Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Low og Manic Street Preachers
    Í þætti dagsins í litlu þáttaröðinni sem nefnist Rokkland á Rás 2 heyrum við allskonar músík ? vegna þess að það er svo skemmtilegt. Við heyrum í Japanese Breakfast, Jackson Browne og David Lindley, Michael Stipe, Jesse Malin, Björn Thoroddsen, Jonas Bjorgvinsson frá Akranesi, John Mellencamp og Bruce Springsteen, Oasis, Damon Albarn og hljómsveitinni Kul. Svo heyrum við nokkur lög af nýju plötunni frá Manic Street Preachers frá Wales sem ég hef haldið upp á allar götur síðan Andrea Jónsdóttir vinkona okkar allra gaf mér eintak af fyrstu plötunni þeirra ? Generation Terrorists árið 1900ogeitthvað ? fyrir langa löngu. Hún kom út í febrúar 1992. Hljómsveitin sem er búin að vera starfandi síðan 1986 er enn í fullu fjöri og nýjasta platan þeirra The Ultra Vivid Lament er fjórtánda hljóðversplatan þeirra og við skoðum hana aðeins í þættinum í dag. Og svo er það ein áhugaverðasta plata ársins að mínu mati ? ein fallegasta en jafnframt ein erfiðasta og ljótasta plata ársins fyrir hlustirnar er nýjasta plata hjóna-hljómsveitarinnar Low frá Duluth í Minnesota sem amk. tvisvar hefur komið hingað til Íslands og spilað fyrir fólk. Nýja platan þeirra heitir Hey What og við heyrum nokkur tóndæmi af henni í þættinum.
    1 hr 55 min
  • Blondie, Nirvana ofl
    Í Rokklandi í dag ætla ég að spila slatta af splunkunýrri tónlist úr ýmsum áttum með fólki og hljómsveitum eins og Nick Cave & Bad Seeds, Johnny Marr, Good Morning, Joan As Policewoman, Placebo, Lumineers ofl ? og við rifjum líka upp smá Nirvana, en platan ? meistaraverkið Nevermind varð 30 ára núna á föstudaginn og margir eiga góðar minningar tengdar þessari plötu. Við heyrum nokkrar í seinni hluta þáttarins og lög af plötunni, en fyrri hlutann á hljómsveitin Blondie. Debbie Harry söngkona og andlit hljómsveitarinnar er heiðursgestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, sem hefst núna í vikunni. Á meðal kvikmynda hátíðarinnar er myndin, Blondie: Að lifa í Havana um tónleikaferðalag hljómsveitarinnar til Kúbu. Með ferðinni, sem var í boði menningarráðuneytis Kúbu, rættist 40 ára gamall draumur hljómsveitarinnar um að spila á Kúbu. Myndin verður sýnd í Háskólabíó á laugardaginn næsta og eftir sýningu situr Debbie fyrir svörum áhorfenda og Andrea Jónsdóttir vinkona okkar allra ætlar að spjalla við hana. Ég ætlaði líka að spjalla við hana í síma fyrir þennan þátt, það var búið að ganga frá því - en svo bara gekk það ekki upp. That?s life... eins og Sinatra söng, og Það breytir því ekki að fyrri hluti Rokklands í dag er helgaður Debbie Harry og Blondie. Debbie er frábær ? fyrirmynd og frumkvöðull sem lætur ekkert stöðva sig. Hún er fædd 1945 og var að verða þrítug þegar hún sló í gegn með Blondie rétt fyrir 1980.
    1 hr 55 min
  • Iron Maiden - Senjutsu og allskonar
    Meistararnir í Iron Maiden leggja undir sig síðari hluta Rokklands í dag, en nýja platan þeirra; Senjutsu, kom út fyrir skemmstu og náði hæst í 2. Sæti vinsældalistans í Bretlandi og þriðja sæti þessa Bandaríska. Við heyrum lög af plötunni og Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld sendir okkur pistil ? hugleiðingu um plötuna. En í fyrri hlutanum ætla ég að spila allskyns splunkunýja tónlist héðan og þaðan - íslenska og erlenda og allt sér-valið að sjálfsögðu. Þátturinn hefst kl.16.05 en svo má alltaf hlusta á www.ruv.is þegar manni hentar, eða í RÚV spilaranum og líka á Spotify (Rokkland podcast).
    1 hr 55 min
  • ABBA Voyage og Yola Carter
    Rokkland snýr aftur í dag kl. 16.05 eftir langt og gott sumarfrí. Og það sem er til umfjöllunar er aðallega tvennt; Yola Carter og ABBA. Í seinni hlutanum heyrum við í henni Svönu Gísladóttur sem er búin að vera að vinna náið með hljómsveitinni ABBA að endurkomunni sem varð gerð opinber fyrir rúmri viku með blaðamannafundi í London og ABBA uppákomum um allan heim ? meðal annars hér á Íslandi í Sky Lagoon í Kópavoginum. Svana er Skagakona sem er búin að búa í London í 24 ár og búin að afreka eitt og annað. Hún vann árum saman við að framleiða tónlistarmyndbönd með fólki eins og Kylie Minogue, Radiohead, Björk, Oasis, Coldplay, Rammstein, Adele, Rolling Stones og svo framvegis, en hún ákvað þegar hún var búin að vinna í leyni með David Bowie að síðustu myndböndunum hans; Black Star og Lazarus, að hún ætlaði ekki að gera fleiri tónlistarmyndbönd eða fleiri tónlistartengd verkefni, en svo fékk hún símtal frá ABBA sem spurðu; Viltu vera memm? Svana sló til og er búin að vera nánasti samstarfsmaður ABBA þessi fjögur ár sem liðin eru frá símtalinu og fyrir rúmri viku kom í ljós að það er ekki bara 10 laga ABBA plata á leiðinni með nýjum lögum, heldur er verið að setja upp ABBA tónleikassjó í London í nýrri ABBA höll sem verið er að byggja. Þar mun tölvu ABBA (eins og þau litu út 1979) birtast á sviðinu og flytja sína helstu smelli með lifandi stórri hljómsveit sem verður með tölvu-ABBA á sviðinu. Svana segir okkur frá þessu öllu í Rokklandi í dag. Ég mun aftur á móti segja frá henni Yolu Carter sem er frábær tónlistarkona frá Portishead á Englandi. Hún ólst upp hjá einstæðri móður og það var lítið til af peningum á heimilinu ? og mamma hennar reyndi að halda dóttur sinni frá tónlistinni ? hún vildi að hún næði sér í alvöru menntun og fengi sér vinnu við eitthvað praktískt svo hún myndi ekki lenda í sömu fátæktar-gildrunni og hún sjálf. Fyrir fyrstu sólóplötuna sína sem kom út 2019 hlaut Yola fjórar Grammy tilnefningar. Plata númer tvö kom út í sumar og er stórskemmtileg. Sting, Damon Albarn og Eddie Vedder koma líka aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Joni Mitchell og Blue 50 ára
    Í Rokklandi í dag heyrum við nokkur lög af nýrri plötu frá norsku sveitinni Kings of Convenience og heyrum slatta af annari nýrri músík með t.d. John Grant, Faye Webster, Lucy Dacus, Vincent Neil Emerson, Liz Phair, Rose City Band, Miley Cyrus ofl. En mesta púðrið fer í Joni Mitchell. Núna í vikunni se leið varð platan Blue með Joni Mitchell 50 ára. Blue er af mörgum talin ein merkilegasta plata sögunnar og það er staðreynd að hún lifir góðu lífi ? selst alltaf jafnt og þétt og er stöðugt að eignast nýja aðdáendur ? eins og Joni, þessi mikla og merkilega tónlistarkona sem hún er.
    1 hr 55 min
  • Siggi Guðmunds og Noel Gallagher
    Sigurður Guðmundsson ? Siggi Hjálmur, var að senda frá sér plötu sem heitir Kappróður. Hún er fyrsta sólóplatan hans með eigin lögum og hann er gestur Rokklands í dag í seinni hlutanum eftir 5. og við heyrum nokkur lög af plötunni. Noel Gallagher, eldri Oasis bróðirinn var að senda frá sér BEST OF plötu sem fór beint á toppinn á breska vinsældalistanum þegar hún kom út ? þetta er ss. Noel Gallagher?s High Flying Birds, og platan heitir Back The Way We Came: Vol 1 (2011-2021). Noel fór með hljómsveitinni sinni í hljóðverið sitt í London fyrir skemmstu, Lone Star Studios, og tók upp nokkur lög LÆV fyrir Ríkisútvörpin í Evrópu, EBU, og þar er Rás 2 á meðal, og við fáum að heyra þessar upptökur í þættinum. Svo heyrum við líka nýja músík frá Lucy Dacus, Láru Rúnars, Árstíðum, Lights on the Highway og Bubba.
    1 hr 55 min
  • Hörður Torfa og Dropar, Wolf Alice og Billy GIbbons
    Í Rokklandi í dag kynnumst við hljómsveitinni Wolf Alice en nýja platan þeirra; Blue Weekend, sem er fjórða plata sveitarinnar fór beina leið á toppinn á Breska vinsældalistanum þegar hún kom út í vikunni sem leið. Billy Gibbons úr ZZ Top var líka að senda frá sér plötu í síðustu viku ? þriðju sólóplötuna sína. Hún heitir Hardware og er bara nokkuð skemmtileg. Hún fór beint í 18. Sæti breska listans og við heyrum nokkur lög af henni í dag. Svo í seinni hlutanum kemur Hörður Torfason í heimsókn en hann var að senda frá sér plötu sem er eingöngu til á vilyl og heitir Dropar. Hún er 25. platan hans ? sú fyrsta kom út fyrir hálfri öld. Þetta eru eiginlega 12 baráttusöngvar, allt upptökur síðan 2010 sem Hörður var hálfpartinn búinn að gleyma. Hann segir okkur frá og við heyrum nokkur lög af plötunni.
    1 hr 55 min
  • Olivia Rodrigo, Moby og Dimma
    Í Rokklandi í dag kynnumst við ungstirninu Oliviu Ridrigo, en fyrsta og eina platan hennar (Sour) er á toppnum á vinsældalistunum í bæði Ameríku og Bretlandi þessa vikuna. Við heyrum líka lög af nýju plötunni hans Moby sem heitir Reprise og Víkingur Heiðar Ólafsson er þar meðal gesta eins og Kris Kristofferson og Mark Lanegan t.d. Og svo koma þeir Stebbi Jak og Ingó Geirdal úr Dimmu í heimsókn með nýju plötuna sem heitir Þögn.
    1 hr 55 min
  • Mdou Moctar, Chrissie Hynde og Músíktilraunir
    Í Rokklandi í dag kynnumst við skemmtilegum tónlistarmanni frá Níger í Afríku sem heitir Mdu Moctar. Hann er á samningi hjá Matador Records í Ameríku og var að senda frá sér skemmtilega plötu sem heitir Afrique Victime. Mdou er gítarleikari og hans uppáhalds gítarleikarar eru Jimi Hendrix og Eddie Van Halen. Chrissie Hynde forsprakki Pretenders var að senda frá sér plötu með lögum eftir Bob Dylan sem heitir Standing in the Doorway ? Chrissie Hynde sings Bob Dylan. Við heyrum nokkur lög af henni í þættinum. Og úrslit Músíktilrauna fóru fram í gær í Norðurljósum í Hörpu og sigursveitin heitir Ólafur Kram. Við heyrum í henni og í sveitunum sem lentu í öðru og þriðja sæti; Grafnár og Eilíf sjálfsfróun, og líka í hljómsveit Fólksins sem var valin í símakosningu og heitir Piparkorn. Ég spjallaði líka við hluta af dómnefndinni að tilraununum loknum, þau Heidu Eiriks, Arnar Eggert Thoroddsen og Árna Matthíasson um sigursveitirnar og Músíktilraunir í ár.
    1 hr 55 min
  • Arlo Parks, Paul Weller ofl.
    Í Rokklandi í dag förum við í seinni hlutanum á útvarpstónleika í Franska Ríkisútvarpinu með ensku tónlistarkonunni Arlo Parks sem var fyrir skemmstu valin nýliði ársins á Bresku tónlistarverðlaununum ? og hún er bókuð á Iceland Airwaves í haust. Við heyrum nýja músík með fólki eins og Manic Street Preachers, Son Volt, The Mountain Goats og Margo Price og Bob Dylan sem verður 80 ára á morgun kemur aðeins við sögu. En fyrst er það Breski tónlistarmaðurinn Paul Weller sem var að senda frá sér enn eina plötuna og það er ekki komið ár síðan hann gaf síðast út plötu. Nýja platan heitir Fat Pop Volume One, fór beint í toppsæti breska vinsældalistans og situr þar núna. Fat Pop er 8 platan hans sem nær toppsæti breska vinsældalistans en sólóplöturnar hans eru orðnar 16. Hann hefur í það heila komið 22 plötum inn á topp 10 í Bretlandi en þá er allt talið með, líka plötur hljómsveitanna hans, The Jam og Style Council.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners