Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Tónlist frá Úkraínu og Nanna í garðinum
    Það eru tvær kraftmiklar konur sem eru í aðalhlutverki í Rokklandi vikunnar. Annarsvegar er það Nanna Bryndís Hilmarsdóttir úr Garðinum, Nanna úr Of Monsters And Men sem var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna sína. Platan heitir How to start a Garden og er að margra mati virkilega vel heppnuð og flott plata. Og svo er það Alona Dmukhovska (Helen Gahan) frá Kyiv í Úkraínu. Hún starfar við það að kynna tónlist frá Úkraínu um allan heim. Rokkland hitti hana á Eurosonic Noorderslag festival í Hollandi í janúar um tónlist og stríð.
    1 hr 55 min
  • Elvis Costello á línunni
    Elvis Costello spilar í Eldborg eftir sléttar tvær vikur. Hann kemur með píanóleikaranum Steve Nieve sem er búinn að spila með honum síðan 1977, og Nick Lowe sem stjórnaði upptökum á fyrstu plötunum hans og samdi lagið What?s so funny about Peace, Love and understanding sem er eitt af þekktustu lögum sem Elvis hefur sungið. Ég spjallaði við Elvis á Zoom á dögunum og hann var mjög skemmtilegur. Hann var heima hjá sér í New York og ég heima á Akranesi. Við heyrum það viðtal í Rokklandi í dag auk þess sem við skoðum sögu hans í stórum dráttum og spilum lögin hans, en af þeim á hann nóg. Elvis hélt tónleika 10 kvöld í röð í leikhúsi í New York í febrúar. Hann lagði upp með að spila 100 mismunandi lög þessi 10 kvöld, en hann spilaði 239 mismunandi lög 250 lög í það heila. Elvis hefur samið lög með Paul McCartney, hann og Burt Bacharach sömdu saman heila frábæra plötu 1998. Hann hefur líka gert plötur með Brodsky kvartettinum, Anne Sofie Von Otter, Roots og Bill Frisell svo eitthvað sé nefnt. Elvis Costello heitir ekki Elvis, heldur Declan og hann ólst upp í Birkenhead við Mersey ána - rétt hjá Liverpool. Elvis er einn af þessum stóru og ég lofa skemmtilegum þætti.
    1 hr 55 min
  • Magnús Þór, JFDR, Selló Stína, Rebekka Blöndal
    Í Rokklandi dagsins ætla ég að koma við ansi víða og tónlistin sem við heyrum í dag er ansi fjölbreytt. 50?s bíópopp, rafdrifinn rímnakveðskapur, rokkkóramúsík, draumapopp á þjóðlagagrunni og allt mögulegt. Kristín Lárusdóttir segir okkur frá nýju plötunni sinni sem heitir Kría. Þar er selló í aðalhlutverki en líka raf-græjur ýmiskonar og rímnakveðskapur um menn með sverð og morðingja. Rebekka Blöndal ætlar að syngja lög sem Marilyn Monroe söng á sínum tíma á tónleikum á Múlanum í Björtu loftum í Hörpu miðvikudaginn 10. Maí. Við heyrum í Marilyn og Rebekka segir okkur frá. Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir eða JFDR var að senda frá sér sína þriðju sólóplötu - gullfallega plötu sem heitir Museum. Hún er að leggja upp í tónleikaferðalag um Evrópu og heldur svo útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík 8. Júní. Jófríður er gestur Rokklands í dag. Og svo er það Magnús Þór Sigmundsson sem ég heimsótti í Hveragerði um daginn.
    1 hr 55 min
  • Jón Ólafsson 60
    Gestur Rokklands í dag er Jón Ólafsson sem fagnaði sextugsafmæli sínu með stjörnum prýddum risa-tónleikum í Eldborg um síðustu helgi. Jón á ótrúlegan feril að baki sem alhliða tónlistarmaður, laga og textahöfundur, sem hluti af Nýdönsk, sem hljómsveitarstjóri og upptökustjóri ótal platna með hinum og þessum ? hann gerði síðustu plöturnar með Ragga Bjarna og fyrstu 3 plöturnar með Emiliönu Torrini svo dæmi séu tekin. Hann hefur tekið þátt í ótal söngleikjum og tónleikum og sjónvarpsþáttum sem hljómsveitarstjóri auk þess að hafa gert eigin útvarps og sjónvarpsþætti í 40 ár. Hann hefur samið, útsett, stjórnað, spilað diskó og pönk og gert ambientmúsík með Futuregrapher. Hann stofnaði líka Sálina hans Jóns míns og svo margt margt fleira. Ég og Jón ætlum að spjalla saman í Rokklandi í dag og hlusta á pínulítinn hlut af því sem hann hefur samið eða komið nálægt á löngum og farsælum ferli. Ég held að mörgum gæti þótt þetta skemmtilegt prógramm. Þátturinn er númer 1313 í röðinni. Ætli það þýði eitthvað?
    1 hr 55 min
  • Jethro Tull og Willie Nelson
    Hljómsveitin Jethro Tull er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag en Jethro Tull heldur tónleika í Eldborg í Hörpu 4. maí nk ? þrettándu tónleikana sína á Íslandi. Hljómsveitin spilaði fyrst í íþróttahúsinu á Akranesi 1992 og hefur svo spilað í Háskólabíói, Laugardalshöll og Hörpu, en síðast þegar Jethro Tull spilaði á Íslandi var það fyrir jólin 2016 í Hallgrímskirkju tvö kvöld í röð? og þá voru sérstakir gestir Marc Almond, KK, Unnur Birna Björnsdóttir, Gunnar Gunnars organisti, og Egill Ólafs og Guðni Már Hennings sem lásu ljóð sitthvort kvöldið. Jethro Tull var að senda frá sér nýja plötu á föstudaginn: RökFlöte, sem er byggð í kringum Norræna Goðafræði ? Völuspá og Ragnarök. Ég spjallað við Ian Anderson forsprakka Jethro Tull í vikunni um nýju plötuna, ferðalög, Akranes, dauðann, Händel, Morrisey ofl. En mann -og dýravinurinn, kántrísöngvarinn og vandræðagemsinn Willie Nelson kemur líka við sögu. Hann verður nefnilega 90 ára á miðvikudaginn og ætlar að fagna því með tvennum tónleikum í Hollywood Bowl í Los Angeles þar sem vinir hans ætla að syngja og spila með honum, fólk eins og Chris Stapleton, Edie Birckell, Kacey Musgraves, Leon Bridges, Lukas Nelson, Lyle Lovett, Margo Price, Miranda Lambert, Nathaniel Rateliff, Neil Young, Nora Jones, Orville Peck, Rosanne Cash, Sheryl Crow, Snoop Dogg, Sturgill Simpson, The Avett Brothers, The Chicks, The Lumineers, Tom Jones, Warren Haynes, Ziggy Marley og fleiri. Við rifjum upp brot úr viðtali við Willie frá á Glastonbury festival árið 2000 þegar ég og Magnús R. Einarsson heimsóttum Willie í rútuna hans eftir vel heppnaða tónleika á Pýramídasviðinu þar. Nýjasta platan hans Willie, I Don't Know a Thing About Love sem kom út í mars er sólóplata númer 73. Hann var tilnefndur í ár til fernra Gramy-verðlauna fyrir þrjár mismunandi plötur.
    1 hr 55 min
  • Wilco á Íslandi og Tommy Emmanuel í std. 12
    Bandaríska hljómsveitin Wilco var stödd á íslandi um páskana og spilaði fjórum sinnum á þremur dögum. Þrisvar í eldborg í Hörpu og einu sinni rétt hjá Selfossi. Tónleikagestirnir voru mestmegnis frá útlöndum ? aðdáendur Wilco héðan og þaðan úr heiminum en flestir frá Bandaríkjunum. Rokkland tók þátt í þessu ævintýri af lífi og sál. Við heyrum í Wilco, hluta af þeim 1250 aðdáendum sveitarinnar sem komu til Íslands til að sjá hljómsveitina spila þrjú kvöld í röð í Hörpu. Þetta fólk er frá Oslo, Boston, Alaska, Texas, New York og Reykjavík t.d. Heyrum líka í Ethan Schwartz sem stóð að komu Wilco til Íslands. Svo er það gítarleikarinn Tommy Emmanuel. Hann er staddur á landinu og er með tónleika í Silfurbergi í Hörpu í kvöld og Rás 2 ætlar að taka tónleikana upp. Tommy er einn fremsti gítarleikari Heims, spilar eins og það sé spilað á 2 eða jafnvel 3 gítara í einu. Hann er Ástrali fæddur 1955 og búinn að spila síðan hann var barn. Tónleikarnir í kvöld eru lokahnykkur á Tommy Emmanuel guitar camp, gítar masterclass námskeiði sem 200 gítarleikarar allstaðar að úr heiminum hafa tekið þátt í hér á Íslandu undanfarna daga. Bjössi Thor er að spila með Tommy í kvöld og Bjössi hafði milligöngu um Tommy kæmi í heimsókn í Efstaleitið í stúdíó 12 síðasta fimmtudag og Tommy spilaði og svo spiluðu þeir saman.
    1 hr 55 min
  • Heidrik syngur Björk, Kvikindi, Wilco ofl.
    Rokklandi vikunnar kemur við sögu bandaríska hljómsveitin Wilco sem spilar 3 kvöld í röð í Eldborg í Hörpu núna í vikunni; skírdag, föstudaginn langa og laugardag, og það er uppselt! Svo er það hljómsveitin Kvikindi sem hlaut verðlaun fyrir plötu ársin á Íslensku tónlistarverðlaununum á dögunum - kvikindi kemur í heimsókn. Gítarleikarinn Tommy Emmanuel er að koma til Íslands til að spila í Silfurbergi í Hörpu 16. Apríl. Hann er einn fremsti gítarleikari í heimi, einskonar Hendrix kassagítarsins? Björn Thoroddsen verður gestur á tónleikunum og hann og Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld og fleiri tónlistarmenn segja okkur frá Tommy. HEIDRIK heitir tónlistarmaður og myndlistarmaður frá Færeyjum sem bjó í nokkur ár á íslandi fyrir nokkrum árum. Hann gekk í Listaháskóla íslands - hefur gefið út plötur, spilað á HEIMA-hátíðinni í Hafnarfirði. Hann spilaði á Iceland Airwaves síðasta haust með Færeysku glam-kántrí-hljómsveitinni sinni sem heitir Koyboykex, og nú var Heidrik að senda frá sér skemmtilega plötu sem heitir Heidrik Sings the Björk songbook og þar syngur hann lög Bjarkar sem var fyrirmynd hans þegar hann,- var eins og hann segir sjálfur; Lítill hommastrákur í Færeyjum. Þetta er nú það helsta í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 55 min
  • Eyjólfur Kristjánsson í 60 ár
    Eyjólfur Kristjánsson er gestur Rokklands í dag ? Eyfi úr Hálft í Hvoru og Bítlavinafélaginu ? Eyfi sem samdi lagið um Nínu og fór með það í Eurovison á sínum tíma með Stebba Hilmars vini sínum. Við Eyfi ætlum að spjalla saman í dag um músík, æskuna, pólitík, fyrstu ástina, Bítlana og Lennon, Kerlingafjöll, golf, fyrsta lagið, fyrsta giggið, Bergþóru Árnadóttur, Eurovison og allt mögulegt - og spila lögin hans.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners