Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Páll Óskar í 50 ár
    Gestur Rokklands í dag er Popppstjarnan Palli, Páll Óskar Hjálmtýsson sem er búinn að vera Poppstjarna með stóru P-i í 30 ár. Hann sló í gegn 19 ára þegar hann tók þátt í söngkeppni framhaldsskólanna og er í raun búinn að vera stjarna síðan. En það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera Páll Óskar, líf hans hefur gengið upp og niður eins og hjá flestum og hann segir okkur frá því í þættinum, en hann segir okkur líka frá ýmsu öðru sem á daga sína hefur drifið auk þess sem við tölum um lögin hans og heyrum nokkur í þættinum auðvitað. En tilefni heimsóknarinnar í Rokkland er að Palli er að vera fimmtugur og ætlar að fagna afmælinu með stórtónleikum í Háskólabíói um miðjan mars, þrisvar sinnum. Þar ætlar hann að fara yfir ferilinn með 17 manna hljómsveit Rigg viðburða og á lagalistanum er eitt og annað sem Palli syngur ekki venjulega þegar hann treður upp. Palli segir ýmsar sögur í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 48 min
  • Billie Eilish, James Bond og Sigurður Árnason
    Í Rokklandi í dag minnumst við Sigurðar Árnasonar tónlistarmanns - bassaleikara Tóna og Náttúru td. en hann lést fyrir skemmstu. Sigga Árna var líka upptökumaður og upptökustjóri, hann gerði t.d. Ísbjarnarblús - fyrstu plötuna með Bubba á sínum tíma, gerði Bubba kassavanann eins og hann segir sjálfur í þættinum. Hreinn Valdimarsson hljóðmaður hjá RÚV og Pétur Stefánsson tónlistar og myndlistarmaður segja okkur líka frá Sigga. Þeir voru báðir kunningjar hans en fyrst og fremst aðdáendur verka hans. Billie Eilish, James Bond og Bond-lög síðustu tveggja áratuga koma líka við sögu.
    1 hr 49 min
  • Maður er nefndur Þorsteinn Eggertsson
    Þorsteinn þessi Eggertsson sem yfirleitt er kallaður Steini er fæddur í heimahúsi í Keflavík (Túngötu 10, í elsta hluta bæjarins), 25. febrúar, 1942, í miðri seinni heimsstyrljöldinni. Steini er snar þáttur í íslenskri dægurlagasögu - hefur samið marga texta sem við kunnum mörg og höfum oft sungið. Hann byrjaði að syngja og semja texta eiginlega fyrir tilviljun - var orðinn Bítill á undan Bítlunum í raun og vera - en Bítlana átti hann eftir að hitta og taka viðtal við þá, og líka Rolling Stones. Þá var hann ungur blaðamaður í Kaupmannahöfn. Hann samdi texta fyrir Hljóma, Ladda, Björgvin Halldórsson og Brimkló, Lónlí Blú Bojs, Þú og ég, Flowers, HLH, fyrir Disney myndir ofl - fleiri hundruð texta í það heila. Hann er líka leikstjóri, leikari, Elvis Eftirherma, rithöfundur og skopmyndateiknari og svo margt fleira auk þess að vera heiðursmeðlimur í FTT Núna 22. febrúar (næsta laugardag) er planið að taka ofan fyrir Steina - og syngja slatta af þeim textum sem hann hefur samið og hann verður uppi á sviði líka og segir frá milli laga. Yfirskriftin er: Söngvar um lífið. Þetta fer alltsaman fram í Salnum í Kópavogi, þar sem hann giftist Fjólu konu sinni einmitt fyrir nokkrum árum. Og ég ákvað af þessu tilefni að reyna að fá Steina í Rokkland - fá hann til að segja mér frá lífi sínu, samferðamönum og textunum sínum. Og hann mætti. Við heyrum það í Rokklandi í dag.
    1 hr 50 min
  • Ásgeir Trausti - Sátt
    Ásgeir Trausti er gestur Rokklands í dag. Hann sendi í gær frá sér þriðju stóru plötuna sína sem heitir Sátt á Íslensku en Bury the moon á Ensku. Hún minnir meira á fyrstu plötuna hans, Dýrð í dauðaþögn en aðra plötuna, Afterglow, sem kom út 2017. Í plötubúðum hér á landi er hægt að ná í eintök í takmörkuðu upplagi sem innihalda báðar plöturnar saman í pakka. Bæði á tvöföldum geisladisk og tvöföldum vínyl. Ásgeir eyddi nokkrum vikum aleinn úti í sveit við að semja lög á þessa plötu. Hann tók með sér gítar, hljómborð og lítið upptökutæki, hljóp á morgnana og samdi svo á daginn. Og nú er platan ss. komin út og hann farinn í tónleikaferð um heiminn með sínu fólki. Við Ásgeir spjöllum saman um lífið og tilveruna og hlustum saman á Sátt í Rokklandi í dag.
    1 hr 49 min
  • Music Moves Europe Talent Awards, Oscars lög og Andy Gill
    Á Eurosonic Festival sem fram fór í Gorningen í Hollandi fyrir hálfum mánuði voru afhent 8 ungum listamönnum frá Evrópu verðlaun sem heita Music Moves Europe Talent Awards. Þeta eru tónlistarverðlaun fyrir ungt fólk í Evrópu sem gengið hefur vel á undanförnu ári að brjótast yfir landamæti. Sérstök dómnefnd valdi þessa 8 listamenn úr 16 sem voro tilnefndir eftir flóknum reglum og Steinunn J?onsdóttir úr Reykjavíkurdætrum var í dómnefndinni. Hún er umsjónarmanni til halds og trausts í þættinum og saman hlusta þau á allt þetta unga fólk. Þetta er allskonar músík enda verðlaunað í 8 flokkum; R&B, elektró, hip hop, Þungarokk, rokk, í Söngvaskáldaflokki ofl. Í þættinum heyrum við lík a lögin 5 sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokknum Besta lag frumsamið fyrir kvikmynd og við minnumst Andy Gill gítarleikara Gang of Four sem er látinn.
    1 hr 50 min
  • Land og Synir - Herbergi 313
    Núna í nóvember voru liðin 20 ár frá því önnur plata Lands og Sona, Herbergi 313 kom út- plata sem var tilnefnd til verðlauna og fékk góða dóma á sínum tíma. Af því ætlar Hreimur Örn Heimisson forsprakki sveitarinnar að hlusta á alla plötuna með umsjónarmanni og segja frá. Segja sögurnar á bakvið lögin og svo framvegis.
    1 hr 50 min
  • Bestu erlendu plöturnar 2019?
    Áramót eru tími uppgjöra, þá er gott að staldra við og hugsa málið, spá í hvað vel var gert á árinu sem leið og hvað var ekki alveg jafn gott og skemmtilegt. Menn strengja áramótaheit, skella sér í ræktina eftir jólasukkið, lofa bót og betrun og það alltsaman - þið þekkið þetta. Í þessum öðrum Rokklandsþætti nýs árs spilar umsjónarmaður lög af nokkrum erlendum plötum sem honum þykja standa uppúr eftir síðasta ár, og í raun eru þetta mestmegnis plötur sem átti alltaf að gefa smá pláss í Rokklandi en svo kom bara alltaf eitthvað annað og tók það pláss. Það verða spilum 1-2 eða 3 lög af þessum plötum sem eru fjölbreyttar og héðan og þaðan en eiga það allar sameiginlegt að þær vöktu áhuga umsjónarmanns á árinu og honum þykja skemtilegar og eða áhugaverðar - þetta eru KANNSKI bestu plötur ársins 2019. Þetta eru t.d. Ghosteen með Nick Cave og Bad Seeds, Kiwanuka með Michael Kiwanuka, Dogrel með Fontains D.C. - Amyl and the Sniffers með Amyl and the sniffers, Western Stars með Burce Springsteen, Colorado með Neil Young og Crazy Horse, Shepherd in a Sheepskin Vest með Bill Callahan (Smog), Jamie með Britanny Howard, Reward með Cate Le Bon, The Highwomen með The Highwomen, og Two hands með Big Thief. Hlustið og þér munið heyra.
    1 hr 50 min
  • Brot frá 2019
    þá er enn eitt árið runnið upp - og enn eitt Rokklandsárið, og það gleður mig að segja frá því að Rokkland fagnar 25 ára afmæli á árinu. En í þessum fyrst þætti á nýju ári, 2020, rifjum við upp ýmis brot úr þáttum ársins sem var að kveðja, 2019. Við heyrum í Sigur Rós sem fagnaði 20 ára afmæli Ágætis byrjunar, í Bubba sem hlustaði með okkur á Frelsi til sölu, Coldplay sem gaf út plötuna Everyday Life, Júlíu P. Andersen sem rifjaði upp ferðina sína á Woodstock fyrir hálfri öld. Jakob Frímann sat og hlustaði með okkur á plötuna sína Horft í roðann frá 1976. Vök kom í heimsókn, við rifjum það upp, og GDRN og Of Monsters And Men, Bruce Springsteen og Robert Plant og Simon Le Bon úr Duran Duran var á línunni. Pálmi og Maggi úr Mannakorn komu í heimsókn og Marianne Faithful heimsótti Rokkland með nýju plötuna sína undir hendinni og við heyrum brot af þessu öllu í dag.
    1 hr 50 min
  • Ásgeir Trausti á Græna Hattinum 2017
    Þetta er síðasti Rokklandsþáttur ársins 2019 og næst verður komið nýtt ár - 2020, sem er afmælisár hjá Rokklandi en þátturinn fagnar 25 ára afmæli sínu á árinu. Gestur og umfjöllunarefni þáttarins í dag er Ásgeir Trausti, við ætlum að hlusta á tónleika með honum í dag sem fóru fram á Græna Hattinum á Akureyri 28. júlí 2017. Tónleikarnir voru liður í tónleikaferðalaginu hans um ísland sem hann kallaði Hringsól. Hann hélt 14 tónleika á 16 dögum, fór án hljómsveitar og sá eini sem var með honum á sviðinu var gamli félagi hans Júlíus Róbertsson sem hefur spilað með Ásgeiri árum saman á flestum hans tónleikum og fylgt honum um allan heim.
    1 hr 50 min
  • Jól í Rokklandi
    Já það eru jól í Rokklandi í dag - jólaball Rokklands, bara jólamúsík og ekkert annað, sérvalin lög hvert og eitt einasta. Umsjónarmaður er búinn að týna til nokkrar vel valdar jólaplötur úr safni sínu, og safnið er stórt. Planið er að spila 2-3 lög af hverri plötu og aðeins fleiri af einni. Og hvaða plötur eru þetta? Jú þetta er t.d. platan Svart-hvít jól með Teinum, sem kom út fyrir áratug. Jólaplatan Pretty paper sem Willie Nelson gaf út fyrir 40 árum, 1979. Seinni jólaplata Elvis; Elvis sings The Wonderful World of Christmas sem kom út 1971, splunkunýtt jólasafnfrá Enyu hinni írsku, og jólaplatan hans Sting; If on a winters night sem kom út fyrir áratug.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners