Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Tindersticks - Massive Attack ofl.
    Mest fer fyrir ensku hljómsveitinni Tindersticks sem er á leiðinni til landins til að halda tónleika þriðjudaginn 29. október. Hljómsveitin er að koma í þriðja sinn til íslands - Spilaði á Nasa 2008 og svo í Hljómahöllinn í Reykjanesbæ 2020.
    Óli P. spjallað við Stuart Staples söngvara Tindersticks á Zoom um daginn um nýju plötuna, æskuna – áhrifavalda, lagasmíðar og fleira.
    Kris Kristofferson kemur líka við sögu í þættinum, Óli P. spjallaði við hann í síma fyrir 20 árum og við heyrum brot af því og brot frá tónleikunum hans í Laugardalshöll 14. Júní 2004 sem Rás 2 hljóðritaði. Kris lést síðasta sunnudag - 88 ára að aldri.
    Við heyrum líka aðeins í Leonard Cohen í Laugardalshöll sumarið 1988 og Robert Smith úr The Cure segir okkur örlítið frá væntanlegri plötu – og nýja lagið þeirra – Alone.
    En við byrjum í grænum almenningsgarði í Bristol með Massive Attack.
    1 hr 52 min
  • Spacestation - Dúkkulísurnar Erla og Gréta - Mike Stern og Gullnöglin
    Í Rokklandi dagsins verður farið víða - það er klisja en það er satt.
    Við ætlum að hlusta á gítarrokk og barrokk-popp og ástarsöngva og jazz og allt mögulegt – og allt er þetta músík og allt er þetta góð músík.
    Ég hitti tvo af ungu mönnunum í rokkhljómsveitinni Spacestation um daginn. Spacestation er skemmtileg hljómsveit sem minnir soldið á Strokes og Velvet Underground
    og Oasis jafnvel? Spacestation er að spila á Iceland Airwaves og þeir eru með stóra drauma þessi ungu menn.
    Dúkkulísurnar frá Egilstöðum hafa verið starfandi í meira en 40 ár. Þær eru ekkert alltaf að en hljómsveitin er starfandi – allar stelpurnar vinkonur og eru meira að segja fleiri í dag en í upphafi. Tvær þeirra – Erla Ragnarsdottir söngkona og Gréta gítarleikari voru að senda frá sér plötu bara tvær – Lífið er ljóðið okkar. Ég hitti þær og spjallaði við þær á föstudaginn þegar þær héldu lítið útgáfuboð á nýjum litlum bar og veitingahúsi og hóteli við Ránargötu.
    Og svo er það gítarinn – Gítarveisla Bjössa Thor - 20 ára afmæl fór fram fimmtudagskvöldið í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Þar var margt um manninn – smekkuppselt og tveir erlendir gestir; Robben Ford og Mike Stern sem spilaði með Blood Sweat and tears í upphafi ferils síns – spilaði svo með Jaco Pastorius og Miles Davis – og hann er handhafi Gullnaglarinnar í ár. Önnur gítarhetja – Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld spjallaði við Mike Stern fyrir Rokkland – hann veit hvernig á að spyrja gítarleikara spjörunum úr. Og þetta er ekki allt – það er meira!
    1 hr 52 min
  • Emiliana og Miss Flower + Eivør og Enn
    Emiliana Torrini er aðalgestur Rokkkands þessa vikuna- en hún sendi frá sér plötu núna í sumar sem heitir Miss Flower.
    Miss Flower er einskonar konsept-plata – byggð á sendibréfum til móður vinkonu Emiliönu sem býr í London sem var ekki öll þar sem hún var séð... Hún hét Geraldine Flower – Miss Flower.
    Emiliana bauð mér heim í kaffi í vikunni í Kópavoginn.
    Eivør Pálsdóttir var líka að senda frá sér plötu – 10undu plötuna – hún heitir ENN. Eivør kom með hljómsveitinni sinni hingað til Íslands um síðustu helgi og hélt tónleika í Silfurbergi í Hörpu. Hún spilaði alla plötuna og önnur lög líka – Jónas Sen gaf tónleikunum 5 stjörnur – fullt hús í dómi á Vísi. Ég spjallaði aðeins við Eivør eftir tónleikana – heyrum það í þættinum.
    En við minnumst líka tónlistarmanns sem féll frá á dögunum – hann hét J.D. Souther og samdi mörg lög sem margir þekkja.
    1 hr 51 min
  • Melódíski bassalínumaðurinn Jakob Smári
    Gestur Rokklands þessa vikuna er Jakob Smári Magnússon – tónlistarmaður og einn besti og mesti bassaleikari þjóðarinnar.
    Hann var í Tappa tíkarrassi með Björk og þeim í Rokki í Reykjavík – var í Das Kapital með Bubba eftir að Egó lagði upp laupana. Hann var í Grafík með Helga Björns og stofnaði svo Síðan Skein Sól með Helga.
    Jakob hefur spilað mikið með Bubba gegnum tíðina og er á mörgum bestu plötum Bubba.
    Hann var í Pláhnetunni með Stebba Hilmars og þeim félögum og ferðaðist svo um allan heim í nokkur ár með John Grant.
    Jakob varð sextugur í sumar og af því tilefni er hann með tónleika í Bæjarbíó í Hafnarfirði 20. september nk og þar ætlar hann að spila einu sinni enn haug af lögum sem hann hefur oft spilað og spilar í á plötunum sem þau komu út á - Das Kapital – Tappai Tíkarrass - Grafík – SSSÓL og svo framvegis –
    Og Jakob talar í þættinum um lögin – bassann – músíkástina og lífið sem hefur genbið upp og niður hjá honum eins og okkur hinum.
    1 hr 55 min
  • OASIS snýr aftur
    Hljómsveitin Oasis sprakk í loft upp í ágúst 2009 rétt áður en hún ætti að stíga á svið á tónlistarhátíðinni Rock ein Seine í París. Síðan þá hafa bræðurnir í hljómsveitinni, lagasmiðurinn Noel Gallagher og söngvarinn Liam Gallagher ekki talast við - þar til núna nýlega og nú er kominn á friður milli bræðranna. Byssurnar eru þagnaðar – stjörnurnar hafa raðað sér upp – biðin mikla er á enda – komið og sjáið – þessu verður ekki sjónvarpað, sagði í fréttatilkynningu frá hljómsveitinni sem var birt á heimasíðu hennar 27. ágúst sl.
    Þá var auglýst tónleikaferð um Bretland næsta sumar - 17. tónleikar í Wales, Skotlandi, Írlandi og Englandi, og það seldust meira en ein milljón miða í einum grænum. MIðasölukerfi fóru á hliðina og milljónir manna sem reyndu að kaupa miða fengu enga miða. Það lítur út fyrir að Oasis ætli að túra um allan heim á næsta ári og kannski árin þar á eftir, og í dag er fyrsta plata sveitarinnar; Difinitely Maybe sem kom út 1994 á toppnum á breska vinsældalistanum. Safnaplatan Time Flies 1994-2009 er í þriðja sæti og í því fjórða er önnur plata Oasis - What´s the story morning glory sem kom út 1995.
    Rokkland hefur fylgst vel með Oasis allt frá upphafi 1995 og í þætti vikunnar rifjum við upp brot úr gömlum þáttum og skoðum fyrstu árin í sögu þessarar kraftmiklu og merkilegu hljómsveitar frá Manchester á Englandi.
    1 hr 52 min
  • XXX Rottweiler
    Gestir Rokklands eru 2 Rottweilerhundar, þeir Erpur (Blazroca) og Bent.
    Það eru 24 ár frá því að 110 Rottweilerhundar úr Árbænum sigruðu í Músíktilraunum í Tónabæ og Rottweiler varð fyrsta hljómsveitin til að sigra í þeirri merkilegu keppni sem var ekki hefðbundin hljómsveit með gítar – bassa og trommum.
    Rottweiler sló í gegn heldur betur og upp spruttu rappkrakkar um allt land og það var búinn til nýr flokkur á Íslensku tónlistarverðlaununum – Rapp ársins!
    En það voru ekki allir hrifnir af þessum kjaftforu ungu mönnum, þeir voru t.d. bannaðir í mörgum félagsmiðstöðvum og á Samfés.
    Þeir hafa gefið út tvær plötur – fyrri kom út 2001 og seinni 2002.
    En XXX Rottweiler lifir góðu lífi og þeir voru með risa-tónleika í Laugardalshöll snemma í sumar, einskonar rapp-festival og það var uppselt.
    Það er Rottweiler í Rokklandi í dag og Erpur og Bent eru taum-lausir og geltandi...
    1 hr 54 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners