Pyngjan

Pyngjan

By PyngjanBusinessEducation
Download on the App Store

All Pyngjan episodes

  • Föstudagskaffið: Júlí bumbur

    Sendu okkur skilaboð!

    Því miður fyrir ykkur, kæru launþegar, þá hittir þessi föstudagur ekki á útborgunardag en örvæntið ekki því þessi föstudagur hittir á glænýtt föstudagskaffi. Í dag er boðið upp á alls konar og við vonumst sannarlega til þess að stytta ykkur stundirnar fram að útborgunardegi. Góðar stundir.

    53 min
  • Björn Berg fjármálaráðgjafi

    Sendu okkur skilaboð!

    Hann kíkti til okkar hann Björn Berg sem nýverið hóf óháða, sjálfstæða fjármálaráðgjöf. Í þessu stórskemmtilega spjalli var dreypt á ýmsu en við kynntumst manninum sjálfum, ræddum Saudi peninga, bókaútgáfu, hlutdeildarlán, lífeyrismál, lífið í eigin rekstri og margt fleira. Ekki láta þér detta í hug að missa af einni mínútu í þætti dagsins!

    1 hr 24 min
  • Föstudagskaffið: Einnar stjörnu Pyngja

    Sendu okkur skilaboð!

    Brúnt gull, fréttir vikunnar, launþegi vikunnar, Sonic branding og síst en ekki síðast, þá fékk Pyngjan einnar stjörnu einkunnargjöf. Þegar að við héldum að við værum allra, þá kom í ljós að svo var ekki. Success has enemies. Góða helgi.

    46 min
  • TripAdvisor: The Situation

    Sendu okkur skilaboð!

    Afbrigðilegur ársreikningaþáttur í kjölfar fjarveru Adda sem enn hefur ekki náð sér eftir að hafa innbyrt hreint etanól. Gísli Eyland, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Sýn og Fúndemental fjárfestir hljóp í skarðið og fór yfir þrjár ástæður þess að TripAdvisor gæti verið verulega undiverðlagt á hlutabréfamarkaði. Iddi hrútskýrði sögu félagsins og gaslýsti (urðaði yfir) Stephen Kaufner stofnanda fyrirtækisins.

    1 hr 24 min
  • Föstudagskaffið: Ástin sigrar alltaf

    Sendu okkur skilaboð!

    Kæru hlustendur! Þáttur dagsins er er fyrsti sinnar tegundar hjá Pyngjunni þar sem Addi og Iddi taka upp í gegnum fjarbúnað. Já, tæknin er ótrúleg og það er þátturinn einnig. Góða hlustun.

    50 min
  • Ásmundur Atlason markaðsstjóri Dominos á Íslandi

    Sendu okkur skilaboð!

    Hann mætti til okkar Ási frá Dominos sem er líklega yngsti markaðsstjóri Dominos í heiminum. Hann jós úr sínum viskubrunni yfir þá Adda og Idda sem spurðu hann spjörunum úr, allt milli himins og jarðar um áttunda undur veraldar sem Dominos á Íslandi er. 

    57 min
  • Föstudagskaffið: Við viljum verðstríð

    Sendu okkur skilaboð!

    Þáttur dagsins er af tímalausu tagi, enda liggur Addi á bakkanum á Tene að taka af sér tásumyndir þegar þessi þáttur kemur út. Þrátt fyrir það er þátturinn stútfullur af alls konar. heimsmeistari í sölu fasteigna, verðstríðið 2005, launþegi vikunnar, ríkisreikningar og verðbólgutips. Geri aðrir betur!

    50 min
  • Lóa Dagbjört framkæmdastjóri Lindex á Íslandi

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þessu stórkostlega viðtali fáum við til okkar Lóu Dagbjörtu framkvæmdastjóra Lindex sem hefur svo sannarlega fengið að kynnast velgengni. Þessi velgengni er þó vel verðskulduð enda var leið hennar á toppinn ekkert grín og í sumum tilfellum lyginni líkust. Hennar saga verður sögð í Pyngjunni í dag og við hvetjum hvert einasta mannsbarn til að leggja við hlustir!

    1 hr 21 min
  • Föstudagskaffið: Kúrekabanki: The good, the bad and the ugly

    Sendu okkur skilaboð!

    Það er sótsvart kaffið þennan fína föstudag en þeir Addi og Iddi eru mættir sem fyrr fyrir aftan míkrófónana að tuða. Þó er margt annað skemmtilegt í þættinum en fréttum vikunnar var að mestu sleppt, sér í lagi vegna þess að þátturinn er tekinn örlítið fyrir tímann og því getur margt breyst. Hver veit nema búið verði að reka Birnu bankastjóra þegar þátturinn kemur út. Látið ykkur amk. ekki bregða. Góða helgi!

    52 min
  • Snorri frá Jakobsson Capital

    Sendu okkur skilaboð!

    Hann kíkti til okkar hann Snorri Jakobsson sem heldur úti Jakobsson Capital. Við fórum yfir ferilinn, greiningar, markaðinn og bréfin í stórskemmtilegu og fræðandi viðtali.

    1 hr 25 min