Pant vera blár!

Pant vera blár!

By Davíð, Kristleifur, Styrmir, ÞorvaldurLeisureGames
Download on the App Store

Pant vera blár! episodes

  • 80. Slagur! Slagur! Slagur!

    VIð höfum ákveðið að breyta Pant Vera Blár í FightClub! 

    HIttum þennan ágæta mann sem heitir Tylor Durden og hann sannfærði okkur um að betra væri að slást enn að spila

    59 min
  • 79. Hljómsveitir spila líka

    HELP! I NEED SOMEBODY HELP! 

    Þetta er jú frægur texti úr lagi með Bítlinum enn það vita það ekki margir að John Lennon hrópaði þetta yfir hópinn þegar hann vakti drekann í hinu sígilda spili CLANK! Paul McCartney matreiddi þetta svo í skemmtilegt lag. 

    Hljómsveiti spila víst líka! Enn hvaða hljómsveitir passa við hvaða spil? 

    1 hr 15 min
  • 76. 1+1+1 = 3 ára !

    Að eiga afmæli er svo gaman,
    Við spilum allir saman,
    og tölum svo um það
    og allir hlusta vel!

    Við settum saman lista
    og fórum smá að flissa
    og töluðum svo um
    hvað okkur fannst best! 

    1 hr 13 min
  • 75. Spilaval

    Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.

    Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur. 

    Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað að stundum er gott að blanda þurrefnum í jöfnuna (Snakk og gos). 

    46 min
  • 74. Bíómyndir og borðspil

    Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...

    Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund. 

    Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum. 

    1 hr 20 min
  • 73. 2023 Uppgjör

    Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við

    1 hr 12 min
  • 72. Double Trouble

    Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch?

    Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum sem þurfti að sigrast á ómögulegum verkefnum. Í þessum þætti kynnum til leiks  nýtt teymi  sem fær til sín góða gesti og má líkja best við 3CPO og R2D2 

    2 hr 6 min
  • 71. Áramótaspil

    PEW PEW PEW! Það er kominn tími til að sprengja upp enn eitt árið í burtu. Tíminn líður... nýtt ár ný mark...spilamarkmið! 

    Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg spil sem er gott að hafa á hliðarlínunni fyrir áramótapartíið. 

    Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa verið að hlusta og vonum að þið siglið með bros á vör inn í  2024!

      

    1 hr 15 min

About Pant vera blár!

From the publisher's feed

Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því…