Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Guðrún Dís Emilsdóttir og Hjalti Jónsson fylgja ykkur inn í helgina á laugardagsmorgnum. Þau stilla hlustendur inn á réttu stemmninguna fyrir helgina með réttu tónlistinni samhliða því að fá góða gest... more
FAQs about Óvirkir morgnar:How many episodes does Óvirkir morgnar have?The podcast currently has 32 episodes available.
March 24, 2018Tuttugasti og fimmti þátturRóbert Marshall, Brynhildur Ólafs, Þorsteinn G. Gunnarsson segir frá blúshátíð á Skólavörðustíg, Valgeir Bergmann heldur mót í snjóblaki og Guðmundur í Koti um karlakórinn Hreim í Hörpu. Klárir hlustendur fá að spreyta sig á páska-níu og Dísarlag dagsins er á sínum stað....more3h 15minPlay
March 17, 2018Tuttugasti og fjórði þátturLíf og fjör að vanda í Óvirkum morgnum: Björgvin Halldórsson frá Akureyri, Rósa Guðbjarts um bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði, flóamarkaðurinn, páskafjarki og Dísar lag dagsins....more3h 15minPlay
March 10, 2018Tuttugasti og þriðji þátturPálmi Gunnarsson, Stefán Hilmarsson, Orri Huginn, Valgeir Magnússon um Eurovision í Litháen og Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Hödd Vilhjálmsdóttir fræða okkur um stórsýninguna Verk og vit....more3h 15minPlay
March 03, 2018Tuttugasti og annar þátturSóli og Gunna verða í hörku stuði í Óvirkum þennan laugardaginn. Spilum lögin sex sem taka þátt í Söngvakeppninni og með okkur verða FÁSES konurnar Laufey Helga og Hildur Tryggva að rýna til gagns og spá í spilin. Spilum gamlar perlur úr Söngvakeppnum liðinna ára, söngvakeppnissexan verður á sínum stað með geggjuðum vinningum og Jón Jónsson mætir til okkar með gítarinn, þekur gamalt Eurovisionlag og hitar upp fyrir kvöldið. Bergrún Íris verður á línunni vegna barnabókaráðstefnu í Gerðubergi og Hjördís segir okkur frá Háskóladeginum....more3h 15minPlay
February 24, 2018Tuttugasti og fyrsti þátturÍ dag fáum við til okkar skötuhjúin Jón Ólafs og Hildi Völu í spjall, Helga helgarinnar og Stöngin inn ásamt gömlum perlum úr Söngvakeppninni....more3h 15minPlay
February 17, 2018Tuttugasti þátturÍ dag beinum við spjótum okkar að Söngvakeppninni en söngvakeppnissérfræðingar Óvirkra morgna þær Laufey Helga Guðmundsdóttir og Hildur Tryggvadóttir Flóvenz spá í spilin og Rúnar Freyr heyrir í okkar frá Háskólabíói. Anna María íbúi í Grímsey ræðir við okkur um skjálftavirknina sem skokið hefur eyjuna síðustu daga og Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla segir okkur frá verkefninu Út að borða fyrir börnin. Söngvakeppnissexan verður á sínum stað og auðvitað besta tónlistin eins og venja er í Óvirkum morgnum....more3h 15minPlay
February 10, 2018Nítjándi þátturÞað verður ekki leiðinlegt í herbúðum Óvirkra morgna í dag: Lost bræðurnir Rögnvaldur Gáfaði og Sumarliði mæta léttir og ljúfir í Efstaleitið og söngvarinn Guðmundur Rafnkell Gíslason kíkir í kaffi. Á tólfta tímanum spilum við lögin sem taka þátt í Söngvakeppninni í kvöld og söngvakeppnissérfræðingar Óvirkra morgna þær Laufey Helga GUðmundsdóttir og Hildur Tryggvadóttir spá í spilin með okkur. Er þetta spilun eða bilun ?...more3h 15minPlay
February 03, 2018Átjándi þátturÍ dag bjóðum við upp á fína tónlist og alls konar með því. Skötuhjúin Anna Svava og Gylfi Þór eru aðalgestir þáttarins og Halldóra Magnúsdóttir kíkir til okkar í kaffi og segir okkur frá fyrirlesaranum Brian Mayne sem væntanlegur er til landsins. Plata helgarinnar, Helgi/Helga helgarinnar og margt fleira....more3h 15minPlay
January 27, 2018Sautjándi þátturGóðan daginn gott fólk. Þá ætlum við að keyra þetta í gang þennan laugardaginn með frábærri tónlist og góðum gestum. Simmi og Jói kíkja í morgunkaffi og með því og Magni okkar Ásgeirsson skottast til okkar nýtt lag í farteskinu. Rúsínan í pylsuendanum er síðan leikurinn Komdu norður þar sem við gefum einum heppnum en snjöllum hlustanda glæsilega vinninga fyrir á bilinu 250 til 300 þúsund kall....more3h 15minPlay
January 20, 2018Sextándi þátturÞað er komið að því, í dag spilum við í fyrsta sinn í útvarpi lögin 12 sem taka þátt í Söngvakeppninni 2018. Ef þið viljið ekki hljóma eins og vitleysingar þegar þið mætið aftur til vinnu á mánudaginn þá skuluð þið hlusta til að geta tekið þátt í líflegum umræðum um ágæti laganna á kaffistofum landsins. Birna Hansdóttir og Sammi mæta til okkar og segja okkur frá öllu því sem er að gerast bakvið tjöldin....more3h 15minPlay
FAQs about Óvirkir morgnar:How many episodes does Óvirkir morgnar have?The podcast currently has 32 episodes available.