Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Fiona Apple og Lucinda Williams
    Það eru tvær frábærar tónlistarkonur sem voru í aðalhlutverki í Rokklandi dagsins. Þær voru báðar að senda frá sér stórfínar plötur og önnur þeirra er meira að segja með hæstu einkun í gagnrýni sem nokkur plata hefur fengið á Metacritic síðan það vefsvæði, sem tekur saman gagnrýni allstaðar að, var sett á laggirnar. Platan e hreinlega með 100 í einkun - fullt hús! Platan sú heitir Fetch the Bolt Cutters og er með bandarísku tónlistarkonunni Fiona Apple. Við heyrum lög af henni í þættinum og skoðum plötuna aðeins. Hin tónlistarkonan er Lucinda Williams, 67 ára gömul, var að senda frá sér sín bestu plötu segja margir. Hún heitir God Souls Better Angels og við heyrum af henni i seinni hluta þáttarins. Bubbi og Funk Harmony Park, Sváfnir Sigurðarson, Nick Cave og Guðný María Arnþórsdóttir koma líka aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Cornershop ofl. nýtt og skemmtilegt
    Í Rokklandi í dag fer mesta púðrið í nýja plötu frá ensku sveitinni Cornershop - England is a Garden sem var að koma út og er ansi skemmtileg plata - 9unda plata Cornershop. En aðrir sem koma við sögu með nýja músík í þættinum eru Magnus Thor Sigmundsson, Jonas Alaska, Lindy Vopnfjörð, Neil Young, Bob Dylan, Ljótu hálfvitarnir, Coney Island Babies, Rolling Stones, Brittany Howard, Fiona Apple, Randy Newman ofl.
    1 hr 55 min
  • 19.04.2020
    Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
    1 hr 49 min
  • John Prine 1946 - 2020
    John Prine er látinn - einn merkasti lagahöfundur bandaríkjanna í áratugi segir sumir, t.d. Bob Dylan. Hann lést 7. apríl sl, varð 73 ára gamall og það var Covid 19 sem tók hann. John Prine var söngvaskáld, staðsettur á akrinum einhverstaðar mitt á milli kántrí og þjóðlagatónlistar. Sjálfur sagðist hann sjá sig einhverstaðar milli hetjanna sinna og fyrirmynda; Dylans og Johnny Cash. Lögin hans eru flest litlar sögur af venjulegu fólki, flutt á hófstilltan hátt. Prine var nýkomin heim úr tónleikaferð til Evrópu ásamt hljómsveitinni sinni og konu sinni Fionu, en hún greindi frá því 17. mars sl að hún væri með Covid 19 og svo varð John veikur líka. Hú náði sér að fullu en hann lést eftir að hafa verið næstum tvær vikur í gjörgæslu á sjúkrahúsi í heimaborginni Nashville. Hann var dáður af fjölda annara tónlistarmanna, Bob Dylan og Kris Kristofferson eru þar á meðal. Hann samdi talsvert af sínum þekktustu lögum meðan hann var póstur - póstburðamaður í Maywood Illinois þegar hann var ungur maður. John Prine skrifaði líka bækur og lék í kvikmyndum, hann var plötuútgefandi, Grammy verðlaunahafi tvisvar. Hann var í frægðarhöll lagahöfunda í Bandaríkjunum, frægðarhöll lagahöfunda í Nashville og þannig mætti lengi telja. John Prine á sinn þátt í framþróun tónlistarstefnunnar sem kölluð hefur verið Americana og er í raun einhverskonar kántrí og rokkskotin þjóðlagatónlist. John Prine er til umfjöllunar í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 55 min
  • Tina Dickow í Þjóðleikhúsinu
    Í Rokklandi í dag förum við á frábæra tónleika með dönsku tónlistarkonunni Tinu Dickow og hennar fólki sem fram fóru í Þjóðleikhúsinu, á stóra sviðinu, 5. nóvember sl. fyrir troðfullu húsi. Tina súperstjarna í heimalandinu - hún hefur komið næstum öllum plötunum sínum í fyrsta sæti danska vinsældalistans og þær eru orðnar 11. Hún sendi síðast frá sér plötu 2018. Hún heitir Fastland. Tina hefur búið á Íslandi í rúm átta ár en hefur lítið látið fyrir sér fara hér, hefur haldið fáa tónleika t.d. Í Danmörku og Þýskalandi fyllir hún stærstu tónleikahallir og tónleikar Tinu í Þjóðleikhúsinu í nóvember voru því kærkomið tækifæri á að upplifa hana í mikilli nánd. Hún er frábær listamaður, söngkona og lagasmiður, og það eru þau bæði hjónin -hún og Helgi Hrafn Jónsson. Hann var með Tinu í Þjóðleikhúsinu, og líka þau Dennis Ahlgren og Marianne Lewandowski sem bæði koma frá heimabæ hennar, Árósum. Tina og Helgi tóku tónleikana upp sjálf og mixuðu þá fyrir hlustendur Rásar 2.
    1 hr 50 min
  • Torres, Krummi, Pearl Jam, Bill Withers, Hera ofl.
    Það er allskonar í Rokklandi í dag. Við heyrum aðeins í Krumma Björgvins og nýju útgáfuna hans af laginu Vetrarsól sem pabbi hans gaf út fyrstur manna fyrir mörgum árum. Við heyrum nokkur lög af nýju Pearl Jam plötunni og heyrum hvað Magna Ásgeirssyni finnst um plötuna, en hann er mikill aðdáandi Pearl Jam og búinn að vera það lengi. Við heyrum líka svítuna sem Auður sendi frá sér í vikunni, fjögurra laga svíta sem heitir Ljós. Við kynnumst Bandarísku tónlistarkonunni Torres og heyrum nokkur lög af plötunni hennar sem heitir Silver Tongue og kom út fyrir skemmstu. Og við heyrum líka í Heru Hjartardóttur og nýja lagið hennar sem kom út í vikunni og heitir Awake for hours. Nýja lagið frá Hjaltalín líka og svo minnumst við Bill Withers sem lést síðasta mánudag - 81 árs að aldri.
    1 hr 50 min
  • Kenny Rogers er látinn. Hann lengi lifi
    Í þætti dagsins heyrum við nýja músík frá Paunkholm, Sycamore Tree, Jackson Browne og splunkunýtt lag frá meistara Bob Dylan sem hann sendi frá sér á föstudaginn, fyrsta nýja lagið í 8 ár frá Dylan. Lagið heitir Murder Most Foul og er ekkert smá lag, rosalegur bálkur og hans lengsta lag á ferlinum, tæpar 17 mínútur og fjallar um morðið á John F. Kennedy bandaríkjaforseta og lífið í Bandaríkjunum eftir morðið. En mesta púðrið fer í dag í að skauta yfir æfi og tónlistarferil kántrísöngvarans Kenny Rogers sem lést núna um daginn 81 árs að aldri. Hann var búinn að vera heilsuveill í dálítinn tíma og svo núna fyrir rúmri viku var hans tími liðinn. En tónlistin lifir og við heyrum helling af Kenny Rogers í þættinum í dag.
    1 hr 50 min
  • Bonny Light Horseman, Swamp Dogg ofl.
    Rokkland vikunnar fer víða, hingað og þangað sem vindurinn fer með það. Við heyrum í ensku sveitinni Cornershop - af fyrstu plötunni þeirra í 11 ár. Heyrum í Swamp Dogg sem er 77 ára gamall unglingur frá Ameríku sem var að senda frá sér skemmtileg plötu. Kynnumst Folk súpergrúpunni Bonny Light Horseman og heyrum allskonar nýja músík héðan og þaðan með fólki eins og Helga Björns, Sváfni Sigurðarsyni, Salóme Katrínu frá Ísafirði, Margréti og Láru Rúnarsdætrum, Bono, Daníel Hjálmtýssini, Noruh Jones, John Moreland, Arbouretum ofl. Meiri músík, minna mas.
    1 hr 50 min
  • Ragga Gísla og Mávastellið
    Ragnhildur Gísladóttir er gestur Rokklands í dag. Við ætlum hlusta saman á plötuna Mávastellið - fyrstu og einu stóru plötu Grýlanna sem er fyrsta kvennahljómsveit íslandssögunnar. Merkileg hljómsveit sem hefði vel getað náð langt út fyrir landsteinana ef hún hefði ekki hætt nokkrum mánuðum eftir að Mávastellið kom út. Þetta er platan sem hefur að geyma lög eins og Sísí og Valur og jarðarberjamaukið hans. Aðdáandinn Andrea Jónsdóttir og útgefandinn Jónatan Garðarsson koma líka í heimsókn.
    1 hr 55 min
  • Páll Óskar í 50 ár - seinni hluti
    Gestur þáttarins í dag er sá sami og fyrir viku, Poppstjarnan okkar eina sanna; Páll Óskar Hjálmtýsson, sem sagði okkur fullt af skemmtilegum sögum af sjálfum sér fyrir viku og svo á milli dró ég lagaheiti uppúr hatti og hann sagði okkur sögurnar á bakvið lögin. Og við vorum svo stutt á veg komnir í síðustu viku þegar tíminn var búinn þannig að Palla var beðinn um að koma aftur í dag og segja okkur fleiri sögur af lífi sínu og lögunum sínum. Tilefnið er hálfrar aldar afmæli Palla núna 16. mars, og afmælistónleikar sem áttu að vera núna í vikunni; 12. - 13. og 14. mars í Háskólabíó. En Palli sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hann sagði að vegna Covid 19 veirunnar ætluðu hann og Rigg viðburðir sem halda tónleikana, að fresta þeim fram á haust, fram í september eða jafnvel október. Palli sagðist ekki vilja stofna aðdáendum sínum í hættu og þess vegna væri best, í ljósi aðstæðna, að fresta bara tónleikunum.
    54 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners