
Sign up to save your podcasts
Or


I shall be telling this with a sigh
Somewhere ages and ages hence:
Two roads diverged in a wood, and I—
I took the one less traveled by,
And that has made all the difference.
Þetta er bútur úr vísu eftir Robert Frost sem heitir the Road Not Taken og er tileinkaður honum Styrmir sem var eini meðlimur Pant Vera Blár sem skellti sér á UK Games Expo í ár og er að sjálfsögðu næla sér í allskonar flottar viðbætur og ný spil. Í þessum þætti deilir hann sinni upplifun af þessum skemmtilega viðburði.
Pant vera Blár er að sjálfsögðu miðlari #1 fyrir okkur Íslendinga og styttist í að við verðum áhrifavaldar heimsins, þegar við forum að gefa út spil og gefa þáttinn okkar einnig út á ensku, spænsku og frönsku. Enn þangað til er auðvitað er til annað gott efni sem við leitum í...
Hvernig borðspilaramiðlara skoðum við ? Að hverju leitum við og hvert leitum við til að skoða fréttir, sækja upplýsingar, kennslu o.fl þegar það kemur að borðspilum.
Won´t someone please think of the children?!
Jú við hugsum sko um börnin - enda eiga meðlimir Pant Vera Blár helling af börnum eða samtals 11 börn! Sumir eiga reyndar fleiri börn en aðrir enn meðaltalið er samt 2.75 pr. meðlim. Þar af leiðandi erum við nú alveg duglegir að spila með krökkunum þegar tækifæri gefst.
Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg krakkaspil.
Vonbrigði... þetta er ekki besta tilfinning í heimi, sérstaklega þegar maður er fullur tilhlökkun að fara spila skemmtilegt spil sem endar síðan á því að vera öööömurleg upplifun pakkað inn í fallegt dulargervi.
Í þessum þætti förum við yfir spil sem hafa valdið okkur mestum vonbrigðum.
Ef ég væri pakki þá væri ég klárlega besti pakkinn. Því besti pakkinn er alltaf betri en aðrir pakkar því inn í besta pakkanum er ekki bara brot af því besta heldur allt það besta!
Hvað er betra enn topp 10 listi? Topp Billjón listi!
Þar sem við höfðum samt ekki tíma til að spila billjón spil þá ákvöðum við að fara millivegin og setja saman fyrsta íslenska topp100 spilalistann. Fáranlega góður listi fyrir þá sem vantar hugmyndir af spilum til að prófa.
Það er margt svo óþolandi! Það er samt ekkert meira óþolandi en bailerar í spilum sem hafa ekki skriflega afsökun fyrir mætingaleysinu sínu.... stundum. Enn hvaða leiðir förum við þegar öllu er snúið á hvolf og spilaplönin breytast? Við tökum skemmtilegan snúning á þessu vandamáli
Hvenær áttu of mikið af spilum....? Eða ætti maður að spyrja sig... á ég of lítið af spilum?
Við veltum því fyrir okkur hvort það sé einhver tímapunktur í lífi borðspilara þar sem við segjum við okkur.... "Ég á of mikið af spilum :/"
Eru drekar vondir? Í flestum sögum eru drekar vondir og í trúabrögðum eru drekar tákn illsku og óreiðu í heiminum. Óumdeilanleg sönnunargögn hafa fundist nýlega sem benda svart á hvítt að drekar eru vondir. Það er því frábært að vera titlaður drekabani!
Að öðru... í þessum þætti förum við yfir vel heppnaðan spilaviðburð sem haldin var á Hvolfsvelli
From the publisher's feed