Pallborðið

Pallborðið

Download on the App Store

Pallborðið episodes

  • Brýnustu verkefnin í borginni

    Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.

    49 min
  • Fjórir berjast um for­manns­sætið í VR

    Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.

    55 min
  • Kjara­deila grunn­skóla- og leik­skóla­kennara

    Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.

    47 min
  • Handboltaæði runnið á þjóðina

    Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.

    42 min
  • Sér­fræðingar rýna í stöðuna á loka­sprettinum

    Margrét Helga Erlingsdóttir, fréttamaður, fær til sín þau Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, Eirík Bergmann, stjórmálafræðiprófessor við Bifröst, Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við HÍ og Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema við Hí til að rýna í stöðuna á lokasprettinum.

    56 min
  • Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar

    Hlaðvarpsstjórnendur sem halda úti umfjöllun um kosningarnar mættu í myndver til þess að fara yfir stöðuna. Þórhallur Gunnarsson úr Bakherberginu, Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott, Gísli Freyr Valdórsson hjá Þjóðmálum og Þórarinn Hjartarson sem heldur úti Einni Pælingu.

    55 min
  • Hvalveiðafár og skóla- og heil­brigðis­mál

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru gestir Pallborðsins í dag. Til umræðu voru meðal annars nýjustu vendingar í skoðanakönnunum og pólitíkinni og skóla- og heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt. Pallborðinu stýrði Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður.

    1 hr 1 min
  • Hvaða lausnir bjóða flokkarnir?

    Í þetta skiptið tekur Berghildur Erla á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ölmu Möller landlækni í leyfi sem leiðir lista Samfylkingar í Kraganum, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni sem fer fyrir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Bergþóri Ólasyni, þingmanni og oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. 

    50 min

About Pallborðið

From the publisher's feed

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.