Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

All Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
    Fimmtudagur 1. október
    Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
    Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kærði leyndina. Á sunnudag verða sýndar saman í Bíó Paradís heimildarmyndirnar Lalli Johns og Hlemmur, báðar veita innsýn í undirheima Reykjavíkur. Ólafur Sveinsson leikstjóri Hlemms, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir verkefnastjóri á Kvikmyndasafni, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða myndirnar og undirheimana við Gunnar Smára. Hvað gerist þegar karlmenn sem hafa alla ævi vanist því að vera sterkir og sjálfstæðir þurfa skyndilega að þiggja hjálp? Matti Osvald markþjálfi hefur um árabil leitt karlahópa í Ljósinu, þar sem krabbameinsgreindir menn koma saman og deila reynslu sinni. Umsjón hefur Ásdís Olsen. Í tilefni af umræðu um gervigreind ræðir Gunnar Smári um mannlega hugsun við Finn Déllsen prófessor í heimspeki, en það er einmitt mannleg greind sem vélunum er ætlað að líkja eftir. Þarf að fjölga þingmönnum til að jafna atkvæðavægi? Þeirrar spurningar spyr doktor Þóroddur Bjarnason byggðafræðingur vegna hugmynda um breytingar. Björn Þorláks ræðir við hann.
    5 hr 2 min
  • Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
    Miðvikudagur 30. september
    Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
    Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Rebecca Lív Biraghi barnastjarna og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona segja Gunnari Smára frá Svikasögum í Borgarleikhúsinu. Ingveldur Ýr Jónsdóttir, formaður KÓRÍS, Margrét Bóasdóttir frá Landssbambandi blandaðra kóra, Arnar Halldórsson frá Karlakórasambandinu og Sunna Karen Einasdóttir frá Ungíkór- nýju sambandi barna og ungmennakór ræða við Björn Þorláks um kórsöng og kórstarf og nýjan áfanga og viðurkenningu.
    4 hr 52 min
  • Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
    Þriðjudagur 29. september
    Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
    Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir samlífi örveru og manna. Í samtali við Björn Þorláks kallar þær almenning til aðstoðar í þágu vísindanna. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni með Birni Þorláks. Í kvöld ræða þeir skuldbindingar SÁÁ og Bókun 35. Guðmundur Ragnar fór til Brasilíu til að læra shamanisma hjá töfralækni Huni Kuin-frumbyggja í Amazonregnskóginum. Í samtali við Ásdísi Olsen ræðir hann hjónaband sitt með dóttur töfralæknisins í Pinuya-þorpinu. Þar hefur hann fundið innri frið, sátt og langþráða tilfinningu að tilheyra.
    3 hr 55 min
  • Rauða borðið 28. sept - Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar
    Mánudagur 28. september
    Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar
    Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig vandinn horfir við henni. Thomas Möller já-ari og Erna Bjarnadóttir nei-ari ræða við Gunnar Smára um stöðu Íslands gagnvart Evrópu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess hversu langt Evrópusambandið er til í að teygja sig Kanada. Óðinn Jónsson, blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv, spáir í spilin um framtíð frétta og fjölmiðlunar hér á landi í samtali við Björn Þorláks. Hvað breytist þegar keppinautar Rúv hverfa frá þjónustu, einn á fætur öðrum?
    5 hr 36 min
  • Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
    Sunnudagurinn 27. september
    Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
    Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 38 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví
    Laugardagur 26. september
    Helgi-spjall: Björn Leví
    Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.
    1 hr 53 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39
    Föstudagur 25. september
    Vikuskammtur: Vika 39
    Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
    1 hr 12 min
  • Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók
    Fimmtudagur 24. september
    Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók
    Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreindarkapphlaup Kína og USA, heimsendaspár og hvernig gervigreindin mun hafa áhrif á samfélagið og ekki síst okkur sjálf. Bjarni Harðarson útgefandi og rithöfundur segir Gunnari Smára frá ferðum sínum um heiminn, en honum finnst best að ferðast einn til staða þar sem hann kann ekki tungumálið. Mao bannaði Kínverjum að stunda Qigong til að koma í veg fyrir sjálfstæða hugsun og frjálsan vilja, segir Þorvaldur Ingi Jónsson Qigong-kennari. Í viðtali við Ásdísi Olsen útskýrir hann kínverska heilsutækni.
    5 hr 16 min
  • Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring
    Þriðjudagur 22. september
    Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring
    Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlistarmaður, leikhúskona og margt fleira hefur sent frá sér skáldsöguna Varkár, sem er einskonar skáldævisaga og fjallar um konu sem heitir Margrét og lifir lífi sem er líkt lífi höfundarins. Margrét segir Gunnari Smára frá bókinni og sjálfum sér, og muninum á þessu tvennu. Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø ræðir við Gunnar Smára um ásælni Trump til Grænlands, varnarsamninga Grænlands og Ísland, tengingu Kanada til Evrópu og hverju það kann að breyta fyrir okkur og norðurslóðir. Ásdís Olsen ræðir við Elísabetu Reynisdóttur (Beta Reynis), næringarþerapisti og næringarfræðing um togstreitu við akademíuna og hvernig hún hefur leyst úr áföllum og lært lexíur.
    4 hr 57 min