Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Fontains D.C. - The Good the ba dand the Queen ofl.
    Það er víða komið við í Rokklandi vikunnar. Við kynnumst skemmtilegum ungum rokkstrákum frá Dublin sem kalla sig Fontains D.C. Við heyrum líka lög af plötunni sem Súpergrúppan hans Damns Albarn sendi frá sér í fyrra; The Good the Band and the Queen. Platan sem er stórskemmtileg heitir Merrie Land og er hugsuð sem einskonar kveðjukoss til Evrópusambandsins frá Damon og félögum. Rokkland býður líka upp á nýja músík frá OMAM, Snow Patrol, Skunk Anansie, Hjaltalín, Aldous Harding, Ed Sheeran, Sam Fender, The Head and the Heart, White Reaper, Beyoncé ofl.
    1 hr 50 min
  • Írland og írsk tónlist
    Núna undanfarna daga hafa staðið yfir írskir dagar á Akranesi, en Írskir dagar nefnist árleg bæjarhátíð Skagamanna. Og vegna þess að Rokkland gerir út frá Akranesi og vegna þess að Írar eiga svo mikið af frábærri músík ákvað ég að setja fókusinn á Íra og írska músík í Rokklandi vikunnar. Þeir sem koma við sögu eru meðal annara; Thin Lizzy, Glen Hansard, Damien Rice, Dubliners, Villagers, Van Morrison, Chieftains, Sineád O´Connor, Cranberries ofl. Rokkland var svo statt í Dublin fyrir bráðum fjórum árum til að sjá U2 á tónleikum, og gerði sér þá ferð í Rokksafnið í Dublin og ræddi þar við umsjónarmann safnsins um Íra og Írska músík - og við heyrum það í þættinum.
    1 hr 50 min
  • Eiríkur Hauksson í 60 ár
    Söngvarinn Eiríkur Hauksson fæddist í Reykjavík 4. júlí 1959 og ætlar að halda upp á 60 ára afmælið sitt með íslensku þjóðinni í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 4. júlí. Þar ætlar hann ásamt stórri og flottir hljómsveit að syngja og spila og Þar verður rokkað og rólað um allt! Segir í fréttatilkynningu frá Rigg viðburðum sem standa að tónleikunum. Ferillinn byrjaði inni í bílskur eins og gengur og gerist en Eiki vakti fyrst athygli sem hluti af hljómsveitinni Start þar sem hann söng ásamt Pétri Kristjáns og lagið Sekur af fyrstu og einu plötu Start var af íslenskum fjölmiðlum valið lag ársins 1981. Eiríkur yfirgaf Start 1983 til að spila meira þungarokk þegar hljómsveitin Drýsill varð til, en Drýsill var á þeim tíma þyngsta starfandi hljómsveitin á íslandi. En samhliða þungarokkinu söng Eiki alltaf allskyns annarskonar tónlist -miklu meira popp - söng t.d mikið af lögum eftir Gunna Þórðar um tíma -smelli eins og Gull og Gaggó vest. Hann flutti svo til Noregs fyrir rúmum 30 árum til að ganga til liðs við þarlenda þungarokkssveit sem hét og heitir Artch, en í millitíðinni fór hann í Júróvision fyrstur íslendinga ásamt Helgu Möller og Pálma Gunnarssyni. Eiríkur býr enn í Noregi og tók þátt í Eurovison fyrir Noreg ásamt Just 4 Fun 1991 og svo aftur fyrir Ísland 2007 þegar hann söng lagið Ég les í lófa þínum, Valentine Lost. Eiki söng líka í mörg ár með hljómsveit sem átrúnaðargoðið hans úr æsku, Ken Hensley úr Urian heep setti saman kringum sig og sína músík, hljómsveitina Live Fire og með þeirri sveit túraði Eiki um árabil og söng fyrir stóra hópa af fólki músík Uriah heep sem hann hefur þekkt og sungið allt sitt líf. Eiki hefur lent í hinu og þessu á þeim 60 árum sem hann hefur lifað, sigrast á krabbameini meðal annars. Og hann er gestur Rokklands þessa vikuna og við ætlum að kynnast honum aðeins betur og hlusta á eitthvað af lögunum sem hann hefur sungið gegnum tíðina.
    1 hr 56 min
  • Robert Plant og Bruce Springsteen
    Í seinni hluta þáttarins rifjum við upp sólóferil Roberts Plant söngvara Led Zeppelin vegna þess að hann er að spila í kvöld í Reykjavík, í Laugardalnum á Secret Solstice hátíðinni. En í fyrri hlutanum er það Bruce Springsteen sem var að senda frá sér enn eina plötuna. Platan sem heitir Western Stars er númer 19. í röðinni og til að gera langa sögu stutta þá er þetta fínasta plata hjá honum. Yfirbragðið er rólegt, það er ekki mikill æsingur í 69 ára gömlum Bruce, útsetningar öðruvísi en áður - strengir og brass. Robert Plant er enn að syngja og ferðast um heiminn og er enn að gera músík sem fullnægir bæði honum og aðdáendum hans tónlistarlega. Hann neitar að dvelja við forna frægð, neitar að vera alltaf að horfa í baksýnisspegilinn, heldur fram á veginn og vill gera nýtt. Nýja hluti þó svo þeir séu kannski búnir til úr gömlu. Og það er það sem hann gerir á nýjustu plötunni sinni, elleftu sólóplötunni; Carry Fire, sem kom út 2017 og hann skrifar á sig og hljómsveitina sína: The Sensasional Space Shifters. Og þar er öllu mögulegu blandað saman; rokki, enskri og bandarískri þjóðlagahefð, afríku-ryþmum og blús - svo eitthað sé nefnt.
    1 hr 50 min
  • Meiri Ágætis byrjun
    Í Rokklandi vikunnar halda þeir Goerg Hólm og Kjartans Sveinsson úr Sigur Rós áfram að segja frá plötunni Ágætis byrjun sem varð 20 ára í vikunni.
    1 hr 55 min
  • Ágætis byrjun í 20 ár
    Þeir Sigur Rósar mennirnir Georg Hólm og Kjartan Sveinsson segja frá plötunni Ágætis Byrjun sem kom Sigur Rós út um allan heim fyrir 20 árum.
    1 hr 55 min
  • Skepna, Blóðmör, sjómenn og Sting
    Í Rokklandi dagsins er fyrirferðarmest heimsókn tveggja af þremur liðsmönum rokksveitarinnar Skepnu sem var að senda frá sér blóðrauðan vinyl - plötuna Dagar heiftar og heimsku. þeir Hallur Ingólfsson og Björn Stefánsson segja frá Dögum heiftar og heimsku, Hljómsveitin Blóðmör heimsótti std. 12 á föstudaginn og við heyrum það hérna á eftir, en Blóðmör er rokktríóið sem sigraði í Músíktilraunum í vor. Blóðmör spilar fyrir okkur 3 frumsamin lög og svo eitt eftir Fræbbblana. Sting er gamall og góður tónlistarnmaður, elskaður og dáður um allan heim, orðinn 67 ára gamall. Hann var að senda frá sér plötu sem heitir My Songs, og þar flytur hann lögin sín, fullt af lögum sem við þekkjum öll, í nýjum útgáfum. Hann er semsagt búinn að taka upp aftur, fullt af gömlum lögum sem hann hefur gefið út undir eigin nafni og eins gömul Police lög. Við heyrum nokkur í þættinum í dag. En við tökum líka ofan fyrir hetjum hafsins þar sem sjómannadagurinn er nú einu sinni í dag. Heyrum nokkur gömul sjómannalög í flutningi fólks eins og Sting, Bryan Ferry, Shane McGowan, MIchael Stipe og Courtney Love.
    1 hr 50 min
  • Súrsæt sinfónía úr ýmsum hráefnum og áttum
    Peter Gabriel, Bubbi, Góss, Norah Jones, Joyous Wolf, Verve ofl koma við sögu í Rokklandi vikunnar. Við heyrum nokkur af nýjustu lögum Bubba í þættinum, en hann frumflutti splunkunýtt lag, nýjan dúett af væntanlegri plötu hjá Gísla Marteini á föstudagskvöldið síðasta. Lagið sem hann syngur ásamt Katrínu Halldóru heitir Án þín. Við heyrum það og nokkur önnur nýleg Bubba-lög. Við heyrum líka aðeins í tríóinu Góss sem þau Sigga Thorlacius, Siggi Guðmunds og Guðmundur Óskar mynda. Þau voru í Stykkishólskirkju í gær að spila og eru í kvöld á Hvanneyri og það er plata væntanleg frá þeim núna innan skamms. Svo er það Bandaríska rokksveitin Joyous Wolf, við klynnumst henni, heyrum svo nokkur lög af nýju plötunni frá Noruh Jones auk þess sem lag vikunnar verður tekið til umfjöllunar, en lag vikunnar að þessu sinni er Bitter Sweet Symphony með Verve sem kom út 1997, en þeir Jagger og Richards úr Rolling Stones hafa hingað til fengið allar höfundagreiðslur fyrir lagið. Þeir fengu líka Grammy verðlaun fyrir það á sínum tíma en nú eru Jager og Richards búnir að afsala sér öllum rétti yfir til söngvara Verve , Richard Ashcroft sem sannarlega samdi lagið á sínum tíma og hann er glaður. Bjössi Thor og Mugison koma líka aðeins við sögu, en fyrirferðarmestur er Peter Gabriel og kvikmyndatónlistarplatan hans; Rated PG sem kom út á alþjóðlega plötubúðadaginn í apríl.
    1 hr 50 min
  • Simon Le Bon á línunni
    Rokkland vikunnar er helgað Duran Duran en sveitin heldur tónleika í Laugardalshöll 25. júní nk. Rokkland náð sambandi við Simon Le Bon söngvara Duran Duran í síma í vikunni þar sem hann var nýkominn úr Ikea í London með fjölskyldunni sinni. Hann ræddi eitt og annað eins og; Langlífi hljómsveita, um lög eins og View to a kill og Save a prayer, um Live Aid 1985, hvers vegna Andy Taylor gítarleikari hætti í hljómsveitinni tvisvar - hvernig það kom til að þeir komu saman gulldrengirnir 5 (gullaldarlið Duran Duran) árið 2001. Það var líka talað um hliðar-hljómsveitirnar Power Station og Arcadia, um Ikea, um áhrifavalda og ídól, um Duran Duran vs. Wham og Iron Maiden. Um áhrif vinsælda á unga menn og um það hvernig Simon gekk til liðs við hljómsveitina árið 1981 og um gildi vináttu og virðingar. Allt þetta og fleira og saga Duran Duran í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 50 min
  • Í fylgd með fullorðnum í 30 ár
    Platan í fylgd með fullorðnum er þriðja breiðskífa Bjartmars Guðlaugssonar. Hún var í öðru sæti yfir mest seldu plötur ársins 1987 og lög af henni eins og Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki og Járnkallinn hljómuðu í útvarpinu næstum stanslaust.
    Síðan eru liðin 30 ár og Bjartmar kom í Rokkland á sunnudgainn til að segja frá plötunni og lögunum sem hana prýða.
    Í upphafi þáttar er líka skautað yfir líf Bjartmars og tónlistarferil til ársins 1987 þegar hann gerði þessa plötu. Hann segir frá uppvextinum á Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum og ræðir um músíkina, trommarann Bjartmar og svo framvegis.
    Titillag plötunnar; Í fylgd með fullorðnum, fjallar um unga drenginn Bjartmar sem hlustaði á útvarpið í eldhúsinu heima hjá sér fullur skelfingar og átti allt eins von á að dagar sínir og allra annara væru brátt taldir. Bjartmar segir m.a. í þættinum: “þegar ég var drengur var ég alveg óskaplega hræddur við stríð. Ég var hræddur við Kóreustríðið en sérstaklega var ég hræddur við Kúbudeiluna þegar ég var 11 ára. Og ég var svo skelfingu lostinn þegar ég var 11 ára gamalt barn að ég vildi frekar þola ávítur fyrir það að koma ekki heim í hádegismat eða kvöldmat, og vera heldur niðri á bryggju, en þurfa að hlusta á raddir Ríkisútvarpsins skýra frá þessari deilu. Ég var orðinn ótrúlega hræddur við röddina í útvarpinu sem var að segja mér að kannski yrði engin veröld til á morgun. Ég tók inná mig ýmsar fréttir og ótti minn við stríð hefur alla stríð verið og er enn mjög mikill. Og ég fór að hugsa þarna þegar ég gerði þessa plötu; aumingja börnin í dag sem þurfa að hlusta á allar þessar fréttir í stereo, og eru þau ekki jafn hrædd við þetta og ég var“.
    2 hr 5 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners