Þáttur um íslensku og önnur mál.
Í þætti dagsins er vöngum velt yfir samspili tónlistar og tungumáls, þá sérstaklega stafrófs, nótna og tóna. Skyggnst verður inn í sögu nótnanafna og nótnaskriftar, auk þess sem fuglasöngur, stafrófssálmar og óperur koma við sögu.
Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.