Í dag verður konunglegt stuð í Óvirkum morgnum. Gunnar Helgason verður á línunni og Helgi helgarinnar er að þessu sinni Helgi í Helga og hljóðfæraleikurunum.
Við tökum púlsinn á Tehúsinu fyrir austan og hringjum til London og ræðum við Birnu Helgadóttur sem er með puttann á konunglega brúðkaupspúlsinum.
En þetta er ekki allt, Frímann Gunnarson ætlar að fræða okkur um allt sem skiptir máli í konunglegum brúðkaupum.