Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Þáttur um íslensku og önnur mál.Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir... more
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.
May 10, 2026Úti um hvippinn og hvappinnHvar ertu ef þú ert úti um hvippinn og hvappinn? Hvar er buskinn sem vill vera áfangastaður þess sem fýkur? Orð af orði er úti um dittinn og dattinn, á tvist og bast og út um Brand og Runólf; og rifjaðar eru upp sögur á bak við orðatiltækin „nóg til á Byggðarenda„ og „hver veit nema Eyjólfur hressist“....more30minPlay
May 03, 2026Stiklað orð af orði: baldakin, veifiskati, prímsigna o.fl.Hvað er baldakin? Og hvað er veifiskati? Hvað er að vera aftarlega á merinni? Hvernig reipi er haldreipi? Ef eitthvað ber á góma, hvort eru það þá fingurgómar eða tanngómar? Hvað er eiginlega að snurfusa?...more30minPlay
April 26, 2026Guðrún Kvaran um orðaforðann í verkum LaxnessÍ greininni Úr fórum Halldórs Laxness fjallar Guðrún Kvaran málfræðingur um orðaforðann í verkum Halldórs Laxness, annars vegar dönsk tökuorð og hins vegar íslenskt alþýðumál....more32minPlay
April 19, 2026Daglegt mál 19 – Ill danska og stefnutilvísanirHalldór Laxness skrifaði Ríkisútvarpinu bréf árið 1974, annars annars vegar um þrjá danska hortitti og hins vegar um stefnutilvísanir; og Helgi J. Halldórsson las þau upp í þættinum Daglegu máli....more28minPlay
April 12, 2026Alíslensk orð um máls- og vogareindirGreinin „Stikukerfið: tugamál og tugavog“ birtist í Skírni 1908. Jón Jónsson prófastur á Stafafelli í Lóni skrifaði um lög um metramæli og vog sem samþykkt voru á Alþingi árið áður. Jón var ósáttur við að með metrakerfinu var löghelgaður urmullinn allur af útlendum orðum og lagði til í staðinn alíslenskt orð, eins og „stika“ um metra; „mælir“ um lítra; og „met“ í stað hins útlenda gramms....more25minPlay
April 05, 2026Daglegt mál 18 – Upplifa skemmtilegheitÞað er furðudönskuskotið, óþarft og rangt að segja „burtséð frá“ og líka orðin „skemmtilegheit“ og „harðheit“, segir Eiríkur Hreinn Finnbogason, umsjónarmaður Daglegs máls í útvarpinu árið 1956. Hann er líka þreyttur á því að fólk segðist „upplifa“ allt mögulegt og ómögulegt....more33minPlay
March 29, 2026Daglegt mál 16 – um skeÞótt orðið ske sé lítil þúfa hefur hún oft velt þungu hlassi og í áratugi hefur verið tekist á um ágæti hennar.Árni Böðvarsson talaði um orðin ske og heldur í þættinum Daglegu málið árið 1955 og í öðrum þætti gerði hann íslenskun erlendra örnefna og staðaheita að umtalsefni....more32minPlay
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.