Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Gunni Þórðar og Í hátíðarskapi
    þegar líða fer að jólum drögum við fram jólaplöturnar. Mínar fylla marga kassa, ég á c.a. 300 jóladiska og heilan helling af vinyl líka. Og ein af mínum uppáhalds alveg síðan ég var strákur er platan Í Hátíðarskapi sem kom út 1980, sama ár og Geislavirkir með Utangarðsmönnum t.d. Og í Rokklandi í dag ætlum við að hlusta á þessa plötu saman, ég og sá sem í raun bjó hana til, Gunnar Þórðarson.
    1 hr 55 min
  • Jóla Robbie Williams og Richard Hawley
    Í Rokklandi í dag ætlum við að beina kastljósinu og eyrunum að nýrri jólaplötu frá hr. Robbie Williams. Hún heitir The Christmas Gift og er svakaleg plata - Tvöfalt albúm, 28 lög með aukalögunum. Slatti af gömlum standördum eins og Winter Wonderland og Slade-lagið “Merry Xmas Everybody“, en mestmegnis eru þetta ný, frumsamin jólalög eftir Robbie og hans meðreiðarsveina . Við heyrum nokkur lög af þessir plötu hérna á eftir en hún fór í annað sæti breska listans í síðustu viku, þegar Coldplay var á toppnum, en Er núna komin á toppinn - 13. Plata Robbie Williams sem nær því. Svo er það flauelsbarkinn Richard Hawley frá Sheffield. Við kynnumst honum og heyrum við hann viðtal, en hann sendi frá sér eina af plötum ársins að mínu mati. Hún kom út í sumar og heitir Further. Þetta og nokkur jólalög úr ýmsum áttum í Rokklandi dagsins.
    1 hr 50 min
  • Coldplay - Everyday life
    Í Rokklandi í dag er mál málanna nýja platan frá Coldplay, Everyday life sem er 8unda plata sveitairnnar og kom út fyrir rúmri viku. Everyday life er tvöfalt albúm. Fyrri platan heitir Sunrise og seinni platan Sunset og þarna kennir ýmissa grasa. Við ætlum í Rokklandinu í dag að renna yfir þessa plötu og reyna að kynnast henni aðeins. Og umsjónarmanni til aðstoðar á því ferðalagi eru t.d. Chris Martin söngvari Coldplay, Vera Illugadóttir, Dr. Arnar Eggert Thoroddsen og Arndís BJörk Ásgeirsdóttir þulur á Rás 1. Það eru ýmsir sem halda því fram að Coldplay sé stærsta hljómsveit heims í dag og þess vegna þykir það til tíðinda þegar sveitin sendir frá sér plötu. Tónlistin á Everyday life er fjölbreytt og líkast til fjölbreytari en á fyrri plötum sveitarinnar. Þarna má finna í bland við hefðbundið Coldplay poppið, Do Whop, sálma, "kvikmyndatónlist", demó og allt mögulegt. Daginn sem platan kom út hélt hljómsveitin tvenna tónleika í Amman í Jórdaníu, en þar hafði Coldplay aldrei spilað áður. þeir spiluðu fyrri plötuna, Sunrise, við sólarupprás í Amman, og seinni plötuna, Sunset, við sólsetur. Og hvort tveggja var í beinni útsendingu á Youtube, og er þar enn - mjög flott og skemmtilegt. Og daginn eftir hélt Coldplay tónleika við gamla borgarvirkið í miðborg Amman. Þar spilaði sveitin alla nýju plötuna og 9 önnur lög. En hvers vegna voru þeir að gera þetta þarna í Amman í Jórdaníu. Chris Martin svaraði þeirri spurningu í viðtali í NME fyrir nokkrum dögum, NME var með blaðamann með Coldplay í Amman. Og Chris sagði eitthvað á þessa leið: "Við ákváðum að koma hingað vegna þess að hér erum við inni á miðju svæði sem okkur vesturlandabúum er kennt í dag að sé mjög hættulegt í alla staði - við eigum að vera hrædd við stað eins og þennan og þess vegna hugsuðum við; Förum akkúrat þangað, reynum að hafa áhrif á það hvernig fólk hugsar um þennan heimshluta. Við erum vön að heyra mestu öfgarnar um þessa staði, en svo þegar maður kemur þarna sjálfur áttar maður sig fljótt á því að þarna er bara venjulegt fólk sem vill fá að njóta lífsins, lifa góðu lífi eins og við hin". Það voru bara 600 manns sem náðu í miða til að sjá Coldplay þarna í Amman. Þeir voru myndaðir líka eins og tónleikarnir tveir daginn áður. Jórdaniu-prins var á meðal áhorfenda ásamt fylgdarliði. Þetta voru ekki risatónleikarnir sem Coldplay eru vanir. Ekki stórt ljósasjó og flugeldar heldur bara 600 manns og lítið af græjum, í miðborg Amman í Jórdaníu.
    1 hr 50 min
  • Woodstock 50 ára
    Í Rokklandi á sunnudaginn verður Woodstock hátíðin, móðir tónlistarhátíðanna, rifjuð upp. Hátíðin fór fram dagana 15. -18. ágúst fyrir hálfri öld, árið 1969. Júlía P. Andersen innanhúsarkítekt, sem þá var tvítug stúlka í New York, fór með vinkonu sinni, Evu Benjamínsdóttur á hátíðina. Hún segir frá upplifun sinni í Rokklandi auk þess sem við heyrum ýmsar upptökur frá tónleikum hátíðarinnar, en á Woodstock komu t.d. fram; Jimi Hendrix, Santana, Joe Cocker, Janis Joplin, The Who, Creedence Clearwater Revival, Grateful Dead ofl.
    1 hr 55 min
  • Maus - Í þessi sekúndubrot sem ég flýt
    Þeir Birgir Örn Steinarsson og Páll Ragnar Pálsson, tveir af fjórum Mausurum segja frá plötunni Í þessi sekúndubrot sem ég flýt sem kom út fyrst 1999 en var að koma út núna á dögunum í fyrsta sinn á vinyl og endurhljóðblönduð.
    1 hr 50 min
  • Írar og íslendingar á Iceland Airwaves 2019
    Nú er það Iceland Airwaves í 21. sinn ef ég hef talið rétt. Fyrsta hátíðin var 1999 í Flugskýli fjögur á Reykjavíkurflugvelli og svo árið eftir í Laugardalshöll. Svo færðist hátíðin í miðbæinn, líkast til 2003, vegna þess að Laugardahsöllinn var ekki laus þegar hátíðin átti að vera. Síðan hefur þetta rúllað og rúllar vel. Fjórir dagar, 130 hljómsveitir eða þar um bil, meira en 200 tónleikar og c.a. 10.000 gestir, og mjög margir af þeim frá útlöndum. Borgir iðaði af Airwaves lífi um helgina og það er Airwaves í Rokkandi í dag. Í seinni hlutanum hittum við hana Angelu Dorgan sem starfar hjá First Music Contact og Irish Music Week, og útflutningsskrifstofu írskrar tónlistar. Við settumst niður saman KEX-Hostel í gærdag (laugardag), fórum yfir stöðuna á írsku músíksenunni og bárum hana saman við þá Íslensku auk þess sem hún sagði mér frá hljómsveitunum 5 frá Írlandi sem spiluðu á Airwaves í ár, en þær spiluðu t.d. allar á KEX hjá Bandarísku útvarpsstöðinni KEXP. Í fyrri hlutanum förum við á tónleika, eiginlega stórtónleika Airwaves sem fóru fram í Valshöllinni í gærkvöldi þar sem aðal númerið var Of Monsters And Men, stærsta númer hátíðarinnar í ár. Það var bein útsending á Rás 2 í gærkvöldi og heyrum í þættinum brot, tóndæmi frá öllum fimm böndunum sem spiluðu í gær; OMAM, Vök, Agent Freso, japönsku kvennasveitinni CHAI og Dað Frey.
    1 hr 50 min
  • Neil Young - Colorado og Airwaves upphitun
    Það verður Iceland Airwaves litur á þætti dagsins - en Iceland Airwaves fer fram um núna í vikunni og um næstu helgi - hátíðin byrjar á miðvikudaginn og stendur fram á laugardagskvöld. Við heyrum í nokkrum af þeim erlendu listamönnum sem mér finnast hvað áhugaverðastir og eru að spila á hátíðinni í ár - og mat mitt er eingögu þannig komið til að ég hef verið að hlusta á heilmikið af þeim erlendu hljómsveitum og listamönnum sem eru að koma- og er svo búinn að velja nokkra sem mér þykja spennandi - og henta mínum eyrum. Og þá kannski þínum í leiðinni. Þetta eru listamenn eins og CHAI, W. H. Lung, Orville Peck, Siobhan Wilson, Siv Jakobsen, Brett Newski og Glass Museum. Svo var Neil Young að gefa út sína 39. plötu. Hún heitir Colorado og hefur verið að fá fína dóma. Ég ætla að segja ykkur hvað mér finnst um Colorado á eftir og segja ykkur frá tilurð plötunnar og svo heyrum við nokkur tóndæmi af henni. María Rut Reynisdóttir sem er framkvæmdastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavík kemur í heimsókn, en Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi nýlega að níu tónleikastaðir og menningarhús sem sinna lifandi tónlistarflutningi hljóti styrk úr nýjum Úrbótasjóði tónleikastaða í Reykjavík. Þetta er svona það helsta í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 50 min
  • Tina Dickow og Helgi Hrafn
    Danska tónlistarkonan Tina Dickow og Helgi Hrafn Jónsson tónlistar-maðurinn hennar eru gestir Rokklands þessa vikuna. Tina er súperstjarna í heimalandinu Danmörku, hefur komið næstum öllum plötunum sínum í fyrsta sæti danska vinsældalistans, og þær eru orðnar 11. Hún túrar um allan heim og það er allstaðar fullt, og hún er að spila á stórum stöðum. Hún hefur um árabil stýrt sinni eigin plöuútgáfu og gefið plöturnar sínar út sjálf. Hún er sinn eigin herra. Tina sendi síðast frá sér plötu í fyrra, plötuna Fastland. Það sem er helst að frétta af henni Tinu Dickow er að hún býr á Seltjarnarnesinu með Helga Hrafni manninum sínum og börnunum þeirra þremur, og hún verður með tónleika í Þjóðleikhúsinu fallega þriðjudagskvöldið 5. nóvember og þeir verða teknir upp fyrir Rás 2. Tina Dickow er meðal þekktustu tónlistarmanna Danmerkur og nýtur mikilla vinsælda og virðingar sem lagahöfundur og söngkona. Hún hefur búið á Íslandi í tæplega átta ár, en enn sem komið er hafa ekki gefist mörg tækifæri á að sjá hana á sviði hér á landi. Í Danmörku og Þýskalandi fyllir hún stærstu tónleikahallir og tónleikar Tinu í Þjóðleikhúsinu eru því kærkomið tækifæri á að upplifa hana í mikilli nánd. Hún er listamaður með mjög breitt svið af fallegum lögum, uppfull af grípandi frásögnum og laglínum. Hún mun koma fram með kvartett sínum, ásamt Helga Hrafni. Dennis Ahlgren og Marianne Lewandowski, en Þau tvö síðastnefndur koma bæði frá heimabæ Tinu, Árósum. Þau Helgi og Tina sátu með umsjónarmanni og Einari Sigurðssyni hljóðmanni í stúdíó 12 í vikunni sem leið, spiluðu lög og sögðu frá lífinu og tilverunni.
    1 hr 55 min
  • Of Monsters and Men, lífið og tilveran og nýja platan
    Hljómsveitin Of Monsters And Men er ein allra þekkasta og stærsta hljómsveit sem Ísland hefur alið af sér. Sveitin varð til fyrir tæpum áratug, sigraði í Músíktilraunum 2010, sló fljótlega í gegn með laginu Little talks og hefur síðan verið á ferðalögum um heiminn að spila fyrir fólk. Of Monsters And Men hefur túrað heiminn þveran og endilangan nokkrum sinnum. Sveitin sendi nýlega frá sér þriðju stóru plötuna; Fever Dream, sem náði inn á topp 10 í Bandaríkjunum alveg eins og honar tvær; My head is an animal, sem kom út 2012 og Beneath the skin sem kom 2015. Sveitin er nýkomin heim úr Bandaríkjatúr og framundan er Evróputúr en í honum miðjum koma þau heim til Íslands til að spila á Iceland Airwaves laugardagskvöldið 9. Nóvember á stærstu tónleikum hátíðarinnar, í Valsheimilinu á Hlíðarenda. Strákarnir í bandinu, þeir Arnar sem trommar, bassaleikarinn Kiddi og gítarleikarinn Brynjar heimsóttu Rokkland í vikunni og það var ýmislegt rætt. Þau Nanna Bryndís og Ragnar framverðir OMAM koma líka við sögu og segja frá lögum nýju plötunnar í þættinum.
    1 hr 55 min
  • Ellen Kristjáns seinni hluti
    Tónlistarkonan Ellen Kristjánsdóttir er gestur Rokklands þessa vikuna eins og fyrir viku. Hún átti stórafmæli á árinu, varð sextug, og af því tilefni ákvað hún að efna til stórtónleika í Háskólabíó sem voru í gærkvöldi (12. október) fyrir fullu húsi. Þeir voru hljóðritaðir fyrir Rás 2 og við heyrum þá væntanlega í jóladagskránni. Hún var með frábæra hljómsveit með sér og öll fjölskyldan var með henni á sviðinu; Eiginmaðurinn Eyþór Gunnarsson, dæturnar sem allar hafa gefið út plötur, Sigga, Beta og Elin Eyþórsdætur. Sonurinn Eyþór og bróðirinn KK var líka sérstakur gestur, eins og Maggi og Pálmi (Mannakorn), og Ljósin í bænum voru endurvakin og svo framvegis. Í þættinum fyrir viku skautuðum við yfir fyrstu árin á ferlinum, frá því hún byrjaði að syngja með Mannakornum og Ljósunum í bænum 19 ára gömul árið 1979, og enduðum þar sem Borgardætur voru búnar að gefa út sína fyrstu plötu árið 1993. Í dag förum við yfir tímann frá 1993 til dagsins í dag. Í seinni hluta þáttarins heyrum við nokkur lög af nýrri plötu frá Brittanny Howards söngkonu og gítarleikara hljómsveitarinnar Alabama Shakes, en hún var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna. Hún heitir eftir Jamie, stóru systur Brittanny sem dó þegar hún var bara 13 ára gömul. Eftir að Alabama Shakes kláruðu að fylgja annari plötunni sinni eftir fyrir nokkrum árum lenti Brittanny í vandræðum. Henni leið ekki vel, hún átti gríðarlega erfitt með að búa til lög og á endanum hélt hún fund með strákunum í bandinu og sagðist ekki vita hvað myndi gerast næst hjá sér, en það væri á hreinu að hún ætlaði að gera sólóplötu. Og nú er hún komin. Við heyrum nokkur lög af henni í Rokklandi og heyrum svo í restina af 50 ár afmælisútgáfu Bítlaplötunnar Abbey Road sem situr í dag í toppsæti breska vinsældalistans.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners