Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • R.E.M. 1992 til 2011
    Ásgeir Eyþórsson fer yfir rúmlega 30 ára feril bandarísku hljómsveitarinnar R.E.M. í tali og tónum í tveimur Rokklandsþáttum. Í seinni þættinum eru árin 1992 til 2011 krufin í tali og tónum.
    1 hr 55 min
  • R.E.M. 1980 til 1991
    Ásgeir Eyþórsson fer yfir rúmlega 30 ára feril bandarísku hljómsveitarinnar R.E.M. í tali og tónum í tveimur Rokklandsþáttum. Í fyrri þættinum eru árin 1980 til 1991 krufin í tali og tónum.
    1 hr 49 min
  • Prins Póló allan hringinn
    Við viljum trúa því að flestir landsmenn kannist við fjöllistamanninn Prins Póló sem hefur skemmt okkur íslendingum um árabil, og skapara hans og besta vin; Svavar Pétur AldísarogEysteinsson Häsler. Hann opnaði nýverið myndlistar og ljósmyndasýningu í Gerðabergi í Brieðholti. Hann er að vinna að músík þessa dagana með einni af uppáhalds hljómsveitunum sínum; Moses Hightower, og hann er með tónleika með Moses í Gamla bíó föstudagskvöldið 22. Júlí. Svo er hann með ólæknandi Krabbamein, en hann er ekki krabbamein segir hann, heldur fyrst og fremst lifandi tónlistarmaður með mörg járn í eldinum. Svavar Pétur; Prins Póló, er gestur Rokklands í dag og við ætlum að ræða allt og ekkert; Bootlegs, SH. Draum, Breiðholtið, áfengi, Bulsur, búskap, hetjur og fyrirmyndir, Sterolab, Rúnk, Jón Kr. Ólafsson, Skakkamanage, krabbamein, Mannakorn, Músíktilraunir, ævintýri, dimma dali, Kidda kanínu, grámyglu, Þjóðhátíð, kaffi og margt fleira.
    52 min
  • Bjartmar í 70 ár
    Bjartmar Guðlaugsson verður sjötugur á morgun og af því tilefni heldur hann afmælistónleika núna næsta laugardagskvöld, 18. Júní, með hljómsveitinni sinni Bergrisunum sem er mikið rokkband.
    Bjartmar fæddist 13. júní 1952 á Fáskrúðsfirði en þegar hann var 7 ára flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja og bjó hann þar til tvítugs en þá flutti hann til Reykjavíkur. Bjartmar hóf feril sinn sem laga- og textahöfundur árið 1977, ætlaði alltaf að verða myndlistarmaður en svo bara gerðist eitt og annað og tónlistin tók yfir, og Bjartmar er miklu þekktari sem tónlistarmaður en myndlistarmaður.
    Bjartmar er gestur Rokklands í dag.
    1 hr 50 min
  • Bo og Krummi - kántrí
    Gestir Rokklands í dag eru feðgarnir Björgvin Halldórsson og Krummi Bjorgvinsson sem hafa á síðustu árum næstum runnið saman í eitt í músíkinni. Báðir byrjuðu þeir í rokkinu en kántrímúsík og kántrírokk er staðurinn sem þeir mætast á. Þeir er báðir Hafnfirðingar og í Hafnarfirði fer fram dagana 9.-11. júní, tónlistarhátíðin Kántrí-hjarta Hafnarfjarðar og þar verður spilum kántrímúsík í 3 daga ? 3 kvöld. Þar spila hljómsveit Axels Ó og Stefanía Svavars. Milo Deering sem er mikil session hetja á heimavelli kántrítónlistarinnar í Nashville, og Sarah Hobbs sem er margverðlaunuð kántrísöngkona frá Jefferson í Texas, og svo íslenska kántríhljómsveitin Klaufar. Við ræðum um kántrímúsík út og suður og spilum lög með Krumma og Bo Halldorson, Brimkló, Eagles, The Band, Little Feat ofl.
    1 hr 55 min
  • Rufus Wainwright og John Grant
    Í síðasta þætti heyrðum við brot úr viðtali við Rufus Wainwright sem heldur tónleika í Háskólabíói í kvöld! John Grant er sérstakur gestur og opnar tónleikana, en Rufus Wainwright er gestur Rokklands í dag. Tónleikarnir hér eru liður í sérstakri Rufus Wainwright hátíð sem hefur staðið yfir undanfarna daga. Það er hópur af aðdáendum Rufusar staddur á landinu og þeir hafa verið að bralla eitt og annað.
    1 hr 55 min
  • ABBA - Benny Anderson á línunni
    Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að hljómsveitin ABBA, ein stærsta og vinsælasta hljómsveit sögunnar sendi frá sér plötu í fyrra, plötuna Voyage sem er fyrsta plötuna í heil 40 ár. Hún fór alla leið á toppinn á vinsældalistum víða um heim og fékk líka ágæta dóma. Núna um næstu hlegi verður svo ABBA Arena, nýja Abba-tónleikahöllin í London opnuð með viðhöfn, og ABBA tónleika sjóið hefur göngu sína þar. Af þessu tilefni bauðst Rokklandi stutt viðtal við Benny Anderson úr ABBA núna í Eurovision vikunni. Við ræddum um Eurovision, ABBA höllina, sjóið, hljómsveitina, þjóðlagatónlist, hvers vegna höllin væri ekki í Stokkhólmi, nýju plötuna og ýmislegt fleira. En við heyrum líka brot úr viðtali frá september í fyrra við Svönu Gísladóttur (Svana Gisla) frá Akranesi sem er búin að vera að vinna náið með þeim Björn, Benny, Agnetu og Önnu Frid að þessu risastóra Abba verkefni í bráðum 5 ár. Hún er einskonar framkvæmdastjóri verkefnisins. Við heyrum líka brot úr viðtali Rokklands við Rufus Wainwright sem heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu sunnudaginn eftir viku, en viðtalið verður í heild sinni næsta sunnudag.
    1 hr 55 min
  • 15.05.2022
    Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
    1 hr 49 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners