Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Þáttur um íslensku og önnur mál.Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir... more
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.
March 22, 2026Daglegt mál 16 – kommur, strik og skammstafanirKomma, strik og skammstafanir voru umræðuefni Marðar Árnasonar í Daglegu máli árið 1984. Þráðurinn er nú tekinn upp að nýju enda hefur reglum um geinarmerki síðan verið breytt. Þó hafa ekki orðið á þeim gagngerar breytingar og Daglegt mál frá 1984 á enn jafn mikið erindi við hlustendur....more32minPlay
March 15, 2026Það liggur í augum úti – um orðatiltæki og samslátt þeirraUm það er engum blöðum að fletta að orðatiltækjum er oft slegið saman. Útkoman getur orðið skondin eins og þegar orðatiltækjunum koma eins og þjófur að nóttu og koma eins og þruma úr heiðskíru lofti er slegið saman svo til verður orðatiltækið að koma eins og þjófur úr heiðskíru lofti.Í þættinum er útskýrt hvað orðatiltæki eru, þau rædd og ruglað saman í þættinum....more30minPlay
March 08, 2026Daglegt mál 15 – Ísinn er kominn á TjörninniEiríkur Hreinn Finnbogason tekur til umfjöllunar bréf frá hlustendum og málfar í blöðum. Í tveimur þáttum af Daglegu máli frá 1956 fjallar hann um orðin kóteletta, þinglesing og augabrún; sagnasambandið kveikja upp; hvor sinn og sinn hvor; sjálfs sín eða síns; og fyrirsögnina Ísinn er kominn á Tjörninni....more31minPlay
March 01, 2026Daglegt mál 14 – „ef ég sé með hattinn“Það kennir ýmissa grasa hjá Eiríki Hreini Finnbogasyni í Daglegu máli í febrúar 1956. Í tveimur þáttum tekur hann fyrir bréf frá áhugamönnum um íslenskt mál um til dæmis viðtengingarhátt í ef-setningum; orðin eldhúsbekkur og ginnkeyptur; notkunarsvið sagnarinnar byggja; og verkaskiptingu orðanna eitthvað og eitthvert....more31minPlay
February 23, 2026Hellt upp á kaffiSagt er að Árni Magnússon handritasafnari hafi verið fyrsti Íslendingurinn sem ánetjaðist kaffi. Þessi lúxusdrykkur betri borgara varð fyrr en varði í hvers manns bolla og vel má halda því fram að kaffi sé þjóðardrykkur hér á landi, könnun sem gerð var virðist staðfesta að meira sé drukkið af kaffi í bókum Guðrúnar frá Lundi en í öðrum íslenskum skáldsögum. Hvorki virðast þó vera til orðatiltæki né málshættir sem hafa kaffi sem kjarnaorð....more29minPlay
February 15, 2026Má ég lána Grána þinn?Má ég lána hann Grána þinn út á bæi, spurði aðkomumaðurinn Austfirðinginn og Austfirðingurinn rak upp stór augu og spurði, hverjum ætlar þú að lána hann Grána minn? Þá varð hinn undrandi og mælti, skilur þú mig ekki? Nei, Austfirðingurinn skildi ekki. Þetta var um miðja 20. öld og nú er þetta orðalag komið aftur inn í málið en eftir öðrum leiðum. Orð af orði fer langa leið að þessari breytingu með hringferð um landið að skoða forsetningar með staðanöfnum og enskum áhrifum en endar í afturbeygðum og óákveðnum fornöfnum....more30minPlay
February 08, 2026Fataskápar og það sem þeir hafa að geymaOrðið fataskápur merkir ekki bara hirsla undir föt heldur er hægt að nota orðið yfir fötin sjálf sem geymd eru í skápnum. Farið er yfir merkingarsögu orðsins og samsvarandi orðs í ensku auk þess sem skoðuð eru ýmis safnheiti um fatnað og vefnaðarvöru og orðatiltæki sem þeim tengjast....more29minPlay
January 25, 2026Frönsk tökuorð í íslenskuHvaða orð í íslensku eru rakin til frönsku? Við skoðum frönsk áhrif á íslenskan orðaforða, með hliðsjón af greinum eftir Alexander Jóhannesson og Guðrúnu Kvaran, og endum á fróðleik um Bayeux-refilinn í Normandí....more32minPlay
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.