Ræðum það...

Ræðum það...

By Hlaðvarp Góðra samskipta - Ræðum það...Business
Download on the App Store

Ræðum það... episodes

  • Námsmenn farnir að kaupa Teslur, Brexit, Íslandsbanki, verðbólga, lán og staðan á fasteignamarkaði

    Farið var yfir efnahagsástandið í fortíð, framtíð og nútíð í nýjasta þætti af Ræðum það...

    Er réttlætanlegt að við vitum hvað fasteignir fólks seldust á? Hvernig virka lán fyrir fyrstu kaupendur og hvernig á maður að horfa á fasteignakaup eftir miklar hækkanir síðustu ára? Hvernig væri hægt að leysa húsnæðisvandann og mæta þörf fólks sem flyst hingað til að vinna í nokkur ár? Er leigumarkaðurinn betri með eða án ríkisafskipta? Er óþól hægra fólks fyrir skattheimtu, ríkisafskiptum og eftirlitsstofnunum einkenni á miklu velsældarskeiði í samfélaginu? Er velsældin komin til að vera og kemur kreppan kannski ekki sem lengi er búið að vara okkur við? Er Tesla hætt að vera stöðutákn nú þegar þúsundir Íslendinga hafa fjárfest í slíkum bíl? Hvernig fór Brexit með Breta og eru mörg framboð í stjórn Íslandsbanka og fleiri fyrirtæki til marks um heilbrigðari markað?

    Við vörpuðum fram þessum og fleiri spurningum í þættinum.

    ---

    Gestir: Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur, Kolbeinn Marteinsson almannatengill og Ólafur Finnbogason fasteignasali.

    Stjórnandi: Andrés Jónsson


    1 hr 11 min
  • "Góð sala Íslandsbanka reynist verða dýrkeypt vegna lögbrota, sekta og skerts trausts"

    Óumdeilt er að gott verð fékkst í sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka, en munu lögbrot og ámælisverð vinnubrögð við söluna þýða tapað traust og að frekari sala á hlut ríkisins í bönkum tefjist? Hversu mikið áfall er það fyrir Bjarna Benediktsson sem taldi bankasölu vera einn helsta pólitíska árangur sinn í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hvernig líður stjórnarflokkunum í samstarfinu? Er þreyta í mannskapnum þrátt fyrir límið á milli formannanna þriggja? Jón Gunnarsson heldur áfram að auka eigið pólitíska kapítal og rýra kapítal ríkisstjórnarinnar eftir að honum var skipt út af í stjórnarráðinu. Hver eru formannsefnin í Sjálfstæðisflokknum á þessari stundu? Er Svandís að styrkja sig í VG með stöðvun hvalveiða? En Þórdís með lokun sendiráðsins í Moskvu? Sem eftir á virtist vera vel tímasett miðað við panikk-ið sem fór af stað í borginni á meðan sólarhringsbylting Wagner og Prigozhin gekk yfir. Hver er staða Pútíns eftir þessi ósköp?


    Gestir: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (Obba), þingmaður Viðreisnar og Grétar Theódórsson almannatengill hjá Spor almannatengslum. Stjórnandi: Andrés Jónsson


    1 hr 8 min
  • Hvaða hverfi verða dýr í framtíðinni? Íbúðir í stað skrifstofuhúsnæðis í miðborginni? Aukin forsala íbúða?

    Koma skammtíma-leiguíbúðir í stað skrifstofuhúsnæðis á efri hæðum í miðborginni? Hvaða hverfi borgarinnar verða dýr í framtíðinni? Hvers vegna borgar sig oft ekki að kaupa illa farið húsnæði, gera upp og selja aftur? Er aukin forsala íbúða (áður en þær eru byggðar) framtíðin í fasteignasölu og mun það tryggja stöðugri uppbyggingu. Vill fólk °allt í einu búa við alveg niður við sjó á Íslandi og mætti breyta grasbalanum framan við Ægissíðu í þéttingarreit?

    Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það...’


    Gestir: Ólafur Finnbogason, fasteignasali og Hrannar Pétursson ráðgjafi og einn eigenda Vinnustofu Kjarvals. Stjórnandi: Andrés Jónsson

    1 hr 15 min
  • Selenskí til Íslands með kafbáti? Er fólk ekki að fatta hversu stór fundur þetta verður?

    Er fundurinn í Hörpu stærri viðburður en fundur Reagans og Gorbachev í Höfða? Hvernig kemur Selenskí til fundarins og tengist ný lendingarheimild kafbáta við strendur landsins því eitthvað? Enn stækkar Samfylkingin í könnunum en mun það endast? 28 mánuðir eru til kosninga og margt á eftir að gerast. Er einlæga og krúttlega X-kynslóðin búin að taka við í viðskiptalífinu? Gerbreytt mynd blasir við okkur í kauphöllinni þar sem 68-kynslóðin réði ríkjum áður, rétt eins og hún gerði í stjórnmálunum. Geta millennials eitthvað látið að sér kveða á Alþingi eða er þeirra stjórnmálaafstaða of húðuð með íróníu?


    Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það...’


    Gestir: Karítas Ríkharðsdóttir samskiptasérfræðingur og Kolbeinn Marteinsson almannatengill og framkvæmdastjóri Athyglis. Stjórnandi: Andrés Jónsson

    1 hr 16 min
  • Getur pólitík þrifist í glerbúrum, hvað eiga Kristrún Frosta og Keir Starmer sameiginlegt og fer Guðni fram aftur?

    Aðstoðarmenn í glerbúrum, ríkið klárar flott hús, Kristrún Frosta og Keir Starmer eru “safe pair of hands” í augum kjósenda, Samfylkingin gaf Pírötum stjórnarskrána og Viðreisn ESB-málið, Twitter, Elon Musk og meginstraumsfjölmiðlar, skortur á nýjum andlitum í umræðunni, hvað skín í gegn ef maður les allar ræður Vigdísar Finnbogadóttur, mun Guðni Th. fara fram aftur og vantar meiri átök í íslenska stjórnmálaumræðu?

    Þetta og margt fleira í nýjasta þætti af ‘Ræðum það’.

    Gestir: Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Andri Ólafsson, samskiptastjóri og sjónvarpsmaður og Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri og fyrrverandi aðstoðarmaður formanns Samfylkingarinnar. Stjórnandi: Andrés Jónsson

    1 hr 22 min
  • Vörumerki, milljón Íslendingar og mjúk lending efnahagslífsins

    Ræðum það snýr aftur og nú á sunnudegi >>>


    Aðalgestur þáttarins var Tatiana Hallgrímsdóttir, forstöðumaður menningarmála á Edition-hótelinu.

    Gestastjórnendur voru Gunnar Þorvaldsson, sjálfstætt starfandi strategisti og Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðsmála Nóa Síríus.

    Rætt var um markaðsmál, Mark Ritson, vörumerki, ferðaþjónustu, fjölgun ferðamanna og fjölgun Íslendinga, borgarskipulag, umferð, páskaegg, viðhorf Íslendinga í verðbólgu og kreppu og trú viðstaddra á mjúka lendingu efnahagslífsins.


    Þá er í lok þáttarins nýr liður "Pósthólfið" - þar sem spurningum til þáttarins er svarað. Báðar spurningarnar sneru að þessu sinni að Linkedin, hvernig eigi að stilla upp prófíl svo að þeim sem starfi við ráðningar líki og hvernig eigi að yfirvinna aulahrollinn og stinga sér út í umræðuna á Linkedin með færsluskrifum og athugasemdum.


    Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.


    ---

    ✉️ Sendið okkur spurningar á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.

    1 hr 8 min
  • Lífsgæði, sánur, vinátta og fleiri umræðuefni snemm-miðaldra fólks

    Ræðum það hefur aldrei komið jafn þétt út >>>

    Aðalgestur þessa þáttar var Kolbeinn Marteinsson, almannatengill.

    Gestastjórnendur voru Sigríður Rakel Ólafsdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá Öskju og Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV. 

    Rætt var um hvað fólk á þessum aldri metur til lífsgæða, um sánur, búsetu, vináttu á gamals aldri og ýmislegt fleira. (Athugið að þátturinn var tekinn upp fyrir nokkru síðan.)

    Hér er tengill á fróðleik um heilnæmi sánuferða, sem minnst var á í þættinum: https://www.foundmyfitness.com/topics/sauna

    Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.


    ---

    ✉️ Sendið okkur spurningar um hvaðeina á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.

    1 hr 2 min
  • Leitarsjóðir, ChatGPT og efnahagur í lausu lofti

    Ræðum það rúllar af stað á ný á nýju ári >>>

    Aðalgestur þáttarins var Kristín Soffía Jónsdóttir "leitari".

    Gestastjórnendur að þessu sinni voru Gísli Brynjólfsson, forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair, Magnús Hafliðason, forstjóri Domino´s á Íslandi og Haraldur Þorleifsson, starfsmaður Twitter.

    Rætt var um möguleika og hættur við gervigreindartækni eins og ChatGPT, rætt var um starfsferil leitara en Kristín Soffía hyggst finna rekstur til að kaupa og er nú þegar með fjármagn í leitarsjóði að baki sér og loks var aðeins farið inn á hvort framundan sé efnahagskreppa.

    Stjórnandi Ræðum það er Andrés Jónsson.


    ---

    ✉️ Sendið okkur spurningar um hvaðeina á [email protected] og við reynum að svara þeim í næsta þætti.

    41 min
  • Ræðum það....Andrés og Tinni gera upp árið
    Í þessum þætti af Ræðum það... gera Andrés og Tinni upp árið 2021, hvað stóð upp úr og hvað getum við lært?
    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta sérhæfðs ráðgjafafyrirtækis á sviði almannatengsla, stefnu og stjórnendaleitar. Þar sem við ræðum við fólk sem okkur finnst áhugavert og er að gera spennandi hluti. Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
    1 hr 27 min

About Ræðum það...

From the publisher's feed

Hlaðvarp um rekstur, samskipti, stjórnun og starfsframa

More shows like Ræðum það...

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners