Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • AC/DC, Songhoy Blues ofl.
    Það eru tvær nýjar plötur í fókus í Rokklandi í dag. Annarsvegar platan Optimisme með Songhoy Blues frá Bamako í Mali - Songhoy Blues spilar Afríku-blús og rokk og er stórskemmtilegt band sem spilaði á Airwaves 2017. Hinsvegar er það nýja platan frá AC/DC sem kom út fyrir viku og stökk beinustu leið í toppsæti vinsældalista víða um heim. Aðrir sem koma við sögu í þættinum eru t.d. War on Drugs, Brittany Howard, Belle & Sebastian, Magnús Þór Sigmundsson, My Morning Jacket, Foo Fighters, System of a Down, Bleachers og Bruce Springsteen, og Stína Ágústsdóttir.
    1 hr 55 min
  • Nick Cave - Idiot prayer
    Nick Cave er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag. Við ætlum að vera fluga á vegg á tónleikum sem hann hélt í Alexandra Palace í London í sumar fyrir tvær myndavélar og upptökutæki undir yfirskriftinni Idiot Prayer.
    1 hr 55 min
  • Bríet og Costello
    Tónlistarkonan Bríet er vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag, amk. ef eitthvað er að marka Spotify og útvarpið. Lagið hennar Rólegur kúreki er spilað á öllum útvarpsstöðvum landsins og platan hennar Kveðja, Bríet, sem kom út fyrir mánuði er öll eins og hún leggur sig á topp 15 á íslenska Spotify listanum, og er búin að vera á toppnum síðan hún kom út. Það er hlustað á alla plötuna c.a. 5000 sinnum á dag á Spotify (mín ágiskun). Bríet er gestur Rokklands í dag. Og Elvis Costello var að senda frá sér enn eina plötuna. Hún heitir Hey Clockface og er númer 31 í röðinni. Platan er eins og hálfgert ferðalag, 14 laga plata sem var tekin upp í Helsinki, New York og París. Við heyrum nokkur lög af plötunni í þættinum og svo koma líka við sögu t.d. The Staves, Julia Stone, AC/DC og Aurora.
    1 hr 55 min
  • ELVAR og Springsteen
    Í Rokklandi dagsins ætla ég að fjalla um nýju plötuna hans Bruce Springsteen sem heitir Letter to you og hann gerði með gömlu félögum sínum í E-Sreet bandinu. Svo kynnumst við tónlistarmanninum Elvar Þór Hjörleifsson sem sendi frá sér skemmtilega plötu í fyrra sem fór lítið fyrir, en nú bætum við úr því og kynnumst Elvari og hans músík. Og svo koma Sigur Rós, Gus Gus og Vök, og Karen O og Willie Nelson og Elvis Costello aðeins við sögu.
    1 hr 55 min
  • Rokkland 1200 sinnum
    Í dag er afmæli í Rokklandi sem hefur eftir þáttinn í dag farið 1200 sinnum í loftið og á um leið 25 ára afmæli núna í október. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim sem hafa hlustað gegnum tíðina og eins þeim sem hafa nennt að tala við mig í þáttunum en þeir eru fjölmargir. Ég hef eignast góða vini gegnum útvarpið og kunningja í þúsundavís. Rokkland hefur gert líf mitt betra á svo margan hátt og fyrir það er ég þakklátur. Þetta er orðið langt ferðalag en ég held ótrauður áfram þangað til annað kemur í ljós. Í þættinum í dag ætla ég að rifja upp hitt og þetta úr gömlum þáttum - fyrsta viðtalið við Sigur Rós 1997, viðtalið við Neil Young 2014, Brian Wilson 2016, Coldplay 2001, Utangarðsmenn 2000, Nick Cave 2013 og svo framvegis. Takk fyrir samfylgdina 1200 sinnum og í 25 ár.
    1 hr 55 min
  • Flaming Lips, Garcia Peoples, Travis ofl
    Eins og oft áður verður víða komið við í Rokklandi dagsins. Við heyrum nokkur lög af nýrri plötu frá Travis, plötunni 10 songs. kynnumst hljómsveitinni Garcia Peoples frá New Jersey sem heitir eftir Jerry Garcia úr Grateful Dead. Heyrum líka nokkur lög af nýrri plötu frá Flaming Lips (American Head) og Ane Brun, Songhoy Blues, Stevie Nicks, Stevie Wonder, Diana Jones og Celeste koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Fleet Foxes, Doves, Oasis ofl
    Í Rokklandi í dag skoðum við tvær tvær nýjar plötur sem voru að koma út, annarsvegar með ensku sveitinni Doves og svo bandarísku sveitinni Fleet Foxes. Sineád O?Connor kemur við sögu og Eivör Pálsdóttir sem var að gefa út plötu sem heitir Segl. Svo er það landi hennar Marius Ziska - heyrum í honum og Robert Plant og AC/DC, War on Drugs og heyrum svo aðeins í Oasis á Hróarskelduhátíðinni árið 1995 - fyrir 25 árum síðan, en núna 2. Október voru liðin 25 ár frá því önnur plata Oasis kom út; What?s the story morning glory sem er ein mest selda plata sögunnar í Bretlandi.
    1 hr 55 min
  • Peter Green 1946 - 2020, Nick Cave á Broadway 2002 ofl
    Í Rokklandi dagsins heyrum við nýja músík frá Adrianne Lenker úr Big Thief, rifjum við upp þegar Nick Cave kom og spilaði á Broadway í Reykjavík í desember 2002 - heyrum brot af tónleikunum sem Rás 2 hljóðritaði. En megnið af tímanum fer svo í að minnast gítarleikarans og tónlistarmannsins Peter Green sem stofnaði Fleetwood Mac á sínum tíma- átti með sveitinni 2-3 góð ár en tapaði síðan geðheilsunni eftir tilraunir með LSD. Hann hætti í bandinu, gaf alla peningana sína og allt sem hann átti, var greindur með geðklofa árið 1970 - en 1969 var hljómsveitin hans, Fleetwood Mac, heitasta bandið í Bretlandi og seldi meira af plötum en Bítlarnir og Rolling Stones. Peter Green lést í júlí 73 ára að aldri. Hann var séní og einn áhrifamesti gítarleikari rokksögunnar.
    1 hr 55 min
  • Cat Stevens/Yusuf Islam og Tea for the Tillerman
    Cat Stevens er maður dagsins í Rokklandi. Árið 1970, fyrir hálfri öld sendi hann frá sér plötuna Tea for the Tillerman. Hann var 22 ára gamall - þetta var fjórða platan hans og hún hefur að geyma lög eins og Wild World, Where do the children play og Father and son t.d. Hann hljómar alls ekki 22 ára á þessari plötu heldur frekar eins og lífsreyndur eldri maður. Það er hann svo sannarlega orðinn í dag. Hann er 72 ára gamall og það eru meira en 40 ár síðan hann tók Íslamstrú og tók upp nafnið Yusuf Islam. Hann hætti alfarið að syngja og spila og semja lög, seldi alla gítarana sína og gaf peningana til góðgerðarmála. En löngu síðar fannst honum að hann gæti látið það ganga saman, að vera múslimi og syngja og spila og semja lög - gefa út plötur og spila á tónleikum. Og núna þegar Tea for the Tillerman platan er orðin hálfrar aldar gömul ákvað hann að gefa hana út í sérstökum afmælis-pakka eins og oft er gert, en hann lét ekki duga að endurhljóðblanda plötuna eins og sumir gera heldur tók hann hana upp alla aftur. Hann er með sama upptökustjóra með sér og gerði plötuna með honum í gamladaga - Paul Samwell Smith sem var bassaleikari Yardbirds á sínum tíma, og gítarleikarinn Alun Davies sem var á gömlu plötunni og hans hægri hönd á sínum tíma er líka á þeirri nýju. Í Rokklandi í dag ætla ég að skoða þessa nýju útgáfu af Tea for the Tillerman og skauta yfir feril og ævi Cat Stevens/Yusuf og hann segir frá því sjálfur hvers vegna hann snérist til Islam á sínum tíma, hvers vegna hann hætti að spila og hvers vegna hann byrjaði svo aftur. Cat Stevens er klassík.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners