Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Færeyjar, SSSÓL og Thurston Moore
    Í Rokklandi í dag er þrennt á dagskrá: Andrei Freyr Viðarsson (Andri karate) segir okkur aðeins frá Thorton Moore og Sonic Youth, en Thurson Moore fyrrum forsprakki Sonic Youth er kominn til landsins og er með tónleika í Hljómahöll í Reykjanesbæ í kvöld! Svo er það SSSÓL sem ætlar að fagna 35 ára afmæli næsta laugardag með tónleikum í Háskólabíó ? tvennum meira að segja. Við rifjum upp brot af Því þegar hljómsveitin kom í heimsókn í Rokkland í std. 12 fyrir 5 árum þegar verið var að halda upp á 30 ára afmæli hljómsveitarinnar. En við byrjum í Færeyjum. Rokkland fór á G! Festival í Götu í Færeyjum í sumar eins og hlustendur Rokklands muna kannski eftir. Í dag er örlítið framhald - Glenn Larsen sem starfar hjá Útflutningsskrifstofu Færeyskrar tónlistar kynnir 5 áhugaverða Færeyska listamenn fyrir okkur.
    1 hr 55 min
  • Björk og Fossora
    Björk var að senda frá sér 10undu sólóplötuna sína; Fossora. Þetta er lífræn plata ? mikil jarðtenging, Björk segir að Fossora sé Sveppaplatan sín. Sveppirnir eru eins og internet skóganna segir hún. Platan er að mestu tekin upp á Íslandi, unnin á Covid-tímanum og flestir sem eru með Björk á plötunni eru íslenskir vinir og kunningar; Hamrahlíðarkórinn, fólk úr Sinfóníuhljómsveit Íslands ofl. Björk er sjálf upptkökustjóri en Bergur þórisson var hennar hærgi hönd. Það er mikill áhugi á plötunni um allan heim enda er Björk frumkvöðull og einstakur listamaður. Björk sýnir okkur aðeins inn í veröld sína í Rokklandi í dag.
    54 min
  • Herbert Guðmundsson - fyrstu árin
    Það þekkja allir landsmenn Herbert Guðmundsson, söngvarann og gleðigjafann Herbert Guðmundsson.
    Hann er búinn að vera að syngja og skemmta fólki við allar mögulegar kringusmstæður áratugum saman. Herbert kom fram á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í fyrsta sinn núna í ár og var gríðarlega vel tekið. Hann var vinsæll á níunda áratugnum þegar hann gaf út lagið Can't walk away sem hefur fylgt honum allar götur síðan, en hann var líka að syngja með vinsælum hljómsveitum fyrir rúmri hálfri öld. En hver er maðurinn?
    1 hr 52 min
  • Prins Póló og SH. Draumur, Jarðarbunga, Stórsveit Reykjavíkur ofl.
    Prins Póló og Gunnar Lárus Hjálmarsson koma í heimsókn í Rokkland í dag, en Prinsinn er búinn að taka upp 2 ný lög með uppáhalds hljómsveitinni sinni S.H. Draumi. Prinsinn var gestur Rokklands snemma í sumar og þar kom þessi hugmynd upp sem nú er orðin að veruleika. Við frumflytjum lögin Draumaprinsessan og Sjoppan í dag. Stórsveit Reykjavíkur heldur upp á 30 ára starfsafmæli með tónleikum í Eldborg í kvöld kl. 8 og það er ókeypis inn. Sigurður Flosason formaður Stórsveitarinnar kemur í heimsókn í Rokkland. Jarðarbunga heitir hljómplata sem væntanleg er núna í haust. Þar etja saman músíkölskum gáfum sínum og reynslu þeir @Björgvin Gíslason og Sigurður Bjóla tvær hetjur úr íslensku músíklífi undanfarna áratugi. Björgvin Gíslason var í Pelican, Pops, Nattúru, Friðryk og mörgum öðrum hljómsveitum auk annara verka, Sigurður Bjóla lykilmaður í Stuðmönnum og Spilverki Þjóðanna auk þess sem hann hefur gert ótal margt annað í músík undanfarna áratugi. Við frumflytjum 3 lög af Jarðarbungu í dag. Og svo ætlum við líka að heyra aðeins um hljómsveitina Stafrænan Hákon sem sendi frá sér enn eina plötuna í sumar og Ólafur Örn Josephsson forsprakki hljómsveitarinnar kemur í heimsókn. Nick Cave, Dire Straits og Willie Nelson koma líka aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Snorri Helgason frá Víðihlíð
    Nýjasta plata Snorra Helgasonar heitir Víðihlíð og samanstendur í raun af tveimur EP plötum sem komu út stafrænt í október í fyrra og apríl í ár. Lögin á plötunni samdi Snorri á tiltölulega stuttu tímabili í einni samfelldri innblásturssprengju segir hann í fréttatilkynningu - og eiga það flest sameiginlegt að vísa í umrót og tilfinningalega ringulreið unglingsáranna. Snorri er gestur Rokklands í dag ? og við ætlum að fara vítt og breytt ? hingað og þangað ? aftur á bak og áfram. Við spjöllum um Víðihlíð, Ríó tríó, Bob Dylan, Gretch, tónfræði, Fílalag, Berg Ebba, Sprengjuhöllina, Önnu Rakel, Excel, tónleikaferðir, Bruce Springsteen, Levon Helm, græjur, textagerð og margt fleira. Peter Gabriel kemur svo aðeins við sögu í lokin.
    1 hr 55 min
  • G! Festival 2022
    Rokkland fór á G! Festival í Færeyjum í sumar. Það er G! Í Rokklandi í dag kl. 16.05 á Rás 2. Eins og margir góðir hlutir aðrir þá fæddist G! hálfpartinn óvart og upphafið má rekja til hljómsveitarinnar Clickhaze sem segja má að hafa verið einskonar Sykurmolar Færeyja ? hálfgerð súpergrúppa. Söngkona Clickhaze var kornung Eivör Pálsdóttir og frmkvæmdastjóri G! Var frá 2002 ? 2013 Jón Tyril sem var gítarleikari Clickhaze. Allt um G! Í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min
  • Dýrð í dauðaþögn - Stór agnarögn
    Ásgeir Trausti kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt og reyndar líka alþjóðlegt tónlistarlíf fyrir áratug þegar hann gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn. Platan er ein af fimm mest seldu plötum íslenskrar útgáfusögu. Hinar eru: Gling Gló með Björk og tríói Guðmundar Ingólfssonar (1990), Vísnaplatan Einu sinni var með Gunna Þórðar, Tomma Tomm og Bo Halldorson (1976), Kardimommubærinn (1979) og Dýrin í Hálsaskógi (1967). Í tilefni af 10 ára afmælinu voru tónleikar í Eldborg í Hörpu í gærkvöldi. Það var uppselt og vel heppnað hef ég séð og heyrt í gær og dag. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir RÚV - hljóð og mynd. Og það var líka að koma út afmælis&heiðursplata þar sem ýmsir tónlistarmenn og konur flytja nýjar útgáfur af lögunum á plötunni ; K.Óla, BRÍET, Teitur Magnússon, Prins Póló, Árný Margrét, Moses Hightower, GDRN, Hjálmar, Högni Egilsson og Júníus Meyvant. Platan er komin á steymiveitur - en hvað svo? Kemur vinyll? Hvers vegna var þetta gert? Hver átti hugmyndina og hvernig voru listamennirnir valdir? Guðm. Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur) hægri hönd Ásgeirs allt frá upphafi, tók upp flest lög plötunnar og stýrði verkefninu í Hljóðrita í Hafnarfirði - þar sem hann ræður ríkjum. Kiddi er gestur Rokklands í dag og við ætlum að hlusta saman á plötuna - ég og Kiddi og allir sem vilja.
    1 hr 55 min
  • Elvis og Tónaflóð 2022
    Í Rokklandi í dag kl16.05 á Rás 2 veður boðið upp á brot af því besta frá Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli í gær. Dagskráin var litrík og fjölbreytt - ljósin falleg og fólkið sömuleiðis. Í byrjun Þáttar segir Freyr Eyjolfsson okkur frá Elvis og hvað það var sem dró hann (hugsanlega) til dauða fyrir 45 árum síðan - þegar hann var aðeins 42 ára gamall.
    1 hr 55 min
  • Úlfur Eldjárn
    Galdurinn á bak við góða kvikmynda- og leikhústónlist, tilraunir og flipp í rokki, orgelnördismi, gleði og sorg. Úlfur Eldjárn er gestur Rokklands og fer með okkur á flakk hingað og þangað. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.
    1 hr 55 min
  • Brimbrettarokk
    Saga brimbrettarokksins og hvernig þessi tónlist fór um heiminn, breytti rokkinu, gíturum og allskonar græjum. Svo gleymdist brimbrettarokkið en reis upp aftur. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners