
Sign up to save your podcasts
Or


Sendu okkur skilaboð!
Kæru vinir Pyngjunnar! Þeir eru mættir aftur saman tveir á bakvið hljóðnemana þeir Addi og Iddi með sjóðheitar fréttir og laglegar umfjallanir. Alls ekki missa af þessum, hann er rosalegur!
Sendu okkur skilaboð!
Í dag mætti til okkar afar sjaldgæfur blendingur launþega og frumkvöðuls. Svokallaður launkvöðull eða frumþegi - þið ráðið. Arnór starfar sem söluráðgjafi Business central hjá Origo á daginn en á kvöldin og um helgar sinnir hann sölu víns og kaffivéla. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá og hellingur af fróðleiksmolum um business central fyrir ykkur braskarana.
Sendu okkur skilaboð!
Í þessum stórskemmtilega þætti förum við yfir kampavínsmarkaðinn með Stefáni Einari en hann er ekki einungis fremsti blaðamaður landsins um þessar mundir heldur einnig sérfræðingur í kampavíni og líklega fremstur á landinu í þeim efnum einnig. Það var því vel við hæfi að fá hann til að skóla okkur til í þessum fræðum. Missið ekki af þessum!
Sendu okkur skilaboð!
Sigurð Sævar þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en hann er einn okkar allra efnilegasti myndlistamaður ef hann er þá ekki hreinlega kominn í flokk þeirra allra bestu. Við fórum yfir ferilinn og myndlistamarkaðinn ásamt fleiru í þessum stórskemmtilega þætti sem þú ættir ekki að missa af.
Sendu okkur skilaboð!
Brútal business þáttur fyrir ykkur þennan föstudaginn gott fólk. Vignir kíró er mikill hugsjónamaður og hefur náð stórbrotnum árangri á skömmum tíma sem eigandi Líf Kíró. Þáttur sem enginn með frumkvöðlablóð má láta fram hjá sér fara.
Sendu okkur skilaboð!
Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er stappaður af viðskiptum og vitleysu sem fyrr. Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist, þetta er Pyngjaaaan! Góða helgi kæru launþegar.
Sendu okkur skilaboð!
Það var stuð á þeim Adda og Idda þennan föstudaginn í stútfullum þætti af viðskiptum og vitleysu eins og svo oft áður. Allar kvartanir berist á [email protected]. Góðar stundir
Sendu okkur skilaboð!
Já þið sjáið það hér svart á hvítu kæru hlustendur að tilgátan er leyst og það er ekki vegna eldgoss né of sterkrar krónu. Þeir Addi og Iddi fara yfir víðan völl í þætti dagsins og segja má að hér sé eitthvað fyrir alla. Gangið hægt inn í helgina en ekki of hægt.
Sendu okkur skilaboð!
Föstudagur er genginn í garð og það þýðir aðeins eitt kæru hlustendur, það er Ylvolgur Kalli og business. Farið varlega inn í helgina.
Sendu okkur skilaboð!
Já það er drekkhlaðinn þáttur úr smiðju Pyngjunnar þennan föstudagsmorguninn. Fréttir, fróðleikur og frábær hlaðvörpun í boði Adda og Idda. Eigið yndislega helgi, kæru launþegar.