Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Hüsker Dü seinni hluti, Músíktilraunir, Aldrei fór ég suður, Björgvin Gíslason
    Í Rokklandi í dag heldur Elvar Freyr Elvarsson áfram að segja okkur sögu bandarísku hljómsveitarinnar Hüsker Dü Í fyrri hluta þáttar dagsins koma Músíktilraunir við sögu – en fyrsta undankvöld af fjórum er i kvöld í Norðurljósum í Hörpu kl. 19.30.
    Aldrei fór ég suður kemur við sögu líka, en Músíktilraunir og Aldrei fór ég suður tengjast. Aldrei-stjórinn Mugison og Björgvin Gíslason tengjast líka og þeir koma báðir aðeins við sögu líka – og annað fólk.
    1 hr 52 min
  • Hüsker Dü
    Mál málanna í Rokklandi í dag er bandaríska pönkrokksveitin Hüsker Dü. Elvar Freyr Elvarsson er gestaumsjónarmaður í Rokklandi og segir okkur frá þessari merkilegu sveit. Hann hafði uppi á bassaleikaranum Greg Norton og spjallar við hann í þættinum auk þess að segja sögu Hüsker Dü. Það er í seinni hluta þáttarins. Í Fyrri hlutanum er músík úr ýmsum áttum.
    1 hr 53 min
  • Reggíland
    Rokkland verður Reggíland á sunnudaginn kemur, en þátturinn verður tileinkaður gosögninni Bob Marley; tónlist hans og arfleið. Freyr Eyjólfsson leysir Óla Palla af og fer yfir sögu þessa áhrifaríka listamanns og ræðir við Kidda í Hjálmum. Bob Marley í Rokklandi á sunnudag klukkan 16:00.
    1 hr 48 min
  • Gulli og Finnbogi og Muscle Shoals
    Við förum í tónlistarferðalag til Bandaríkjanna í þættinum í dag og sögumaður er Gunnlaugur Sigfússon sem sá um þáttinn Plötuskápinn hérna á Rás 2 ásamt Halldóri Inga Andréssyni og Sigurði Sverrissyni fyrir nokkrum árum.
    Gulli og vinur hans Finnbogi Marinósson fóru saman í músík-bíltúr um Bandaríkin í fyrra og heimsóttu staði semþeir höfðu lesið um í músíkblöðum og bókum síðan þeir voru unglingar. Þeir óku 8.000 kílómetra, fóru til Memphis, Clarksdale, Nashville, Chicago og Muscle Shoals til dæmis.
    1 hr 52 min
  • Laufey - lífið, listin og Grammy verðlaunin
    Rokkland í dag er að mestu helgað Laufey Lin Jónsdóttur sem hefur slegið í gegn um allan heim á eigin forsendum og að mestu heiman frá sér. Hún hlaut Grammy verðlaun sunnudaginn fyrir viku í flokknum Best Traditional Pop Vocal Album. Þau sem hafa hlotið þessi sömu verðlaun er fólk eins og Tony Bennet, Frank Sinatra, Joni Mitchell, Rod Stewart og Paul McCartney.
    Laufey ólst upp í Reykjavík og Washington DC. Hún fór í Versló og þaðan til Berkeley school of music í Boston á skólastyrk. Hún útskrifaðist á netinu í Covid og sló svo í gegn á netinu með myndböndum sem hún póstaði á samfélagsmiðla. Hún býr í Los Angeles en er á leiðinni til Íslands til að spila þrjú kvöld í röð í Eldborg í mars, en þeir tónleikar eru liður í hátt í 100 tónleika-túr um Bandaríkin og Evrópu.
    Halla Harðardóttir spjallaði við Laufey í desember fyrir þáttinn Undir álögum sem var á dagskrá Rásar 1 um jólin. Rokkland fékk góðfúslegt leyfi til að nota brot úr því viðtali í þátt vikunnar dagsins.
    Joni Mitchell og fyrstu Grammy verðlaunin (1959) koma líka við sögu í dag.
    1 hr 52 min
  • Patri!k og Dundur
    Í Rokklandi dagsins eru í aðalhlutverki tveir ólíkir tónlistarmenn: Dundur (Guðmundur Höskuldsson) frá Neskaupsstað sem sendi frá sér plötuna Tilvera síðasta haust, intrumental-plata þar sem gítar og Hammond-orgel eru í aðalhlutverki, og svo Patri!k (Prettyboitjokko) frá Hafnarfirði sem heldur betur kom, sá og sigraði á árinu sem leið.
    1 hr 53 min
  • Vévaki og Lón á Eurosonic
    Hljómsveitirnar Lón og Vévaki eru tvær af fjórum nöfnum frá íslandi sem spiluðu á Eurosonic festival í Hollandi um miðjan janúar. Rokkland var á svæðinu og ræddi við báðar sveitir. Lón er tríó þar sem Valdimar Guðmundsson syngur á ensku aðalega og Vévaki er kvartett sem syngur forn kvæði og ný í fornum stíl. Meðlimir sveitarinnar eru heiðin og færa blót í tónlistarform með tónlist sinni.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners