
Sign up to save your podcasts
Or


Pant vera blár ræðir top3 spil sem hægt er að tengja við myrkraþema. Rætt um spennu fyrir komandi sumarbústaðaferð Pant vera blár!
Í þessum þætti förum við yfir keppnisskap við spilaborðið, hvort sem það er gott eða slæmt og hvar línan liggur. Meðlimir Pant Vera Blár eru með mismunandi keppnisskap eins og heyra má í þessum þætti.
Valdi er nú ný kominn frá Essen í Þýskalandi enn þar fer fram ein stærsta borðspilaráðstefna í Evrópu einu sinni á ári. Heyrum hvernig hann upplifir ferðirnar.
Nú fara Pant vera blár yfir sína uppáhalds spilahönnuði ásamt því að tala um fjölgun mannkyns einn tiltekinn mánuð árið 2015.
Spilin sem hafa verið spiluð nýlega eru:
Dice Miner (Styrmir)
Through the Ages: A New Story of Civiliazation (Valdi)
Quacks of Quedlinburg (Davíð)
Rurik: Dawn of Kiev (Leifur)
Hver eru bestu spilin sem Uwe Rosenberg hefur hannað? Valdi myndi segja Bohnanza og að allt annað sé drasl en hinir í Pant vera Blár gera samanburð á Agricola, Caverna og a Feast for Odin.
Pant vera blár talar um hvað er hrífandi og ánægjulegt við borðspil á Kickstarter ásamt því að sýna í verki hvers þeir eru megnugir í impromptu lagasmíði og söng. Það er aldrei að vita nema úr verði bara hljómsveit líka.
Í þessum fjórtánda þætti Pant vera blár er farið yfir það sem fylgir því að kaupa fleiri spil en maður ræður við að kaupa. Þá verður til skammarhilla á heimilinu. Þessi skammarhilla er umræðuefni þáttarins. Spil sem maður á en hefur ekki spilað.
Eftir sumarfrí gefur Pant vera blár góð ráð hvernig best er að halda bíl uppi ef skipta þarf um dekk. Aðalumræðuefnið er þó þróun áhugamálsins hjá forföllnum borðspilara en þáttastjórnendur þekkja aðila sem má flokka sem forfallna borðspilara. Þeir eru auðvitað sjálfir hlaðvarpsstjörnur en ekki forfallnir borðspilarar.
Pant vera blár ræðir bestu tveggja manna spil en tala talsvert um Berlín og brúna títtræddu. Herra Monopoly heldur áfram að gefa Monopoly undir fótinn og dreifir fróðleik um spilið og lærir sjálfur um Monopoly eyjuna í Atlantshafi og prammann í Berlín.
Í þetta skiptið gefa Pant vera blár tveggja manna spilið 7 Wonders Duel í samvinnu við Spilavini.
Eruð þið alltaf óheppin á teningunum? Draga mótspilararnir alltaf rétta spjaldið úr bunkanum til þess að vinna? Er best að nota öpp eða aðra tækni til að hjálpa ykkur við borðspilaiðkunina? Hver er tilgangur lífsins? Pant vera blár ræðir ýmsa hluti tengda sumum þessara spurninga. Og gefa svo spil í samvinnu við Spilavini.
From the publisher's feed