Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Brot frá 2023
    Ég ætla í þessum fyrsta Rokklandsþætti nýs árs rifjum við upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum ársins 2023.
    Við heyrum í Nönnu úr OMAM, Emiliönu Torrini, Bubba, Isafjord, Kvikindi, Eyjólfi Kristjánssyni, Heidrik frá Færeyjum, Alonu frá Úkraínu, Sinéad O´Connor., Elvis Costello, Jeff Beck ofl.
    Yardbirds / Heart full of soul
    Jeff Beck / Midnight Walker
    Jeff Beck / Beck´s Bolero
    Jeff Beck / Over the rainbow
    Isafjord / falin skemmd
    Isafjord / hjartastjaki
    Eyjólfur Kristjánsson / Ástarljóð á vetrarbraut
    Bergþóra Árnadóttir / Verkamaður
    Kvikindi / Ungfrú Ísland
    Kvikindi / Efst á messenger
    Heidrik / Immature
    Heidrik / Oceania
    Emiliana Torrini / Wedding song
    Emiliana Torrini / racing the storm
    Utangarðsmenn / Hiroshima
    John Lennon / Imagine
    Kalush Orchestra / Stefania
    Jamala / 1944
    Sasha Bole / 3i
    Nanna / How to start a garden
    Nanna / The vine
    Elvis Costello / Magnificent hurt
    Elvis Costello / What´s so funny about peace, love and understanding
    Sinéad O?Connor / Nothing compares 2 U
    Sinéad O?Connor / This is a rebel song
    Elín Hall / HE I M
    Elín Hall / Vinir
    1 hr 55 min
  • Purrkur Pillnikk - Orð fyrir dauða og jól
    Senn líður að jólum og í dag er síðasta Rokkland fyrir jól. Það verður smá jólastemning í seinni hlutanum, en í fyrri hlutanum er það Purrkur Pillnikk í tilefni af því að það var að koma út RISA-vinyl-plötukassi/pakki með Purrki Pillnikk. Pakkinn ber heitið Orð fyrir dauða og hefur að geyma alla músík sem hljómsveitin gaf út á þeim 18 mánuðum sem hún starfaði, 1981 til 1982, og áður óútgefnar tónleikaupptökur OG nýjar upptökur sem voru í Sundlauginni í Mosó fyrr á árinu.
    Pakkinn inniheldur líka stóran og mikinn bókling með myndum, lista yfir alla tónleika hljómsveitarinnar á sínum tíma og frásagnir ýmissa af Purrki Pillnikk - Purrkurinn og ÉG.
    Purrkur Pillnikk var eitt aðal bandið í Rokki í Reykjavík á sínum tíma og frá þessum ungu mönnum kom eiginlega stefnuyfirlýsing pönkkynslóðarinnar á Íslandi: Það skiptir ekki máli hvað maður getur - heldur hvað maður gerir. Þessir strákar úr Reykjavík sögðu okkur krökkunum á þessum tíma að maður þyrfti ekkert að kunna að spila gítarsóló til að vera í hljómsveit - þeir sjálfir kynnu sama og ekkert en samt væru þeir í hljómsveit. Þetta varð til þess að upp spruttu hljómsveitir um allt land, Músíktilraunir fæddust svo 1982 og svo framvegis.
    3 af liðsmönnum Purrksins voru með í Kuklinu og svo í framhaldinu Sykurmolunum sem nokkrum árum síðar prýddi svo forsíðu stóru bresku músíkblaðanna NME og Melody Maker.
    Purrk Pillnikk skipuðu Einar Örn - rödd, @Bragi Ólafsson á bassa, Friðrik Erlingsson á gítar og Ásgeir Bragason á trommur. Ásgeir er látinn en hinir þrír ásamt Sigtryggi Baldurssyni sem var trommari Sykurmolanna- og í hljómsveitinni ÞEYR í Rokki í Reykjavík, komu saman og spiluðu í Smekkleysubúðinni við Hverfisgötu fyrir hálfum mánuði. Ég náði að plata í Rokkland þá Friðrik og Einar Örn til að spjalla um Purrk Pillnikk - Íslandi árið 1981 - síðpönk - The Fall - afturgöngur - skólahljómsveitir - Gramm - sköpun - leiðindi - Utangarðsmenn - íslensku, og meira að segja jólalög.
    1 hr 50 min
  • Shane MacGowan hvíl í friði og Elín Hall
    Rokkland dagsins er tvískipt. Elín Hall (Elín Sif Hall) kemur í heimsókn og við spjöllum um nýju plötuna hennar og svo minnumst við Shane MacGowan söngvara og skálds þjóðlagapönkarana í The Pogues. Fókusinn er á anti-jólalagið Fairytale of New York sem kom út 1987 en er í dag í 4. sæti breska vinsældalistans og í toppsæti írska vinsældalistans. Útför Shane?s fór fram á föstudaginn í Dublin. Nick Cave og Glen Hansard sungu og Það var dansað. Shane*s hefur verið minnst í öllum helstu fjölmiðlum heims.
    1 hr 50 min
  • Uppáhalds lög hlustenda Rásar 2 í 40 ár og Kiss
    Rás 2 varð 40 ára 1. desember 2023.
    Eitt af því sem Rás 2 gerði í tilefni af afmælinu var að fá hlustendur til að velja uppáhalds lögin sín frá þessum 40 árum. Það voru gerðar nýjar útgáfur af þessum fjórum lögum í RÚV og þær frumfluttar í Popplandi á afmælisdaginn. Við heyrum þær aftur, viðtöl við höfundana og einnig hvað fólkið á götunni hefur að segja um þessi lög sem eru: Fjöllin hafa vakað (EGO), Vegbúi (KK), Murr Murr (Mugison) og París norðursins (Prins Póló).
    Hulda Geirsdóttir fór með hljóðnema á samkomu þar sem hópur af aðdáendum hljómveitarinnar Kiss fylgdist með í streymi frá lokatónleikum hljómsveitarinnar frá Madison square Garden í New York. Við kveðjum Kiss í Rokklandi.
    1 hr 50 min
  • Iceland Airwaves 2023
    Rokkland var á Iceland Airwaves á dögunum og Rokkland verður á Iceland Airwaves í dag.
    Rúmlega 150 listamenn og hljómsveitir spiluðu meira en 250 tónleika í aðal-dagskrá og off venue eins og það heitir, á Iceland AIrwaves í ár.
    Við heyrum tóndæmi og spjall við Airwaves fólk í þættinum í dag, listafólk gesti og starfsfólk.
    Rokkland rakst á mikið af skemmtilegu fólki á Airwaves og talaði við marga sem við heyrum í í þætti dagsins: Anna Ásthildur, Goggi í Sigur Rós, Ísleifur Þórhallsson, Anna Jóna Dungal, Kevin Cole, Mummi Lú ofl.
    1 hr 50 min
  • Bruce Springsteen og Iceland Airwaves 2023
    Iceland Airwaves fór fram um helgina í rokkborginni Reykjavík. Rúmlega 150 listamenn og hljómsveitir spiluðu meira en 250 tónleika í aðal-dagskrá og off venue eins og það er kallað.
    Rokkland var á Airwaves og við heyrum tóndæmi og spjall við Airwaves-fólk í þættinum í dag; listafólk, gesti og starfsfólk, og líka í næsta þætti eftir viku. Elín Sif Hall, Ásgeir Andri Guðmundsson, Kristján Kristjánsson, Ása Dýradóttir, Árni Hjörvar ofl. koma við sögu í dag.
    En Bruce Springsteen er líka fyrirferðarmikill í þættinum í dag. Bruce skrifaði fyrir nokkrum árum sjálfsævisögu; Born to Run, sem vakti mikla athygli um allan heim. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og núna var hún að koma út á Íslensku í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar sem var fréttamaður á RÚV í eina tíð og sat síðan á alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn eitt kjörtímabil. Magnús sem hefur skrifað og þýtt margar bækur segir okkur frá Bruce og bókinni - og ég bað hann líka um að velja nokkur lög með Bruce sem við hlustum á.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners