Pallborðið

Pallborðið

Download on the App Store

Pallborðið episodes

  • Veður­stofan gagnrýnd fyrir að deila ekki gögnum

    Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum. Fjallað er um málið í Pallborðinu en gestir þáttar eru Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, Dr. Ólafur Rögnvaldsson, stofnandi og eigandi Belgings, og Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athuguna- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofu Íslands.

    43 min
  • Deilan um þátt­töku Ís­lands í Euro­vision harðnar

    Á Ísland að sniðganga Eurovision? Kiknar RÚV undan þrýstingi og hættir við þátttöku? Breytist allt með þátttöku Palestínumanns í Söngvakeppninni? Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, Margrét Kristín Blöndal, tónlistarkona og aðgerðasinni, og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur voru gestir Kristínar Ólafsdóttur í Pallborðinu á Vísi þar sem þátttaka Íslands í Eurovision var til umræðu. 

    55 min
  • Hvað heldur stjórnar­flokkunum saman?

    Stjórnarþingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Vinstri grænum og Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki ræddu stöðuna á stjórnarheimilinu við Heimi Má Pétursson í Pallborðinu á Vísi. 

     

    45 min
  • EM-pallborðið: Hitað upp fyrir milliriðilinn

    Stefán Árni Pálsson fékk Bjarna Fritzson, þjálfara ÍR og fyrrverandi landsliðsmann, og Einar Jónsson, þjálfara Fram, til að spá í spilin og gera upp frammistöðu íslenska liðsins á mótinu til þessa í EM útgáfu af Pallborðinu. 

    35 min
  • EM-pallborðið: Allt undir í fyrsta leik

    Ísland mætir Serbíu í fyrsta leik á Evrópumótinu í handbolta. Liðið leikur einnig með Svartfellingum og Ungverjum í riðli. Einar Jónsson, þjálfari Fram, og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, og fyrrum landsliðsmaður verða gestir Stefáns Árna Pálssonar í Pallborðinu. Þar verður hitað upp fyrir mótið, rætt við íþróttafréttamenn Stöðvar 2 og Vísis sem staddir eru í Munchen í Þýskalandi.

    35 min
  • Hvað felst í þjóðar­sátt og fyrir hverja er hún?

    Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Kjaraviðræður, kjarasamningar og möguleg þjóðarsátt voru til umfjöllunar. Gestir þáttarins voru Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, og Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara.

    43 min
  • Hver tekur við af Agnesi?

    Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Pétur Markan biskupsritari, séra Jóna Hrönn Bolladóttir og séra Örn Bárður Jónsson eru gestir. Fjallað er um biskupskjör og stöðu þjóðkirkjunnar.

    41 min
  • PISA könnun og mennta­málin - seinni hluti

    Fyrrverandi menntamálaráðherrar ræða hvað sé hægt að gera vegna niðurstöðu PISA kannannar. Lilja Alfreðsdóttir, núverandi menningar-og viðskiptaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Illugi Gunnarsson ræða um þróunina, rýna í vandann og um leiðir til að snúa þróuninni við.

    38 min
  • PISA könnun og mennta­málin - fyrri hluti

    Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Sigríður Ólafsdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst ræddu menntamál og PISA könnunina.

    35 min

About Pallborðið

From the publisher's feed

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.