Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Bob Dylan, Pink Floyd ofl
    Í Rokklandi í dag förum við á tónleika með Pink Floyd í Knebworth á Englandi árið 1990, sögufræga tónleika sem Pink Floyd var aðalnúmerið á, en hinir sem spiluðu voru Paul McCartney, Genesis, Phil Collins, Robert Plant og Jimmy Page, Dire Straits, Eric Clapton og Tears for Fears. Allir sem spiluðu gerðu það frítt, tónleikagestir voru ca. 120.000 talsins og það var verið að safna peningum til að setja á laggirnar Brit listaskólann sem var svo opnaður í Croydon í London 1991. Við heyrum nýja músík með fólki eins og Moby, Sturgil Simpson, King of Convenience, Nancy Wilson og fleirum, en byrjum á Bob Dylan sem verður áttræður 24. Maí. Maíhefti tónlistarblaðsins Uncut er tileinkað Bob. Þar er stór og mikil grein um hann þar sem haugur af fólki er m.a. að tjá sig um kynni sín af meistaranum, fólk eins og Paul McCartney, Robbie Robertson, Jackson Browne, Jeff Tweedy, Van Morrison, Graham Nash, Elton John, Roger Daltrey og margir fleiri. Blaðinu fylgir svo diskur með músík eftir Dylan sem er flutt af hinum og þessum sem Uncut bað um að taka upp sérstaklega fyrir þetta blað. Þetta eru listamenn eins og Flaming Lips, Richard Thompson, The Weather Station, Cowboy Junkies, Low og fleiri - og við ætlum að heyra nokkur þeirra í þættinum.
    1 hr 55 min
  • Tom Jones
    Welski söngvarinn Tom Jones er orðinn áttræður en hann heldur áfram að syngja og hljómar í raun eins og hann sé þrítugur. Hann var að senda frá sér plötu núna fyrir viku sem heitir Surrounded by time og er fjóðra platan í röð sem hann gerir með upptökustjóranum Ethan Johns. Platan fór beina leið í toppsæti breska vinsældalistans þegar hún kom út, fyrsta plata Tom Jones sem gerir það síðan Reload kom út 1999. Við ætlum að heyra aðeins af þessari nýju plötu og rifja upp hans sögu og feril Tom Jones í Rokklandi dagsins ? og heyra t.d. hluta af viðtali sem ég tók við hann þegar hann kom til Íslands og hélt tónleika í Laugardalshöll 2015.
    1 hr 55 min
  • Greta Van Fleet - Oscars lögin ofl.
    Í Rokklandi dagsins heyrum við nokkur lög af nýrri plötu bandarísku rokksveitarinnar Greta Van Fleet sem heitir The Battle at Garden?s Gate ? þetta er önnur platan þeirra og dómar eru allskonar ? fólk ýmist klappar fyrir þeim eða hlær að þeim. Við heyrum líka lögin fimm sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár ? lög frumsamin fyrir kvikmyndir, en eitt af þeim er eins og margir vita lagið Húsavík sem var samið fyrir Eurovision kvikmynd Will Ferrell ? og mikil stemning á Húsavík útaf því auðvitað og víðar en Óskarsverðlaunin verða afhent í kvöld í Hollywood og RÚV sýnir beint. Við heyrum líka nýja músík með Mick Jagger og Dave Grohl - Sigurði Guðmundssyni ? Bjartmari og Bergrisunum ? Gillon og BSÍ ? og nokkur gömul Óskarsverðlaunalög.
    1 hr 55 min
  • Vintage Caravan, U2, Teenage Fanlcub og Yasmin Williams
    Hljómsveitin The Vintage Caravan var að senda frá sér frábæra pltötu á föstudaginn ? kraftmikla rokkplötu sem heitirMonuments. Þetta er fimmta plata Vintage Caravan sem hefur verið starfandi núna í 15 ár. Þeir setjast niður með mér þeir Óskar Logi Ágústsson og Alexander úr Vintage Caravan og segja okkur frá plötunni og við heyrum nokkur lög í seinni hluta þáttarins. Yasmin Williams heitir Bandarísk gítarkona sem er alveg frábær. Hún er nýbúin að senda frá sér plötu sem heitir Urban Driftwood og er eingöngu leikin ? instrumental og kassagítarinn er í aðalhlutverki. Við kynnumst Yasmin Williams í þættinum í dag. Við heyrum líka nokkur lög af væntanlegri plötu skosku hljómsveitarinnar Teenage Fanclub sem kemur út í lok apríl, en byrjum á að skella okkur á tónleika með U2 í París.
    1 hr 55 min
  • The Weather Station - Arlo Parks
    Við kynnumst ensku tónlistarkonunni Arlo Parks í Rokklandi vikunnar. Hún er tvítug frá vestur London ? tónlistarkona og ljóðskáld og alveg stórskemmtileg. Hún er reyndar hálf Nígerísk, að einum fjórða frá Chad og einum fjórða frösnk. Mamma hennar var fædd í París og hún lærði frönsku áður en hún lærði Ensku. Fyrsta stóra platan hennar kom út fyrir skemmstu og við heyrum nokkur lög af henni í þættinum. The Weather Station er folk-músík hljómsveit sem er leidd af 36 ára gamalli konu sem heitir Tamara Lindeman. Og þessi hljómsveit sem samanstendur af fólki sem hún Tamara hefur safnað í kringum sig sendi nýlega frá sér plötu sem heitir Ignorance og er stór skemmtileg. Við heyrum nokkur lög af henni í þættinum í dag og kynnumst The Weather Station. Paul McCartney og Bítlarnir í ýmsum búningum eru líka fyrirferðamiklir í þættinum í dag, og Paul Weller, Angelique Kidjo, Yemi Alade, Moby og fleiri koma líka við sögu.
    55 min
  • Utangarðsmenn - Geislavirkir
    Í Rokklandi í dag ætlum við að hlusta á eina plötu ? og enga smá plötu ? heldur Geislavirkir með Utangarðsmönnum. Útgáfufyrirtækið Alda gaf hana nýlega út aftur nýlega í 40 ára afmælisútgáfu á bláum vinyl og þá fylgir með litla fjögurra laga platan sem kom út aðeins á undan Geislavirkir; Rækjuraggae. Gestir Rokklands í dag eru tveir Utangarðsmenn ? bræðurnir, gítarleikararnir Mikki og Danny Pollock. Þeir segja frá lögum og plötunni og rifja upp Utangarðsmannatímann sem voru 18 tíðindamiklir mánuðir 1980 ? 1981 og svo sprakk hljómsveitin í tætlur.
    1 hr 55 min
  • R.E.M. - Out of Time og Mogwai
    Þann 12. mars fyrir 30 árum og tveimur dögum kom út platan Out of Time með hljómsveitinni R.E.M.- hún á semsagt afmæli og við ætlum að halda upp á það í Rokklandi í dag. Við heyrum nýlegt viðtal við bassaleikarann Mike Mills þar sem hann rifjar upp þann tíma þegar þeir félagar voru að gera plötuna og heyrum líka Unplugged upptökur með R.E.M. frá ríkisútvarpinu í Hamborg í þýskalandi, NDR, frá 5. Mars 1991, en R.E.M. fór í kynningartúr um Evrópu og víðar til að kynna plötuna á sínum tíma og spilaði órafmagnað hér og þar. Svo heyrum við nokkur lög af nýju Mogwai plötunni sem fór beina leið í toppsæti breska vinsældalistans fyrir hálfum mánuði þegar hún kom út, öllum að óvörum, og ekki síst hljómsveitinni sjálfri. Nýja platan; As the love continues, er tíunda plata skosku sveitarinnar Mogwai og engin hinna hefur náð toppnum í Bretlandi. Abba kemur líka aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Red Barnett ofl.
    Í Rokklandi í dag er fjallað um nýjustu plöta íslensku hljómsveitarinnar Red Barnett og forsprakki Red Barnett, Haraldur V Sveinbjörnsson, kemur í heimsókn og segir okkur frá plötunni. Við heyrum svo líka nýja músík með t.d. Real State, Dinosaur Jr. Jose Gonzales og Wolf Alice, og David Bowie og Simon og Garfunkel koma aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Barry Gibb, Ellen Kristjáns og John Grant, Nick Cave, Vök ofl.
    Í Rokklandi í dag kemur Ellen Kristjánsdóttir í heimsókn og heyrum nýtt lag sem þau sygja saman hún og vinur hennar John Grant. Lagið er eftir Ellen en textinn eftir Braga Valdimar Skúlason og þau syngja á íslensku. Við fáum líka nýtt lag sem Pálmi Gunnarsson félagi og vinur Ellenar úr Mannakornum syngur. Margrét Rán úr Vök verður á línunni vegna ævintýra hennar með GusGus. Við heyrum nokkur lög af splunkunýrri plötu sem þeir Nick Cave og Warren Ellis voru að senda frá sér og heitir Carnage. Við heyrum líka Richard Ashcroft syngja lag eftir John Lennon sem hann var að senda frá sér. Svo er það Barry Gibb ? sá eini sem lifir af þeim Gibb bræðrum í Bee Gees ? hann var að senda frá sér plötu sem heitir Greenfields - The Gibb Brothers Songbook, Vol. 1. Þar er að finna hin og þessi lög úr söngvabók Gibb bræðra í kántrí-útsetningum og með Barry á plötunni eru hinir og þessi gestir sem syngja með honum lögin. Fólk eins og Alison Krauss, Tommy Emanuel, Dolly Parton, Jsaon Isbell, Keith Urban og Sheryl Crow.
    1 hr 55 min
  • Fræbbblarnir - Viltu nammi væna?
    Ein fyrsta platan sem ég keypti sjálfur þegar ég var strákur var platan Viltu nammi væna með Fræbbblunum. Það eru 40 ár síðan. Ég hlustaði mikið á hana ? tók hana upp á kassettu og leyfði öllum að heyra sem heyra vildu, en líka öðrum sem höfðu minni áhuga á því ? þessi músík var ekki allra ? þetta var pönk, íslenskt pönk og alveg hreint stórskemmtilegt. Fræbbblarnir voru í lykilhlutverki í Rokki í Reykjavík sem ég drakk í mig og sá aftur og aftur þegar ég var strákur. Í Rokklandi í dag ætlum við, ég og Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbbblanna (sem eru enn starfandi og að vinna að nýrri plötu þessa dagana) að hlusta á nammið frá upphafi til enda, öll 18 lögin. Þetta er plata sem olli straumhvörfum á sínum tíma og er safngripur í dag sem selst dýrum dómum. Það er pönk í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners