Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Egill Ólafsson - Tu Duende, El Duende
    Egill Ólafsson yfirþurs er gestur Rokklands í dag. Hann syngur ekki meir opinberlega segir hann, en hann syngur samt, semur, skrifar ljóð og sögur og lög. Hann var var að senda frá sér plötu á vinyl sem er eiginlega tvær plötur: Tu Duende og El Duende ? tvöfalt albúm þar sem sungið er á íslensku, ensku og spænsku. Hann segir okkur frá og við hlustum á nýju plötuna í Rokklandi í dag.
    1 hr 49 min
  • Guðmundur Jónsson í 60 ár.
    Lagasmiðurinn og gítarleikarinn, - tónlistarmaðurinn Guðmundur Jónsson varð 60 ára á árinu. Hann hélt upp á það með tónleikum í Háskólabíói, 22 október sl. og flutti með aðstoð góðs fólks mörg af sínum þekktustu lögum sem eru orðin mörg. Þekktust eru auðvitað lögin sem hann samdi fyrir hljómsveitina sína stóru ? Sálina Hans Jóns Míns, sem hann var prímusmótur í í 30 ár. Plötur Sálarinnar eru í það minnsta 12, en í raun soldið fleiri vegna þess að Sálin gerði eina plötu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, aðra með Gospelkór Reykjavíkur, og eina með Stórsveit Reykjavíkur. Sálin sem kom fram sem leyninúmer á afmælistónleikum Gumma á dögunum gerði alveg helling á löngum tíma - annað en að skemmta Íslendingum á þessum einstöku Sálar-böllum sem svo margir hafa upplifað í gegnum tíðina og voru í raun bara miðnætur-tónleikar þar sem fólk stóð yfirleitt, dansaði og söng með, og öll músíkin eftir strákana í hljómsveitinni. En Guðmundur Jónsson hefur gert margt annað en að spila með Sálinni og semja fyrir hana. Hann er í dag í tveggja manna blús-rokk-hljómsveitinni G.G. Blús, og rokkhljómsveitinni Nykur. Svo er hann líka að búa til jólamúsík og þar syngja þeir stór sjón-og tónleikarar (eins og þeir segja í Færeyjum), Jóhann Sigurðarson og Þór Breiðfjörð. Það er kallað Jóladraumur. Guðmundur Jónsson er gestur Rokklands í dag.
    1 hr 50 min
  • Ellen Kristjáns og Steini Hjálmur og Una Torfa
    Ellen Kristjáns og Steini Hjálmur og Una Torfa eru gestir Rokklands í dag. Við spjöllum saman og þau ætla að syngja og spila fyrir okkur í std. 12.
    Una er ein af okkar björtustu vonum, lagið hennar Fyrrverandi er eitt af lögum ársins 2022 að mrgra mati og lagið hennar En var mest spilaða lagið á Rás 2 í sumar. Una er að gera fyrstu stóru plötuna sína og framtíðin er björt hjá þessari ungu frábæru konu.
    Ellen og Steini eru að fara að spila saman á tónleikum í Fríkirkjunni rétt fyrir jól sem heita Jólafrí. Þetta eru jólatónleikar þar sem eiginlegum jólalögum er sleppt en meiri áhersla lögð á jólaleg lög. Auk þeirra koma þar fram eins og Ólöf Arnalds og Skúli Sverris, Systur, Þorleifur Gaukur og Kári Stefánsson.
    Ellen og Steini flytja í þættinum jólalag sem Ellen hefur bara einu sinni sungið síðan hún söng það inn á jólaplötu þegar hún var 19 ára. Una syngur jólasálm í þættinum í bland við sín eigin lög.
    Aðrir listamenn sem koma við sögu eru; Tracey Thorn, Ólöf Arnalds, R.E.M. Teinar, Bob Dylan, Joni Mitchell og Dr. Gunni.
    1 hr 49 min
  • Moses Hightower, Smári Tarfur og Jimi Hendrix
    Í þessum þætt í dag eru þrjú mál á dagskrá; Smári Tarfur sem var einu sinni gítarleikari í Ylju og Quarashi sendi nýlega frá sér fimm mismunandi plötur, undir fimm nöfnum og í fimm mismunandi tónlistarstílum. Smári segir frá á eftir og við heyrum lög af þessum plötum. Það eru 80 ár í dag frá því að einn áhrifamesti gítarsnillingur sögunnar fæddist, Jimi Hendrix. Hendrix lifði ekki lengi, lést 27 ára gamall 1970 en enn þann dag í dag er hann stjarna meðal gítarleikara. Kristján Sigurjónsson er gesta-umsjónarmaður í Rokklandi í dag og ræðir við Jónatan Garðarson, Frey Eyjólfsson og Björn Thoroddsen gítarleikara um áhrif Jimi Hendrix. Og svo er það platan Önnur Mósebók með Moses Hightower sem er 10 ára um þessar myndir. Steini og Andri úr Moses Hightower koma í heimsókn.
    1 hr 55 min
  • Sigur Rós kemur heim
    Sigur Rós er stærsta og þekktasta hljómsveitin okkar íslendinga og ein allra magnaðasta hljómsveit sem við höfum átt. Sigur Rós er einstakt fyrirbæri ? fyrirmynd og viðmið fjölmargra hljómsveita um allan heim. Sigur Rós á aðdáendur um víða veröld og er núna komin HEIM til Íslands til að halda lokatónleika heimstónleikaferðar sinnar í Laugardalshöll næsta föstudagskvöld. Sigur Rós er búin að spila 70 tónleika í útlöndum á árinu og lokatónleikarnir eru þá númer 71. Þeir fóru um Suður Ameríku, norður Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjáland, Singapore, Japan, Thailand, og svo um alla Evrópu núna í haust. Þeir hafa verið fjórir á sviðinu allan túrinn, en á tónleikunum hérna heima verður strengjasveitin Amiina með þeim sem og blásarasveitin Brassgat í bala í fyrsta sinn í 14 ár. Sigur Rós hlaut heiðursverðlaun Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2021 og þegar allt er tekið með hefur Sigur Rós gengið mjög vel í flestu. En lífið hefur samt ekki verið eintómur dans á rósum og liðsmenn hljómsveitarinnar hafa fengið yfir sig dálítið pus hér og þar á undanförnum árum. Sigur Rós er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag og gestur þáttarins er Georg Hólm bassaleikari og einn af stofnendum Sigur Rósar.
    1 hr 55 min
  • Guðfinnur, Jónas Sig, Neil Young 77 ára
    Í Rokklandi í dag rifjum við upp þegar Jónas Sigurðsson gaf út plötuna Þar sem himin ber við haf ? sem hann gerði í samstarfi við fólkið sitt heima í Þorlákshöfn; Lúðrasveit Þorlákshafnar sem hann spilaði með þegra hann var strákur, og eldri-borgara kórinn Tóna og trix. Jónas hélt upp á 10 ára afmælið á föstudagskvöld með frábærum tónleikum í Háskólabíó. Lúðrasveitin var með honum og það var virkilega flott. Svo er það Guðfinnur Sveinsson var gítarleikari í instrumental rokksveitinni For a minor reflection. Hann fór í óperusöngnám til Vínarborgar en hætti því, býr í dag í New York og var að senda frá sér flotta sólóplötu sem heitir You. Ég spjalla við Guðfinn í þættinum og við heyrum nokkur lpög af plötunni hans. Í lok þáttarins rifjum við svo upp viðtal sem ég tók við Neil Young í Laugardalshöll fyrir tónleikana hans fyrstu og einu á íslandi, 6. Júní 2014. Neil átti afmæli í gær ? er 77 ára og ný plata; World record, kemur út næsta föstudag. Stúdíóplata númer 42. Jonas Björgvinsson tók myndirnar á tónleikum nafna síns á föstudaginn.
    57 min
  • Bono og Surrender, Iceland Airwaves 2022, Sigur Rós
    Bono var að gefa út bók ? ævisögu sem heitir Surrender ? 40 songs, one story. Óli P. Árni Matt, Arnar Eggert og Björk tala um Bono í Rokklandi í dag auk þess sem hann syngur og les upp úr bókinni sinni. Margrét Marteinsdóttir blaðakona á Stundinni sá og hitti Sigur Rós í Amsterdam í vikunni sem leið. Hún sendi Rokklandi póstkort með kveðju frá strákunum okkar. Svo er smá Airwaves líka, en það var hátíð í bæ og borg um helgina. Það var loksins aftur Airwaves og það var skemmtilegt. Það var uppselt.
    1 hr 55 min
  • Herbert - seinni hluti
    Herbert Guðmundsson var gestur Rokklands fyrir nokkrum vikum. Þá fórum við yfir fyrstu árin ? fram til þess tíma þegar hann gaf út smellinn mikla - Can?t walk away. Í dag er framhald. Við spjöllum um trúmál, Guð og Búdda, sölumennsku, ísgerð, gjaldþrot, 12 sporin, gleraugu, foreldra, Hollywood, fangavist og betrun, Svíþjóð og margt fleira.
    1 hr 55 min
  • Apparat Organ Quartet 20 ára
    Orgelkvartettinn Apparat (Apparat Organ Quartet) er ótrúlega skemmtilegt fyrirbæri ? fjögur orgel og trommari. Þessi magnaða hljómsveit fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli fyrstu plötunnar: Apparat Organ Quartet. Liður í hátíðahöldum eru tónleika í Tjarnarbíói á miðvikudaginn næsta, 26. Október, en þar mun hljómsveitin flytja plötuna í heild sinni og svo eflaust bæta einhverju við. Platan hlaut frábærar viðtökur þegar hún kom út og ekki bara hérna á Íslandi, heldur líka í útlöndum ? í erlendum miðlum á borð við New York Times. Fyrir vikið varð hljómsveitin eftirsótt tónleikaband og spilaði á tónlistarhátíðum um allan heim; Hróarskeldu, Lowlands festival, Central Park í New York og Pompidou miðstöðinni í París t.d. Árið 2009 var platan valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar í viðamikilli kosningu sem endaði í frábærri bók sem Arnar Snævar Eggertsson og Jónatan Garðarsson skrifuðu. Þeir Apparats-menn, Úlfur Eldjárn og Hörður Bragason eru gestir Rokklands í dag.
    1 hr 55 min
  • Bruce, Coldplay, Kolrassa, Tappinn, Vintage og Dylan
    Í Rokklandi í dag ætla ég að koma víða við og rifja upp eitt og annað ? eins og t.d. þegar Coldplay kom til Íslands 2001, og þegar Bob Dylan spilaði á Newport Folks Festival með hljómsveit 1965 og lýðurinn baulaði á hann. Ég ætla líka að tala aðeins um tónleikana sem ég var svo heppinn að fá að upplifa í París síðasta fimmtudag. Kolrassa Krókríðandi og Tappi Tíkarrass sem spila á Eyrarrokk-tónlistarhátíðinni á Akureyri um næstu helgi koma við sögu. Við fáum líka póstkort frá Vintage Caravan sem er að túra um Evrópu um þessar mundir með vinum sínum í Volcanova. Og Bruce Springsteen kemur líka við sögu en hann er að fara að senda frá sér plötu með klassískum Soul og R&B lögum.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners