Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Bubbi, BSÍ, Skoffín, Foo Fighters, The Cure ofl.
    Í Rokklandi í dag ætla ég að koma víð á ýmsum stöðum. Við heyrum nokkra ástarsöngva frá Bubba til að byrja með og hann segir frá lögunum ? en hann er með tónleika í kvöld í streymi frá Hlégarði í Mosfellsbæ þar sem ástarsöngvar eru málið ? á Valentínusardegi. En svo heyrum við líka upptökur með tveimur skemmtilegum íslenskum hljómsveitum sem voru gerðar fyrir Eurosonic tónlistarhátíðina í Hollandi sem var núna í janúar. Hljómsveitirnar eru BSÍ og Skoffín. Við kíkjum aðeins á nýju Foo Fighters plötuna sem var að koma út, heyrum nokkur lög af henni og svo heyrum við Tricky, Pheobe Bridgers og Cowboy Junkies spila Cure ? og svo í restina í Ukulellum.
    1 hr 55 min
  • Mánar - Mánar 1971
    Árið 1971 - fyrir 50 árum síðan kom út plata með hljómsveitinni Mánar frá Selfossi. Mánar voru á þessum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins, spiluðu á böllum um allt land og reyndar víðar og allstaðar var fullt hús. Og Mánar spiluðu það sem þeim datt í hug ? allskonar músík sem myndi líkast til ekki þýða fyrir hljómsveitir að spila á böllum í dag. Platan heitir Mánar og inniheldur lög eins og Villi verkamaður, Leikur að vonum og Þriðja heimstyrjöldin. Við ætlum að hlusta á þessa plötu alla í Rokklandi í dag og tveir Mánar af fimm eru með okkur - þeir Ólafur Þórarinsson (Labbi) söngvari og gítarleikari og trommarinn Ragnar Sigurjónsson (Gösli).
    1 hr 55 min
  • Phil Spector 1939-2021
    Í Rokklandi í dag ætla ég að fjalla um snillinginn og morðingjann Phil Spector sem lést 16. Janúar sl. 81 árs að aldri. Spector var búinn að sitja í fanglelsi síðan 2009 fyrir morðið á leikonunni Lönu Clarkson sem hann sagði reyndar að hefði skotið sig sjálf - óvart, á heimili sínu í Los Angeles árið 2003. Phil Spector sló í gegn aðeins 19 ár gamall með sínu fyrsta lagi; To know him is to love him. Titilinn fékk hann af legsteini pabba síns sem framdi sjálfsmorð þegar Phil var 9 ára gamall. Mamma hans var geðveik. 21 árs var hann orðinn miljónamæringur og búinn að stofna plötufyrirtæki. Það lék allt í höndunum á honum og allt sem hann snerti varð að gulli. Hann er maðurinn á bakvið „Wall of sound“ sem hann fékk með því að taka upp stórar hljómsveitir með mörgum hljóðfæraleikurum. Það var ekki óvanalegt að hann notaði 4 og 5 gítarleikara í upptökum og annað eins af píanóleikurum. Einn þeirra - Don Randi talar um Phil Spector í þættinum. Þeir voru vinir. Ég spjallaði við Randi í Rokklandi fyrir nokkrum árum. Phil Spector er maðurinn á bakvið marga stærstu smelli sjöunda og áttunda áratugarins; You?ve lost that loving feeling (The Righteous Brothers). Be my baby (The Ronettes). He?s a rebel (The Crystals). River deep, mountain high (Ike & Tina Turner). Unchained melody (The Righteous Brothers). The Long and winding road (The Beatles). Imagine (John Lennon). My Sweet Lord (George Harrison) og þannig mætti lengi telja. En smátt og smátt hætti frægðarsólin að skína á þennan mikla meistara sem hann var. Hann varð sífellt sérkennilegri í háttum - lokaði sig meira og minna inni í höllinni sinni glæsilegu í Hollywood og endaði svo lífið í fangelsi - dæmdur fyrir morð á ungri fallegri konu. Meira um Phil Spector - manninn og músíkina í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min
  • Eurosonic 2021
    Við ætlum að fara til Hollands í Rokklandi á dag á Eurosonic festival sem fór fram í vikunni sem leið og um helgina og heyra það heitasta og nýjasta í Evrópskri tónlist. Eurosonic - Norderslag er hátíð sem haldin hefur verið í Groningen í norður Hollandi árum saman í upphafi árs. Þetta er hátíð sem minnir á Iceland Airwaves -það er spilað um alla borg, á börum, kaffihúsum, í leikhúsum, klúbbum, tónleikahúsum og kirkjum svo eitthvað sé nefnt - Evrópski músíkbransinn hefur flykkst til Groningen í janúar undanfarin mörg ár til að sjá og heyra það heitasta í nýrri Evrópskri músík - en til þess að fá að spila þar þarftu helsta að vera búinn sanna þig á heimavelli - í heimalandinu og helst komin með amk. annan fótinn út fyrir landsteina eða landamæri, og á Eurosonic hafa fjölmargir íslenskir tónlistarmenn spilað í gegnum tíðina. Á Eurosonic mæta fjölmiðlar - öll Ríkisútvörpin í Evrópu, músíkblöðin og vefmiðlar, tónleikabókarar - fulltrúar tónlistarhátíða, umboðsmenn og bara músík-bransinn eins og hann leggur sig, þeas þegar allt er eðlilegt sem er ekki málið núna. Eurosonic fór fram í ár en bara á netinu. Groningen - þessi skemmtilega háskólaborg sem geymir svo mikið af ungi fólki iðaði ekki af lífi eins og svo mörg undanfarin ár á þessum tíma, heldur voru göturnar tómar eins og klubbarnir og kirkjurnar sem hefur venjulega verið spilað í - og allt fór fram á netinu. Fólk kom sem fyrir fyrir framan tölvurnar sínar og horfði í rólegheitum á stutta tónleikadagskrá sem hljómsveitrinar og listamennirnir voru búnir að taka upp (hljóð og mynd) og senda til hátíðarinnar. Fjórir Íslenkir listamenn og hljómsveitir gerðu það t.d.- Daði Freyr sem var eiginlegur fulltrúi Rásar 2 og RÚV á hátíðinni, Kristín Sesselja og svo hljómsveitirnar BSÍ og Skoffín. Við ætlum að heyra það sem Daði og Kristín Sesselja sendu Eurosonic í þættinum í dag - geymum BSÍ og Skoffín þar til síðar og svo ætlum við að setja fókusinn á MMETA verðlaunin sem voru afhent 8 Evrópskum listamönnum og hljómsveitum sem hafa náð góðum árangri þvert á landamæri í Evrópu á undanföru ári. Verðlaunin voru afhent í vef-streymi og Kryddstúlkan Mel C afhenti verðlaunin. Við heyrum ss. það heitasta í nýrri Evrópskri tónlist í Rokklandi í dag og rifjum svo í lokin upp tónleika Kaleo á Eurosonic 2015.
    1 hr 55 min
  • Bob Dylan - Rough and rowdy ways
    Bob Dylan á plötu ársins í bresku tónlistarblöðunum Uncut og Mojo í ár auk þess sem platan hans; Rough and Rowdy ways, sem kom út síðasta sumar er í öðru sæti á lista Metacritic yfir plötur ársins en þar er öll gagnrýni ársins tekin saman. Ég hlustaði á plötuna þegar hún kom út en fannst hún frekar leiðinleg og nennti ekki að gera henni skil hérna í Rokklandi - Dylan aðdáandinn sem ég er. Ég varð hreinlega fyrir vonbrigðum með plötuna. En ákvað að hlusta á hana betur og fjalla um hana í dag - mér hlýtur að hafa yfirsést eða heyrst snilldin úr því hún fær svona góða dóma. Við heyrum nokkur lög af henni í þættinum í dag auk þess sem Guðmundur Andri Thorsson Dylan aðdáandi og sérfræðingur og þingmaður flytur okkur stutta hugvekju um Dylan og plötuna. Þar fyrir utan er ég svo með helling af splunkunýrri músík með fólki eins og Al Green, Sycamore Tree , Taylor Swift, Ingu Björk Ingadóttur, Willie Nelson, Cygnus, Celeste og David Bowie sem hefði einmitt orðið 74 ára á föstudaginn ef hann hefði lifað og í dag eru 5 ár frá því hann lést.
    1 hr 55 min
  • McCartney III
    Mesta púðrið í Rokklandi vikunnar fer í Sir Paul McCartney - Paul úr Bítlunum sem er orðinn 78 ára gamall, en hann var að senda frá sér plötu sem heitir McCartney III - hún kom út núna 18. desember og er síðasti hlutinn í þríleik segir hann. Hinar plöturnar eru McCartney sem kom út 1970 þegar Bítlarnir voru að liðast í sundur og McCartney II sem kom út 1980 þegar hljómsveitin Wings var að syngja sitt síðasta. McCartney III er tekin upp í „rockdown“ eins og Paul kallar það, en hann spilar á öll hljóðfæri og gerir allt sjálfur eins og á hinum McCartney plötunum. McCartney III fór í fyrsta sæti breska vinsældalistans þegar hún kom út, en Paul hefur ekki átt plötu í efsta sæti breska listans síðan Flowers in the dirt kom út 1989. En þar fyrir utan heyrum við nýja músík með Taylor Swift, Phoebe Bridgers, Margréti Eir, Coldplay, Barry Gibb, Eivør ofl.
    1 hr 55 min
  • Bestu erlendu plöturnar 2020?
    Síðasta Rokkland ársins er á dagskrá Rásar 2 í dag kl. 16.05 og ég ætla að spila lög af nokkrum erlendum plötum sem mér og ýmsum öðrum þykja standa uppúr eftir árið sem er að kveðja - en ég hef fjallað um talsvert af þessum plötum í þættinum á árinu og flestar eiga þær það sameiginlegt að vera á hinum ýmsu listum yfir plötur ársins 2020. Rokkland - mikil músík - mikið mas.
    1 hr 50 min
  • JólaRokkland
    Já það eru jól í Rokklandi í dag - jólaball Rokklands - bara jólamúsík og ekkert annað, sérvalin lög hvert og eitt einasta og þetta er meira og minna allt splunknýtt sem við ætlum að hlusta á í dag - annaðhvort ný jólaög eða eldri jólalög í nýjum búningi, nýjar útgáfur og það er af nógu að taka. Ég held að það hafi aldrei komið eins mikið út af nýrri jólamúsík og núna 2020 hvernig sem stendur á því. Dolly Parton var að senda frá sér jólaplötuna A Holly Dolly Christmas og við heyrum nokkur lög af henni - skemmtileg Dolly plata með fullt af góðum gestum. Mark Lanegan var líka að gefa út jólaplötu undir nafninu Dark Mark - Dark Mark does Christmas og við heyrum nokkur lög af henni. Þar fyrir utan heyrum við í Pheobe Bridges og Jackson Browne saman og sundur, Keb Mo, Best Coast, Black Pumas, Nick Lowe og Los Straitjackets, Jamie Cullum, Sam Fender, Sigga Guðmunds og GDRN, Bo Hall, Orra Harðar, Chilly Gonzales, Tori Amos ofl. - allt áhugavert og skemmtilegt. Jólalag er ekki bara jólalag - en hvað gerir lag að jólalagi? Jú það virðist vera nóg að það sé minnst á jólin í textanum. Og í Jólarokklandi er sungið um gleðileg jól en líka um jól einstæðinga, heimilislausra og annara sem upplifa ekki endilega gleðileg jól - það er allur gangur á því hvernig fólk hefur það um jólin og það er til fullt af músík sem fjallar um það og við heyrum svoleiðis lög líka í Jólarokklandi - og gamla sálma í nýjum búningi og allt mögulegt. Allskonar - eins og Makkintosið er.
    1 hr 50 min
  • Salome Katrín, Calexico, Hanna Mia ofl
    Í Rokklandi í dag skoðum við og hlustum á tvær nýjar jólaplötur - annarsvegar plötuna Seasonal Shift með Bandarísku Tex-Mex indí hljómsveitinni Calexico og hinsvegar plötuna Winter songs með sænsk-íslenskri ungri konu sem heitir Hanna Mia Brekkan . Við heyrum svo viðtal við Salóme Katrín Magnúsdóttir um nýju plötuna hennar sem heitir Water, en núna í vikunni hlaut platan hennar Kraumsverðlaunin - ein af sex plötum sem hlaut þau í ár og við óskum henni til hamingju með þau. Og svo eru ýmsir aðrir sem koma aðeins við sögu - Jess Glynne, Jack Johnson og Bruce Springsteen t.d.
    1 hr 55 min
  • Sváfnir Sigurðarson, Tríó Bjössa Thor og Jól ofl.
    Við komum við á ýmsum stöðum í Rokklandi dagsins - byrjum á nokkrum jólalögum af 15 ára gamalli stórfínni jólaplötu sem var að koma út núna í fyrsta sinn á vinyl - platan Jól með tríói Bjössa Thor. Sváfnir Sigurðarson var að senda frá aðra sólóplötuna sína núna í vikunni -platan heitir Jæja Gott Fólk og ég spjalla við hann í þættinum um plötuna og lífið og tilveruna. Og svo koma Liam Gallagher, Alanis Morissette, Peter Bjorn og John, George Harrison, Teenage Fanclub og Calexico t.d. líka aðeins við sögu.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners