Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ágústa Ýr Jóhannesdóttir, 11 ára nemandi í Hörðuvallaskóla í Kópavogi, kvæði sem Davíð Björnsson, skáld í Winnipeg, orti til Guðnýjar Benediktsdóttur. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.