
Sign up to save your podcasts
Or


Hvað er jafnvægi í spilum?
Einstaklingar upplifa þetta örugglega á mismunandi hátt en Pant Vera Blár fer aðeins yfir jafnvægi eða ójafnvægi í spilum... og jafnar út spilspjallið með pabbabröndurum og umræðu um lífið og tilveruna.
Að éta... það er það sem þeir geta... enn að vinna! Það er heldur minna.
Það á kannski við um fólk en ekki vinnukalla í spilum - þeir sjá alltaf um að skila sínu á vellinum. Það er nú til töluverður fjöldi af spilum þar sem einstaklingar skipta vinnuköllum í mismunandi verkefni til að hámarka virði aðgerða á spilaborðinu.
Pant Vera Blár tekur tekur saman bestu vinnumannaspilin í þessum þætti.
Það bíða allir spenntir eftir ofurhetjumyndin um Pant Vera Blár - hópur einstaklinga sem býr yfir þeim einstaka hæfileika að geta spilað sig úr öllum lífsins vandamálum.
Meðan hópurinn tekur sér pásu frá tökum á PVB - THE BOARDGAME HEROES - þá veltum við því fyrir okkur hvaða bíómyndir mætti gera úr borðspilum.
Styrmir deilir einnig með hlustendum LifeHack sem eykur upplifun allra í sjónvarpsherberginu.
Eru einhver þema sem borðspilaáhugamenn elska meira en annað?
Pant Vera Blár fer í létt spjall um hvaða þema er í upphaldi hjá þeim ásamt öðrum kaffibollaspjalli.
Pant Vera Blár eru litríkir einstaklingar. Í þessum þætti fer hópurinn í umræðu um hversu mikilvægt er að vera með máluð módel í spilum og hvaða tæki og tól þurfa einstaklingar á að halda til að byrja mála módel.
Sumarið er tíminn!
Þar sem allir spila spil
og allir hafa gaman...
að sitja saman, óóójááá
Pant Vera Blár fer yfir hvaða spil eru efst á listanum þeirra til að spila í sumar! Meðlimir voru þó með mismunandi nálgun sumarspil og afhverju spilin fóru á Topplistann þeirra.
Konungur Njarðvíkur kallar spila-riddara sína saman við Hringborðið í Nexushöllinni til að leita að spil hins heilaga Kaleiks. Sir Davíð the Brave, Sir Valdi the Pure og Sir Kristleifur not-quite-so-brave-as-Sir-Davíð, halda í ferðalag ásamt King Styrmir í leit að Kaleikaspilum.
Pant Vera Blár fer yfir hvernig mismunandi félagsskapur við spilaboðið getur haft áhrif á borðspilaupplifun.
Meðal spila sem rætt var um í þættinum:
Root: Marauder expansion
Fox in the Forest Duet
Bärenpark
Star Wars Rebellion
Við dustum rykið af Topp 5 listanum - bestu spilin að mati PVB - sem var gefin út fyrir ári síðan og förum yfir þær breytinga sem hafa átt sér stað.
From the publisher's feed