Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Árný Margrét og Gary Brooker
    Í Rokklandi í dag eru tveir tónlistarmenn í brennidepli. Annarsvegar ung og áhugaverð tónlistarkona að vestan, og svo ný-látinn tónlistarmaður frá Englandi. Unga tónlistarkonan heitir Árný Margrét, en hún sendi frá sér fyrstu fjögurra laga plötuna núna á föstudaginn, Intertwined, sem kemur út um allan heim á vegum One Little Independent Records sem gefur t.d. út Björk og Ásgeir Trausta. Tátni tónlistarmaðurinn er svo Gary Brooker, forsprakki hljómsveitarinnar Procol Harum, en hann lést núna 19. Febrúar, 76 ára að aldri. Gunnlaugur Sigfusson útvarpsmaður með meiru segir okkur frá Gary Brooker og Procul Harum.
    1 hr 55 min
  • Jónas Björgvinsson, Sigur Rós, Elíza Newman ofl.
    Já það er Rokkland í dag eins og alla sunnudaga og ýmislegt og allskonar á dagskrá. Við kynnumst Jónasi Björgvinssyni (Jonas Bjorgvinsson) aðeins, en hann var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna sína ? 50 ára gamall. Hann fékk Ómar Guðjónsson til að vera sín hægri hönd og upptökustjóri. Hann ætlaði að gera allt öðruvísi plötu og fá hina og þessa til að syngja lögin sín en endaði á að syngja allt sjálfur. Við heyrum í þeim Jónasi og Ómari í þættinum. Við heyrum líka aðeins í Gogga í Sigur Rós frá Abbey Road, en þær gleðifréttir bárust í vikunni að Kjartan Sveinsson er genginn aftur til liðs við Sigur Rós og þeir Goggi, Kjarri og Jónsi eru þessa dagana staddir í Abbey Road í London að taka upp nýja músík. Við heyrum í Gogga beint frá Abbey Road. Elvar Þór Hjörleifsson, Mamiko D. Ragnarsdóttir og Elíza Geirsdóttir Newman segja okkur frá nýju lögunum sínum. Svo heyrum við í Sting og Jimmy Page, Fontains DC, Abba og Patti Smith t.d. Ég óska konum þessa lands til hamingju með konudaginn.
    1 hr 55 min
  • Stína Ágústsdóttir, Gudrid Hansdóttir, Iggy Pop ofl.
    Í Rokklandi dagsins eru konur í aðalhutverki ? ein íslensk og ein færeysk. Stina Missnasti Agustsdottir er íslensk tónlistarkona sem býr í Svíþjóð og ég spjalla við í þættinum en hún sendi í vikunni frá sér lag sem heitir Body af væntanlegri plötu sinni; Drown to die a little. Svo er það Guðrið Hansdóttir frá Færeyjum. Hún bjó um árabil á Íslandi - var t.d. í FÍH skólanum. Hún sendi í vikunni frá sér tvö lög ? fyrstu lögin í nokkur ár, og annað lagið syngur Eivør Pálsdóttir með henni. Margrét Eir segir okkur svo frá nýja laginu sínu, Days of Roses, sem hljómsveitin hennar Thin Jim var að gefa út í vikunni. Svo kemur Iggy Pop líka við sögu, en það var tilkynnt í vikunni að hann hlyti í ár sænsku Polar-tónlistarverðlaunin sem verða afhent í Stokkhólmi í maí. Meðal þeirra sem hafa hlotið þessi eftirsóttu verðlaun eru; Paul McCartney, Elton John, Bruce Springsteen, Joni Mitchell, Led Zeppelin, Metallica, Patti Smith og Björk. Og í dag, 13. febrúar, er alþjóðadagur útvarps. Útvarpsnotkun er mikil á Íslandi, meirihluti Íslendinga hlustar á útvarp á hverjum degi og 87% landsmanna hlustar í hverjum mánuði. Unga fólkið hlustar líka, í um klukkustund á dag (12-24 ára) ? samkvæmt nýjustu könnunum. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri sendir hlustendum Rásar 2 stutta kveðju í tilefni dagsins.
    1 hr 55 min
  • Sigrún Stella, Cat Power, Band of Horses, Hildur vala
    Í Rokklandi í dag eru konur í aðalhlutverki ? nokkrar glæsilegar tónlistarkonur. Hildur Vala á afmæli í dag og við heyrum aðeins í henni í þættinum. Svo er það CAT POWER ? frá Atlanta í Georgíu ? hún átti afmæli núna í janúar, er fimmtug og frábær og var að senda frá sér plötu sem heitir Covers og þar syngur hún meðal annars lög eftir Frank Ocean, Jackson Browne, Shane McGowan ofl. Við heyrum reyndar aðeins í Band of Horses líka en þetta tvinnast allt saman einhvernveginn. Ég spjalla svo við tónlistarkonuna Sigrúnu Stellu (Sigrun Stella Haraldsdottir Bessason) sem er fædd í Winnipeg, alin upp á Akureyri en býr í dag í Toronto. Hún á topplagið á vinsældalista Rásar 2 um þessar mundir ? lagið Baby Blue.
    1 hr 55 min
  • Meatloaf, Neil Young og Joni Mitchell og Spotify
    Í Rokklandi í dag ætla ég aðeins að fjalla um tónlistarfrett vikunnar; Joni Mitchell, Neil Young og fleiri haf ákveðið að taka tónlistina sína út af Spotify í þeim tilgangi að mótmæla því að Spotify sé með podcast-stjörnuna Joe Rogan á sínum snærum, en Neil og Joni og margir fleiri vilja meina að hann sé að dreyfa fölskum og hættulegum skilaboðum um Covid, bólusetningar ofl. Til hlustenda sinna sem skipta milljónum í hverri viku. Hvað er rétt í þessu? Hver hefur rétt fyrir þér ? það hafa mrgir skoðun á því og ekki allir þær sömu. Heyrum um þetta undir lok þáttarins og Arnar Eggert Thoroddsen kemur með smá innlegg. En stærstan hluta þáttarins færi stóri maðurinn - Meatloaf sem lést núna um daginn. Og það var einmitt Covid sem tók hann. Mér skilst að hann hafi ekki viljað láta bólusetja sig. Ég minnist Meatloaf með hlýju ? hann á hluta í mínu músikuppeldi frá því ég var 8 ára gamall og platan hans Bat Out Of Hell hefur síðan hún kom út verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hún frábær!
    1 hr 55 min
  • Meir Laddi og allskyns ný músík
    Í seinni hluta Rokklands í dag ætla ég að spila allskonar nýja skemmtilega músík ? héðan og þaðan, en í fyrri hlutanum er það meiri Laddi ? framhald frá síðasta þætti. Það er bara svoleiðis. Laddi segir okkur t.d. frá tónlistarsmekk Saxa læknis, Skúla rafvirkja og Elsu Lund.
    56 min
  • Laddi - einn voða skemmtilegur!
    Laddi (Þórhallur Sigurðsson) hefur áratugum saman skemmt okkur íslendingum og glatt okkur við öll möguleg tækifæri. Honum hefur tekist það svo vel að hann var sæmdur Fálkaorðunni fyrir nokkrum árum. Laddi er hrein þjóðargersemi ? einn fyndnasti og skemmtilegasti maður landsins frá upphafi íslandsbyggðar. Laddi byrjaði í Sjónvarpinu um 1970 með Halla bróður sínum og svo Gísla Rúnari. Hann var í Heilsubælinu, Imbakassanum, Spaugstofunni, hjá Hemma Gunn og í fjölmörgum áramótaskaupum, síðast núna á gamlárskvöld. Ég sá hann fyrst í íþróttahúsinu á Akranesi með Halla líklega 1975 og heillaðist þá strax ? man ennþá eftir því. Fyrsta platan út 1976 ? með Halla og Ladda og Gísla Rúnari ? Látum sem ekkert C sem þótti alveg gríðarlega skemmtileg og var hálfgerð bylting í íslenskri plötuútgáfu og gríni. Síðan hafa áratugirnir liðið og Laddi alltaf með okkur. Nú er hann að verða 75 ára 20. janúar og ætlar að halda upp á það sem afmælissýningu í Háskólabíó í mars. Það er alltaf nóg að gera hjá Ladda enda eftirspurnin eftir hans kr0ftum nóg. En mér tókst að plata hann í Rokkland dagsins til að spjalla um músíkina hans fyrst og fremst, en Alda Music var að gefa út safnplötu sem heitir; Það er aldeilis, og hefur að geyma vinsælustu lög Ladda frá upphafi til dagsins í dag. Tvöfaldur diskur og þrefaldur vinyll. Við tölum um músík í þættinum, en líka Spotify, hvernig hann semur, um fálkaorðuna, myndlistina og allt mögulegt.
    1 hr 48 min
  • Árni Matt og plötur ársins
    Það kom út gríðarlegt magn af tónlist á Íslandi á síðasta ári. Útgáfurnar eru næstum 500. 500 ?plötur?. Margir gáfu út á föstu formi, vinyl eða CD en flestir gáfu út á netinu eingöngu. Það eru allir að gefa eitthvað út er yfirskrift greinar sem Árni Matthíasson blaðamaður og allt-muligt maður á Morgunblaðinu skrifaði í Moggann um daginn. Árni hefur árum saman skrifað svona grein þar sem hann fer yfir plötur ársins og oft hef ég heyrt um þessar greinar hans Árna að hann sé bara að reyna að vera ?öðruvísi? en aðrir og á þessum listum hans sé yfirleitt ekkert sem fólk þekkir ? bara eitthvað mjög skrýtið. Árni er gestur Rokklands í dag og við ætlum að ræða þetta og hlusta á það sem Árni mælir með og segir að sé ?það besta? sem kom út í íslenskri tónlist 2021. Við ræðum líka aðeins um það besta sem kom út erlendis, aðeins um Bítlana og Bítlamynd Peters Jackson og svo kemur Sinéad O?Connor aðeins við sögu í restina en hún missti 17 ára gamlan son sinn um helgina. Hann gafst upp á lífinu og endaði það.
    1 hr 55 min
  • Bestu plöturnar 2021?
    Í fyrsta Rokklandsþætti ársins 2022 í dag kl. 16.05 ætla ég að spila lög af þeim erlendu plötum sem mér finnst standa uppúr eftir árið. Ég ætla að hafa til hliðsjónar bresku músíktímaritin Mojo og Uncut sem eru svolítið mínar ær og það er alltaf gaman að sjá árslistana þeirra. Sumu er maður sammála en öðru ekki og ég er ekki einn um það. Arnar Eggert Thoroddsen hefur sína skoðun á þessum blöðum og árslistunum þeirra og hann sendi áramótahugleiðingu um þessa lista í þáttinn. Var 2021 gott tónlistarár? Já já ? alveg þokkalegt bara. Gleðilegt nýtt tónlistarár.
    1 hr 55 min
  • Sigurður Guðmundsson - Nú stendur mikið til
    Það er jóla-Rokkland í dag! Ég hef boðið upp á sérstakan jólaþátt í mörg undanfarin ár og þessir þættir hafa verið allavegana. En fókusinn hefur alltaf verið á jólamúsík og það er nóg til af henni. Í þetta skiptið ákvað ég að setja kastljósið á eina frábæra jólaplötu sem ég veit að er uppáhalds jólaplata mjög margra. Hún kom út fyrir rétt rúmum áratug, árið 2010 og í aðalhlutverki þar er Sigurður Guðmundsson - Siggi Hjálmur. Hann og hans hægri hönd á plötunni, upptökustjórinn Guðmundur Kristinn Jónsson ? Kiddi Hjálmur, eru gestir Rokklands í dag og ætla að hlusta á plötuna með mér og okkur öllum og segja okkur frá ? sögurnar á bakvið lögin og þessa skemmtilegu plötu.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners