Pant vera blár!

Pant vera blár!

By Davíð, Kristleifur, Styrmir, ÞorvaldurLeisureGames
Download on the App Store

Pant vera blár! episodes

  • 70. Jólaspilin 2023

    Vitiði hvað við elskum meira enn jólin?.... Það er rétt! SPIL! 
    Enn það er ekkert betra enn að vera með fjölskyldu og vinum um jólinn... að spila.

    Í þessum þætti aðstoðum við hlustendur að velja spil í pakkann fyrir jólin og fáum til okkar góðan aðila í létt spjall

    2 hr 6 min
  • 69. Samvinna

    Hvað er betra enn að lifa í samfélagi þar sem allir vinna saman. Allir hjálpast að. Allir taka tillit til hvors annars og það er aldrei vesen. 

    Við erum öll mismunandi forrituð í lífinu og þar af leiðandi ekki allar ákvarðanir í fullkomnu synchi... enn er það ekki bara gaman?

    Í þessum þætti fjöllum við um samvinnu í lífinu og förum kannski yfir nokkur samvinnuspil 

    56 min
  • 68. Blá mjólk

    Hvort viltu þema á spilakvöldinu eða bara nýja tegund af bjór? Pant vera blár parar saman top10 spilin á BoardGameGeek við drykki.
    Eins og oft áður með topplista nálgast vinirnir þetta á ólíkan hátt og ótrúlegt en satt, þá eru þeir ekki sammála um allt.

    1 hr 9 min
  • 67. Ferðadagbók Styrmis (Essen 2023)

    Kæra Dagbók,

    Í dag er ég mjög spenntur, alveg súper dúper ÚBER spenntur! Ég er nefnilega að fara til Þýskaland á spilaráðstefnu. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að fara enn síðan var bara svo SJÚKLEGA gaman síðast að ég ákvað að drífa mig.

    Ég er að spá að vera smá flippaður og fá mér Baileys út í kaffibollan minn hérna upp á velli í tilefni dagsins og aldrei að vita nema taki eitt Encore spil við strákana í vélinni á eftir. Djöfull verður þetta skemmtilegt! Bah strákarnir eru að koma, greinilega búnir í ELKO. Ég verð að loka þessari stuttu dagbókafærslu þótt mig langi að skrifa meira... Lofa að skrifa niður eftir hvern dag á Spiel Essen :)

    Styrmir Spennti


    1 hr 16 min
  • 66. Blákon II

    Blákon er ótrúlega skemmtileg spilaráðstefna sem haldin er 1-2x á ári í Munaðarnes í Borgarfirði. Enn hvað þarf í svona góða bústaðarferð fyrir 4 miðaldra einstaklinga frá fimmtudegi til sunnudags?

    - 3 pakka af eggjum
    - 3 pakka af beikon
    - 3 pakka af Vilko Pönnukökum + gott sýrop
    - 8 Kjúklingabringur
    - 10 pylsur og pylsubrauð með meðlæti
    - Salat
    - Mjólk
    - Nokkur kíló af snakki og nammi
    - Bjór, whiskey, gin, baileys (algjör möst), bland og smá rauðvín
    - sous vide græjur
    - 10-12 hamborgara með brauði og meðlæti
    - Eitthvað gott kjöt, kartöflur og sósur eftir smekk. 
    - Djús, jógurt, nasl (létt millimál)
    - 36 Powerade (Helst bláa)

    og síðast en ekki síst.....

    - 52 borðspil !



    1 hr 43 min
  • 65. Midgard 2023 Live Show

    In is episode ví will be speaking ensku. Við went to Midgard, which was haldið in Laugardalur. We vere invited to host our podkast á Sunnudegi and record live.

    It went realí realí vel!

    59 min
  • 63. Einvígi - Eru duel spil að eyðileggja upprunalega spilið

    Eru Duel spil "Nánast fullkomlega og algjörlega tilgangslaus fyrirbæri" Eins og einn góður borðspilari orðaði það. 

    Við getum öll verið sammála um það að Hollywood á það til að blóðmjólka góðar hugmyndir því jú... góð saga býr til pening.... og ef það eru komnir aðdáaendur að þessari sögu, afhverju ekki búa til meira efni sem býr til meiri pening? 

    Enn þegar góð borðspil eru gerð... eru duel spil bara tilgangslaus viðbót til að plata okkur borðspilafíklana að eyða aðeins meira til að næla okkur í tveggja manna eintak?

    1 hr 12 min
  • 62. Blikksmiður? Nei...Stokkasmiður

    Stokkasmiður kom fyrst til sögunar í Mesopotamíu 4000 árum fyrir Krist. Stokkasmiður var iðnaður þar sem menn byrjuðu með ákveðin spil á hendi og þeir sem voru virkilega góður í þessum leik enduðu í konungsgildi sem var 10 manna hópur af bestu spilurum landsins. 

    Talið er að stokkasmiðir hafi verið hryggjarstykkið í siðmenningu Súmera alla tíð þangað til að einn daginn hurfu allir stokkasmiðir og enginn veit enn í dag hvað um þá varð. 

    Við getum þakkað þessum gömlum frumkvöðlum að hafa lagt upp grunn að öllum þeim frábæru stokkasmiðum sem eru til í dag. Þessi þáttur er tileinkaður stokkasmiðum. 

    1 hr 56 min
  • 61. Ég gefst upp

    Ég gefst upp... ég gaf þessu séns og ég er búinn að gefast upp. 

    Ég byrjaði að horfa á Lost og gafst upp á season 2...
    Ég gaf Adam Sandler tækifæri og fór á Jack & Jill í bíó, gafst upp og labbaði út í hlé...
    Svo spilaði ég spil sem allir voru búnir að segja að væri frábært enn ég fílaði það ekki öll 3 skiptin þannig ég gafst upp...

    Í þessum þætti förum við yfir spil þar sem við gáfumst upp...

    P.S.
    Hvar er Valdi? Við leituðum út um allt en gáfumst upp...


    1 hr 6 min

About Pant vera blár!

From the publisher's feed

Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því…