Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Dylan, Bítlar, Eagles, R.E.M. ofl.
    Það er 20. september í dag og dagurinn í dag í gegnum tíðina kemur aðeins við sögu í þættinum í dag - litlir atburðir í tónlistarsögunni þennan dag gegnum tíðina. Meðal þeirra sem koma við sögu í dag eru fólk og listamenn eins og Blind Faith, Fountains of Wayne, Bítlarnir, Bob Dylan, Miley Cyrus, Gillian Welch, Matt Behringer, The Jayhawks, Ben Kweller og Billie Joe Armstrong - og svo förum við á tónleika með Eagles og R.E.M.
    1 hr 55 min
  • Taylor Swift - Rolling Stones og Goast Head soup og aðeins meiri Jazz
    Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift gerir það gott þessa dagana - nýja platan hennar - Folklore, er búin að vera í sex vikur á toppnum á Bandaríska vinsældalistanum - og platan hennar sem kom út í fyrra var mest selda plata síðasta árs í heiminum - við heyrum í Taylow Swift í Rokklandi dagsins og lög af öllum hennar plötum. Svo er það Rolling Stones - þeir voru að senda frá sér lúxus útgáfu af plötunni Goats Head Soup sem kom út 1973 sem er stórfín plata og við hlustum aðeins á Goats Head Soup í þættinum. En í þættinum fyrir hálfum mánuði var Vernharður Linnet gestur minn - og við vorum að spjalla um Jazz og spila Jazz fyrir byrjendur. Við hlustuðum á Luois Armstrong, Coleman Hawkins, Duke Ellington, Count Basie, Bennie Goodman, Charlie Parker, Art Blakey, Gerry Mulligan, Miles Davis og Ornette Coleman og þar þurftum við að hætta vegna þess að tíminn var búinn - en Venni var ekki búinn að fara alla leið - við þurftum að hætta í miðju kafi og fyrstu mínúturnar í dag fara í að klára jazz fyrir byrjendur.
    1 hr 55 min
  • Hörður Torfason syngur eigin lög
    Hörður Torfason söngvaskáld, leikari og leikstjóri fagnaði 75 ára afmæli sínu síðasta föstudag - og í ár eru liðin 50 ár frá því hann gerði fyrstu plötuna sína. Og í ár eru líka 45 ár frá því Hörður sagði þjóðinni frá því í viðtali fyrstur íslendinga að hann væri hommi. Það hafði gríðarleg áhrif á líf Harðar og margra annara. 2020 er mikið afmælisár hjá Herði og mér fannst það kjörin ástæða til að fá hann í heimsókn í Rokkland og það sem við ætlum að gera er að hlusta saman á fyrstu plötuna hans - þessa 50 ára gömlu plötu; Hörður Torfason syngur eigin lög, sem hefur að geyma lög eins og Þú ert sjálfur Guðjón, Lát huggast barn, Ég leitaði blárra blóma og kveðið eftir vin minn. Við ræðum um viðtalið í Samúel 1975, um Búsáhaldabyltinguna 2008, um íslenska hunda, músíkina og lífið og tilveruna almennt.
    1 hr 55 min
  • Jazz fyrir byrjendur
    Jazzhátíð í Reykjavík stendur yfir þessa dagana - hófst í gær og stendur til næsta laugardags. Þar er ýmislegt áhugavert á dagskránni - flott prógramm fyrir þá sem hafa gaman af Jazzmúsík - og í tilefni af Jazzhátíð ákvað ég að gera það sem ég hef ætlað mér í nokkur ár sem er að tala um Jazz í Rokklandi. Hvað er jazz? Hvaðan kemur hann? Hver hlustar á hann og er eitthvað í þetta varið? Hverjir eru helstu persónur og leikendur? Gestur Rokklands í dag og sá sem ætlar að leiða okkur um undraveröld jazz-heima er einn helsti Jazzmaður þjóðarinnar - útvarps og blaðamaðurinn og Jazz-spesíalistinn Vernharður Linnet.
    1 hr 55 min
  • Neil Young - Homegrown ofl
    Við ætlum að koma víða við í þessum fyrsta Rokklandsþætti eftir sumarfrí og heyra heilmikið af nýrri músík sem hefur verið að koma út undanfarna daga með fólki eins og Volcanova, Sólstöfum, The Clockworks frá Galway á Írlandi, Ariönnu Ferro, Angurværð, Kristínu Sesselju og Sigríði Guðnadóttur. Við rifjum líka upp þá tíma þegar Birthday Sykurmolanna var smáskífa vikunnar í NME og Melody Maker í Bretlandi í sömu vikunni um þetta leiti árið 1987. Og svo rifjum við líka upp tónleika Bjarkar á Roskilde Festival sumarið 2007 - heyrum þrjú lög með henni þaðan. En byrjum á Neil Young sem sendi frá sér fertugustu hljóðversplötuna í sumar, plötu sem átti upphaflega að koma út fyrir 45 árum árum síðan, en var semsagt að koma út núna. Hún heitir Homegrown og Neil segir sjálfur að hún sé týndi hlekkurinn milli Harvest, Comes a time og Harvest moon.
    1 hr 55 min
  • Egó - Breyttir tímar
    Bubbi Morthens kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir 40 árum síðan með fyrstu plötunni sinni- Ísbjarnarblús sem fjölmiðlar og háskólaprófessorar kölluðu Gúanórokk á þeim tíma. Í Kjölfarið eða eiginlega á sama tíma varð hljómsveitin Utangarðsmenn til sem starfaði hratt og örugglega í eitt og hálft ár eða þar um bil, gaf út fjórar plötur - litlar og stórar - spilaði c.a. 300 sinnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Utangarðsmenn gerðu allt vitlaust - þeir og Bubbi voru stjörnur unglinganna á Íslandi - Friðrik Þór gerði heimildamyndina Rokk í Reykjavík í raun um Bubba og kraftinn í kringum hann - það hefðu átt að vera Utangarðsmenn, en þeir voru hættir - þeir ráku Bubba í raun úr hljómsveitinni síðla sumars 1981 - en Bubbi - stærsta - LANG-stærsta poppstjarna landsins á þeim tíma lét það ekki slá sig út af laginu og stofnaði bara nýja hljómsveit - hún fékk nafnið EGÓ og Egó varð á svipstundu vinsælasta hljómsveit landsins - er þetta ekki nokkurn vegin rétt strákar - gestir Rokklands í dag eru þeir Bubbi og bassaleikari Egósins fyrsta árið- Þorleifur Guðjónsson.
    1 hr 46 min
  • Guðmundur R. og Brek
    Guðmundur Rafnkell Gíslason sem sumir þekkja sem söngvara hljómsveitarinnar Sú Ellen frá Neskaupsstað er gestur Rokklands í dag. Guðmundur sendi fyrir skemmstu frá sér þriðju sólóplötuna sína - Sameinaðar sálir. Hún var plata vikunnar á Rás 2 og fékk ágæta dóma hjá Andreu og Arnari Eggert. Við ætlum að heyra nokkur lög af plötunni í þættinum í dag og ég ætla að spjalla við Guðmund um tónlistina og fleira, en eitt af lögum plötunnar er eitt af mest spiluðu lögunum á Rás 2 um þessar mundir. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við svo nýrri íslenskri hljómsveit sem heitir Brek, heyrum nokkur lög sem sveitin tók upp á fámennum tónleikum í Norræna húsinu laugardaginn fyrir viku. Brek er „folk-band“ - spilar akústíska þjóðlagatónlist og sumir sem hafa heyrt hafa líkt sveitinni við Spilverk Þjóðanna. Brek ætlar að spila eins mikið og hægt er á næstunni, og næstu tónleikar verða á hinum nýenduropnaða Café Rosenberg, (ásamt Svavari Knúti), fimmtudaginn 4. júní næstkomandi, en Café Rosenberg er að opna þar sem Fríða Frænka var áður á Vestugötunni í Reykjavík.
    1 hr 48 min
  • Jet Black Joe - Jet Black Joe 1992
    22. okóber 1992 kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar Jet Black Joe - platan Jet Black Joe. Þessir fimm ungu menn úr Hafnarfirði (að mestu) sem skipuðu sveitina urðu þjóðþekktir á svipstundu - það vissu allir af Jet Black Joe - allir strákar og allar stelpur og foreldrar þeirra líka - músíkin höfðaði til breiðs hóps. Jet Black Joe spilaði Rokk með stóru R-i og hálfgert hipparokk. Þeir vor kornungir þessir strákar, flestir 17 og 18 ára en einn 22ja - gítarleikarinn og aðal lagasmiðurinn Gunnar Bjarni Ragnarsson. Þeir spiluðu um allt land - slógu í gegn, gerðu þrjár plötur á stuttum tíma og hættu svo mörgum að óvörum vegna þess að áhuginn fyrir Jet Black Joe var talsverður í útlöndum og margir trúðu því innilega að Jet Black Joe yrði heimsfræg hljómsveit. En það varð nú ekki. Amk. ekki enn. Þeir Páll Rósinkranz söngvari og hjómborðsleikarinn Hrafn Thoroddsen hlusta með okkur í Rokklandi í dag á fyrstu plötu Jet Black Joe og segja okkur sögur.
    1 hr 55 min
  • Little Richard og Jason Isbell
    Það hefur verið talsvert um það undanfarið að þekktir tónlistarmenn séu að falla frá af ýmsum ástæðum. Það var sagt frá John Prine í Rokklandi núna um daginn, Covid 19 tók hann, eins og Dave Greenfield hljómborðsleikara Stranglers sem var fjallað um í síðasta þætti. Little Richard sem er sannarlega einn af frumkvöðlum Rokksins lést laugardaginn fyrir viku úr krabbameini 87 ára að aldri. Hans saga verður sögð í Rokklandi vikunnar og lögin hans spiluð. Í seinni hlutanum heyrum við svo nokkur lög af splunkunýrri plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jason Isbell sem hann var að gera með hljómsveitinni sinni The 400 Unit. Platan heitir Reunions. Paul Weller, Bob Dylan, Badly Drawn Boy, David Bowie og Kristín Sesselja koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Dave Greenfield og Stranglers
    Þeir falla eins og dægurflugur tónlistarmennirnir um þessar mundir og bara á einni viku hafa þrír merkir tónlistarmenn fallið frá. Florian Schneider úr Kraftwerk, gríðarlega merkilegur og áhrifamikll tónlistarmaður sem þeir félagar Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson fjölluðu um í skemmtilegum Víðsjárþætti á Rás 1 í vikunni. Florian lést reyndar 21. apríl en það var ekki sagt frá því fyrr en í vikunni sem leið. Little Richard sem er einn af stóru frumkvöðlum rokksins lést núna í gær. Hann náði 87 ára aldri. Hann var með krabbamein eins og Florian Schneider. Það verður fjallað um LIttle Richard í Rokklandi eftir viku. En í þættinum í dag ætla ég að fjalla um þriðja manninn sem féll frá í vikunni sem leið. Hann lést 71 árs að aldri síðasta sunnudag, hét Dave Greenfield og hann var hljómborðsleikari The Stranglers. Það verður skautaðyfir feril Stranglers í þættinum í dag. Við heyrum líka í Margréti Eir, en fyrsta platan hennar kom út á Spotify í vikunni, skemmtileg kóverlagaplata sem heitir Meir. Og svo heyrum við líka nokkur lög af annari kóverlagaplötu sem bandaríska tónlistarkonan Joan As Policewoman var að senda frá sér og heitir Cover Two.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners