Ræðum það...

Ræðum það...

By Hlaðvarp Góðra samskipta - Ræðum það...Business
Download on the App Store

Ræðum það... episodes

  • Taktík, tár og takkaskór

    Taktík, tár og takkaskór

    Það eru 2 vikur til forsetakosninga og þjóðin er með öndina í hálsinum. Spennan sameinar okkur en sitt sýnist hverjum um frambjóðendur. Kjarnafylgi Katrínar virðist fast í 25% en hún leiðir nú aftur í könnunum. Munu villuráfandi sauðir á vinstri vængnum sem hafa stutt Katrínu rata heim í kjörklefanum? Eða sameinast þeir sem vilja eitthvað annað en forsætisráðherra fyrrverandi á Bessastaði og kjósa þann sem á mesta möguleika á að sigra Katrínu. Verður baráttan um að verða sá frambjóðandi svo hörð að það slettist á alla og Katrín siglir þessu heim?


    Allt um þetta í nýjasta Ræðum það... 


    Gestastjórnendur: Gísli Freyr Valdórsson, Diljá Ragnarsdóttir og Karl Pétur Jónsson


    Stjórnandi: Andrés Jónsson

    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem


    1 hr 8 min
  • Skyggnst á bak við tjöldin hjá leiðandi forsetaefnum með ráðgjöfum þeirra

    Ræðum það... heldur áfram að fylgjast með forsetakosningunum.

    Gestir: Sunna Kristín Hilmarsdóttir (í kosningateymi Höllu Hrundar) og Valgeir Magnússon (almannatengill og ráðgjafi Baldurs)

    Rætt er um áskoranir í kosningabaráttunni og hvernig frambjóðendur eru að reyna að ná til kjósenda.


    Stjórnandi: Andrés Jónsson

    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem

    39 min
  • Er loksins hægt að ræða það sem á að gera?

    Ræðum það... fer yfir atvinnumál og nýbreytni í umræðu um efnahagsmál af hálfu Samfylkingarinnar þar sem þau segja hvað þau vilja gera.


    Gestur: Kristrún Frostadóttir

    Gestastjórnendur: Sigríður Mogensen og Róbert Farestveit

    Stjórnandi: Andrés Jónsson

    1 hr
  • Mest spennandi forsetakosningar í 30 ár

    Ræðum það... fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði


    Gestastjórnendur: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður, Steinar Þór Ólafsson markaðsmaður og samskiptaráðgjafi og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands.

    1 hr 24 min
  • Ríkisstjórnin lafir en kosningabaráttan er hafin

    Ræðum það... er á pólitískum nótum að þessu sinni. 

    Rætt er um innkomu Kristrúnar Frostadóttur í útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar, einkarekstur í velferðarkerfinu, einkavæðingu ríkisfyrirtækja, eignarhald á bönkum, boðaða sölu Íslandsbanka, tímasetningu kosninga og möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar.

    Gestastjórnendur: Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB og Jón Þór Sturluson, háskólakennari og verðandi aðalhagfræðingur sænska fjármálaeftirlitsins.


    Stjórnandi: Andrés Jónsson

    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem

    1 hr 1 min
  • Kona með reynslu óskast á Bessastaði

    Ræðum það snýr aftur á nýju ári eftir fæðingarorlof stjórnandans. 


    Rætt er um stöðu ríkisstjórnarinnar, deilur um embættisfærslur Svandísar Svavarsdóttur, nýjustu skoðanakannanir, forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum, möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar, endurkomu Samfylkingarinnar frá fyrsta áratugnum, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, tímasetningu alþingiskosninga í ljósi forsetakosninga, forsetaframboð, kröfur til sigurstranglegra frambjóðenda, forsetatíð Guðna, borgarstjóraskipti og hvort Íslendingar séu til í tekjutengdar sektir fyrir umferðarlagabrot.


    Gestastjórnendur: Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og Kolbeinn Marteinsson, almannatengill hjá Athygli


    Stjórnandi: Andrés Jónsson


    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem

    1 hr 20 min
  • Þríeykið Andri, Anna og Gylfi þrusar í kringum landið í leit að flottasta sveitarstjórnarmanninum

    >>> Arfleifð Dags, Fossvogsbrúin, þrír stokkar settir á ís og veggjöld skoðuð, stjörnur úr bæjarstjórnarmálum á leið á þing, hringrásarhagkerfi stjórnmálanna, stjórnmálaumræða og hvernig verður Silfrið á nýjum tíma? <<<


    Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi, Gylfi Ólafsson bæjarráðsformaður á Ísafirði og Anna Sigrún Baldursdóttir skrifstofustjóri hjá borginni komu í Ræðum það… og fóru yfir sveitarstjórnarpólitík og landsmálapólitík.

    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem

    1 hr 18 min
  • >>> Hvað er að gerast í The Town? <<<

    Andri Ólafsson, fjölmiðlamaður og samskiptastjóri og Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi og myndlistarmaður fara yfir breytingar sem orðið hafa á afþreyingariðnaðinum í Hollywood með tilkomu Netflix og annarra streymisveitna.

    Þá ræðum við um hvers konar bíómyndir eru framleiddar í dag og hvers konar myndir eru hættar að borga sig. Þá upplýsir Sigurjón að hann myndi ekki endurgera Wild at heart en ef svo færi þá myndi hann fá Leonardo di Caprio og Jennifer Lawrence til að leika aðahlutverkin.

    Það komu all nokkrar fleiri bransasögur upp úr Sigurjóni og svo fórum við í smá hugleiðingar um íslenska kvikmynda- og fjölmiðlabransann í lok þáttar.


    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem


    Nefnt í þættinum:

    The Town - Matt Belloni: https://podcasts.apple.com/is/podcast/the-town-with-matthew-belloni/id1612131897?i=1000624819844

    1 hr 14 min
  • Er X.com útpælt hjá Elon Musk eða ekki, hvernig kaupir maður fyrirtæki með vini sínum

    >>> Er X.com útpælt hjá Elon Musk eða ekki, hvernig kaupir maður fyrirtæki með vini sínum <<<


    Steinar Þór Ólafsson og Arnar Freyr Magnússon komu í Ræðum það… og fóru yfir eigin kaup á steinsmiðjunni Rein.


    Einnig var rætt um:

    - Starfsframann og hvort það sé öruggara val að feta einstigið sem stjórnandi eða vera í eigin rekstri

    - Hvort sé álitið flottara og hvort sé líklegra til árangurs, að kaupa fyrirtæki eða stofna sprotafyrirtæki

    - Reynslu Steinars af því að vinna sig upp metorðastigann sem stjórnandi í Borgartúni

    - Muninn á því að fjármagna kaup á fyrirtæki á Íslandi og í Bandaríkjunum

    - Hvernig Arnar og Steinar fjármögnuðu kaupin á Rein og hversu stóran hlut hver heldur á

    - Hvað hver og einn starfsmaður fyrirtækis kostar í raun

    - Hvort munur sé á viðhorfi stjórnmálaflokka til atvinnulífsins eða hvort litlu skipti hver sé við völd

    - Hindranir fyrir þau sem vilja stofna fyrirtæki, ekki síst innflytjendur sem hafa fáar aðrar leiðir til að skapa sér aukna velsæld

    - Stærðaróhagkvæmnin á Íslandi, samkeppni innanlands og utan og læsi almennings á hagnaðartölur fyrirtækja

    - Afhverju mörg íslensk fyrirtæki skiluðu góðum hagnaði árið 2021

    - Hversu mikill hluti landsmanna vinni hjá smærri fyrirtækjum eða örfyrirtækjum

    - Afhverju Arnar og Steinar eru að miðla ferlinu við að kaupa og reka fyrirtæki

    - Afhverju stofnendur og fjölskyldur þeirra vilja oftast of hátt verð til að selja fyrirtækið sitt

    - Hvernig sjálfstæðir atvinnurekendur eru eiginlega aldrei í fríi en eru á móti sinn eigin herra

    - Hversu erfitt er að eignast vini eftir þrítugt


    Stef: Ræðum það - Dire & Nolem


    Nefnt í þættinum:

    Alex Hormozi: https://www.youtube.com/@AlexHormozi

    Small Business Administration: https://www.sba.gov/

    Traction: https://www.amazon.com/Traction-Get-Grip-Your-Business/dp/1936661845/

    Alfa framtak: https://www.alfaframtak.is/

    Buy and build: https://www.amazon.com/Buy-Then-Build-Acquisition-Entrepreneurs-ebook/dp/B07JKM2F5Q

    Steinsmiðjan Rein: https://www.rein.is/

    1 hr 37 min

About Ræðum það...

From the publisher's feed

Hlaðvarp um rekstur, samskipti, stjórnun og starfsframa

More shows like Ræðum það...

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners