimsstyrjöld, að mati okkar. Líklega hefur eitt framhjáhald aldrei vegið þyngra, a.m.k. ekki frá dögum Troju. Í þættinum er farið yfir Nvidia-hneykslið, hvernig CIA ræður til sín fólk og njósnara sem bíða í 25 ár eftir einu símtali. Neyðarbæklingur Almannavarna fær líka sinn skerf, enda hvetur ríkið fólk til að eiga reiðufé sem það tekur svo ekki við sjálft. Svo er leikjasíðan okkar loksins komin í loftið, aðeins seinna en til stóð vegna gubbupestar hjá Arnari. Arnar er líklega líka litblindur. Mælum með hlustun á þennan. Elskum ykkur öll.
https://undra.land/
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
Umræðuefni:
0:00 Gubbupest í fjölskyldunni
4:41 Leikjasíðan opnar
11:51 Nvidia-hneykslið
20:11 Heimsókn til Meta
29:26 Var hún njósnari?
36:55 Leyndarmál CIA
42:06 Njósnarar í dvala
46:45 Getur framhjáhald kveikt stríð?
48:43 Neyðarbæklingurinn
54:08 Teya og peysurnar
56:31 Er Arnar litblindur?
1:01:09 Framtíðin er framhjáhald
Það er margt á dagskránni þennan sunnudaginn hjá Ólafssonum, kæru vinir. Það er eiginlega ekki fræðilegur möguleiki að hægt sé að telja það upp hér. Þið verðið bara að hlusta - og hlustið vel. Við elskum ykkur öll.
Þáttur dagsins er af óundirbúnu tagi, enda leiddi könnunin góða í ljós að þið saknið slíkra þátta. Þessir þættir hafa tilhneygingu til þess að fara um víðan völl og þar ætti þessi þáttur ekki að gefa neitt ekkert eftir. Svo er stór tilkynning handan við hornið! Munið það bara að vera góð hvort við annað og munið einnig það kæru hlustendur, að við elskum ykkur öll.
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
0:00 Leyndarmál í vinnslu
6:27 Halloween eða öskudagur
11:36 Serrano og Happatreyjur
15:08 Óundirbúnir á ný
20:15 Lækning við öldrun
28:10 Vélmenni á heimilið
35:13 Gervigreindin á hugsanir okkar
41:07 Agentinn hans Tony Robbins
50:54 Teya og RKV Foto
54:59 Kúr og litla skeiðin
1:02:28 Börnin fara sjálf út
1:08:38 Þrýstingur og demantar
Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: borgaralaun fyrir 2035. Farið með það á koddan.
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
0:00 Bannaðir á Spotify
3:29 Niðurstöður könnunarinnar
11:49 Serrano-vinningshafinn dreginn
18:50 Hvað eru borgaralaun?
22:57 Covid-samsærið
36:00 Ríkið eða tæknirisarnir?
42:09 Nvidia, álið og Kerecis
59:05 Jóladagatal Happatreyja
1:07:10 Aftur að borgaralaunum
1:13:17 Gefa peningar tilgang?
1:22:58 Neuralink
1:34:26 Spá þáttarins
Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað!
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
Umræðuefni:
0:00 Söngur og live show
4:40 RKV Foto og Teya
7:54 Veislustjórn og nýtt lén
10:03 UBI kynnt til leiks
11:29 Lyf gegn öldrun
17:10 Fljúgandi bíll frá Teslu
21:23 Verða dýr þunglynd?
28:32 Laxveiði og fiskadráp
35:33 Leikhús, Serrano og Happatreyjur
41:25 Er internetið dautt?
46:18 Ef mannkynið deyr út
53:30 UBI bíður og lokaorð
Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort við annað.
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Reykjavík Foto: https://reykjavikfoto.is/
Umræðuefni:
0:00 Seal og könnunin
3:41 Undralandspeysan
8:52 Reykjavík Foto og Happatreyjur
12:59 Pabbi Arons smíðaði stúdíóið
16:14 Slettur og umsagnir
19:39 Ash Dykes í Kongó
23:24 Hættulegustu dýrin
27:35 Frumbyggjar
43:52 Teya og Serrano
48:22 Hvar er Daniel?
53:21 Glötuð þekking
1:03:08 Lísa og gervigreindin
Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd!
Samstarfsaðilar þáttarins eru:
Teya: https://www.teya.com/is/
Serrano: https://serrano.is/
Happatreyjur: https://happatreyjur.is/
Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!
Þá er komið að kveðjustund í bili kæru vinir. Ólafssynir þakka fyrir sig. Verið góð við hvort annað og munið að við elskum ykkur öll.