Hljóðbækur hafa notið vaxandi vinsælda á undanförnum árum enda er fátt notalegra en að halla sér aftur, loka augunum og láta segja sér sögu. Það er líka hægt að njóta góðra bóka á göngu, úti að hlaupa, í ræktinni, í bílnum og við húsverkin. Það er auðvelt að finna stað og stund til að hlusta. Það eru lífsgæði fólgin í því að geta valið milli þess að lesa eða hlusta. En við búum ekki öll við þau lífsgæði að geta valið. Sumt fólk á þess ekki kost og það er fólkið sem nýtir þjónustu Hljóðbókasafns Íslands.
Rætt var við Marín Guðrúnu Hrafnsdóttur, forstöðumann Hljóðbókasafns Íslands um starfsemi Hljóðbókasafnsins.