Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Keith Flint 1969-2019 og Vök
    Keith Flint andlit og vörumerki The Prodigy er látinn. Hann tók sitt eigið líf. Það hefur verið sagt frá því í öllum helstu fjölmiðlum heims undanfarna daga að Keith Flint söngvari, dansari og andlit hljómsveitarinnar Prodigy er látinn. Hann fannst látinn á heimili sínu í Dunmow í Essex sem er lítið sveitaþorp ekki langt frá Stansdet flugvelli, mánudagsmorguninn síðasta og það er fullyrt að hann hafi framið sjálfsmorð. Hann var 49 ára gamall. Eftirlifandi félagar hans úr Prodigy sendu frá sér yfirlýsingu á Twitter sem sagði eitthvað á þessa leið: Fréttirnar eru sannar, við trúum því varla að við séum að segja þetta um bróður okkar Keith, en hann tók sitt eigið líf um helgina. Liam Howlett heilinn á bakvið Prodigy sagði líka: Ég er í losti, ég er reiður, ruglaður og með brostið hjarta. Hvíldu í friði - þinn bróðir Liam. Keith Flint fæddist í Redbridge í Austur London en flutti með foreldrum sínum til Braintree í Essex þegar hann var unglingur. Hann var greindur með mikla lesblindu þegar hann var strákur. Honum og pabba hans samdi illa, foreldrarnir skildu og kennurunum fannst þeir ráða svo illa við hann að hann var sendur til sálfræðings sem var ekki nærri eins algengt í þá daga og í dag. Hann lét öllum illum látum og oft lokaði hann sig inni í herberginu sínu, hlustaði á pönkrokk og barði hausnum í vegg. Sálfræðingarnir sem hann fór til sögðu skólanum og foreldrum hans að þeir gætu ekkert gert fyrir hann. Hann var rekinn úr skóla 15 ára og var að vinna með þakviðgerðamaður þegar hann byrjaði að dansa með Prodigy. Sjálfur sagði hann seinna í viðtali við The Times að hann hafi alla tíð þurft að díla við andleg vandamál, hann hafi t.d. alltaf verið með mikla sjálfseyðingarhvöt. Sagan segir að hann hafi loksins fundið hamingjuna með konunni sinni, japanska plötusnúðnum Mayumi Kai. Prodigy var á tónleikaferð og skyndilega stóð hún þarna þessi unga fallega japanska kona, og Keith missti málið- það var ást við fyrstu sýn. Þau kynntust á þeim tíma þegar hann var á leiðinni í meðferð og eftir að þau giftust árið 2006 sagði hann alfarið skilið við dóp, áfengi og tóbak, og þau hjónin komu sér fyrir í 15. aldar húsinu sem hann hafði keypt í ensku sveitinni - í Essex áratug fyrr. Þau voru barnlaus en áttu 8 hunda. Hann átti og rak litla sveitakrá, The Leather Bottle, nálægt heimili þeirra Þangað til fyrir tveimur árum. Hann keypti hana árið 2014 þegar hún var á leiðinni á hausinn og rak hana til 2017. Og þegar Keith var ekki að vinna eitthvað þá var hann að hreyfa sig, skokka, hjóla, eða ganga um í sveitinni. Hann sagð
    1 hr 50 min
  • PS & Bjóla á Plasteyju
    Í Rokkandi vikunnar eru þeir Pjetur Stefánsson og Sigurður Bjóla í aðalhlutverkum, en þeir sendu nýlega frá sér plötuna; Plasteyjan. Plasteyjan er önnur plata félaganna saman, en þeir Sigurður og Pjetur gerðu síðast plötu sama 1988. Plasteyjan er 15 laga og fjögur laganna heita Svítur. Titillagið er tæpar 11 mínútur og það er spilað í fullri lengd í þættinum. Þeir Pjetur og Sigurður segja frá tilurð plötunnar í þættinum. Led Zeppelin árið 1969, Leif Eriksson, Mumford & Sons og Buffalo Springfield koma við sögu og svo er Mark Hollis, forsprakka hljómsveitarinnar Talk Talk minnst í þættinum.
    1 hr 50 min
  • Um konur, til kvenna og Óskarslögin
    Í Rokklandi vikunnar er, í tilefni konudags, boðið upp á lög sem karlar hafa samið um konur og til kvenna. Það er auvitað af nógu að taka vegna þess að stór hluti tónlistarsögunnar eru lög sem karlar hafa samið til kvenna eða um konur. VIð sögu koma Bítlar, Eric Clapton, Elvis Costello, The Cure, Bubbi, Megas, Neil Young ofl. Við heyrum líka lögin 5 sem voru tilnefnd i ár til Óskarsverðlauna í flokknum "besta lag frumsamið fyrir kvikmynd", og eitt og annað splunkunýtt og nýlegt.
    1 hr 50 min
  • Kacey Musgraves og Júníus Meyvant
    Kacey Musgraves sem nældi sér í fern Grammy verðlaun á Grammy hátíðinni fyrir viku er til umfjöllunar í Rokklandi vikunnar og Júníus Meyvant kemur í heimsókn. Kacey Musgraves er fædd og alin upp í bænum Golden í Texas. Pabbi hennar rekur lítið prentfyrirtæki og mamma hennar er myndlistarmaður. Kacey er fyrirburi, fæddist 6 vikum fyrir tímann og var bara 5 merkur þegar hún kom í heiminn, en hefur heldur betur spjarað sig þrátt fyrir það. Hún var ekki nema 8 ára þegar hún byrjaði að setja saman lög og til að byrja með samdi hún á Mandolín sem var hennar fyrsta hljóðfæri, en 12 ára byrjaði hún að læra á og spila á gítar. 18 ára stieg hún fyrstu skrefin inn í kántríheiminn og byrjaði að taka upp demó til að koma sér á framfæri. Og á sama tíma keyrði mamma hennar henni milli bæjarhátíða í Texas þar sem hún fék að troða upp. Og þessi hæfileikaríka kántrístelpa, Kacey Musgraves, nældi sér í fern Grammy verðlaun á hátíðinni um síðustu helgi og þar á meðal voru ein aðal verðlaunin; Plata ársins. Við kynnumst Kacey Musgraves í Rokklandi í dag. Í seinni hlutanum kemur Júníus Meyvant frá Vestmannaeyjum í heimsókn og við tölum um lífið og tilveruna og nýju plötuna hans, Across the Borders, sem er alveg stórfín. Júníus sem heitir Unnar Gísli talar um lífið í eyjum, rifjar upp minningar frá því hann var lítill strákur í skóla í Vestmannaeyjum og segir frá lögunum sínum.
    1 hr 55 min
  • Jakob Frímann - Horft í roðann (1976)
    Gestur Rokklands að þessu sinni er Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður með meiru. Við ætlum að hlusta saman á plötuna Horft í roðann sem hann gerði 23 ára gamall árið 1976, en Horft i roðann er mikil uppáhalds plata margra og merkileg að mörgu leyti. Þegar Horft í roðann var tekin upp voru fyrstu tvær plötur Stuðmanna komnar út, Sumar á Sýrlandi og Tívolí. Jakob var búinn að vera í talsverðan tíma í Bretlandi og spila með hljómsveit Long John Baldry. Hann gerði samning við Steinar Berg um að hefja plötuútgáfu, en splunkuný útgáfa Steinars (Steinar) gaf út plötur Stuðmanna, Spilverks Þjóðana og sólóplötu Jakobs - Horft í roðann. Platan var tekin upp í Los Angeles, London og í þá nýopnuðum Hljóðrita í Hafnarfirði. Platan fékk góðar viðtölur þegar hún kom út, fékk talsverða spilun í útvarpinu sem þá var eingöngu Rás 1 (Útvarpið). Platan seldist ágætlega og fólk um alt land söng með lögum eins og Sól í dag og Röndótta mær. Horft í roðann er konseptplata og fjallar í raun um líf eftir dauðann. Og á plötunni eru til skiptis lög sem hefðu sómt sér vel á plötum Stuðmanna, og svo Jazz-fusion rokk. Ansi sérstök og kannski sérkennilega blanda sem þó sýnir tvær mest áberandi hliðar Jakobs. Jakob segir frá plötunni og lögunum í Rokklandi vikunnar.
    1 hr 50 min
  • Reykjavíkurdætur - Beatles og aðrir bítlar
    Í þættinum í dag heyrum við viðtöl við nokkra íslenska tónlistarmenn og hljómsveitir sem spiluðu á Eurosonic Festival í Hollandi núna um miðjan janúar. Það voru 7 íslensk númer sem komu fram á Eurosonic og við heyrum í fjórum þeirra. Rokkland hitti og spjallaði á hátíðinni við Reykjavíkurdætur, harðhausana í Une Misére og þær Bríeti og Hildi. En það er ekki bara Eurosonic í þessum þætti vegna þess að Bítlarnir og Peter Jackson, Robert Plant og Secret Solstice, James Bay og gítararnir hans David Gilmour koma líka við sögu.
    1 hr 50 min
  • Marianne Faithfull og lög um lífið og söknuð
    Marianne Faithfull sem er 72 ára gömul fær mesta plássið í Rokklandi vikunnar. Hún sendi frá sér plötu í nóvember, fína plötu sem ýmsum finnst ein af bestu plötum ársins. Platan sem heitir Negatice Capability er yfirmáta einlæg og mannleg og dálítið sorgleg. Það flýtur í gegnum plötuna að Marianne hefur verið að missa talsvert af góðum vinum yfir til dauðans á undanförnum árum. Við heyrum viðtal við Marianne sem kollegi minn og vinur hjá EBU tók við Marianne í París þegar platan kom út og lög af plötunni. Við heyrum líka frá tónleikum Marianne á Broadway í Reykjavík árið 2004, Rás 2 tók tónleikana hennar þá upp. Hún er ekki sérlega góð til heilsunnar, hún fór illa með sig um langt skeið og eflasust tekur það sinn toll þegar fólk er komið á hennar aldur. Hún gengur við staf og er hásari en nokkru sinin fyrr, en það kemur þó ekki í veg fyrir að hún syngi eins og engill, hás og raddhrjúfur engill. Það eru ýmsir góðir gestir á þessari nýju plötu hennar eins og Ed Harcourt, Nick Cave og Mark Lenagan og upptökustjórar plötunar eru galdra-fiðluleikarinn úr Bad Seeds bandi Nick Cave, Warren Ellis, og Rob Ellis sem er best þekktur fyrir störf sín með Pj Harvey. Negative Capability er tuttugasta og fyrsta plata Marianne Faithful og fyrsta platan hennar í fjögur ár. Þetta er einlæg plata full af trega, eftirsjá og dauða en Marianne er komin á þann aldur að vinir hennar hafa verið að falla frá einn af öðrum og hún syngur um einmanaleika á plötunni og missi. Lögin eru flest ný eftir hana í samstarfi við gestina, Nick Cave, Mark Lanegan og Ed Harcourt, en svo eru þarna líka tvö lög sem hún heimsækir í annað og eitt í þriðja sinn. It´s all over now eftir Bob Dylan er þarna en hún gaf það áður út 1985. Witches song sem er á plötunni Broken English sem kom út 1979 er þarna líka og As tears go by, gamla Stóns lagið eftir Jagger og Richard sem startaði ferli Marianne þegar hún var 17 ára gömul árið 1964. Hún tók það upp aftur þegar hún var fertug 1987 á plötuna Strange Weather og enn og aftur núna. Og svo er eitt gamalt Pretty things lag líka sem heitir Loneliest person, kom út með Pretty Things 1968 á plötunni S.F. Sorrow. Við heyrum líka í þættinum nýja músík frá td. Hozier, Vampire Weekend, Dido, Florence and the Machine, Bryan Adams og Ryan Adams.
    1 hr 50 min
  • Bubbi segir sögur af landi
    Bubbi hlustar á plötuna Sögur af landi frá 1990 með umsjónarmanni Rokklands og segir frá lögunum og plötunni í Rokklandi vikunnar.
    En núna á miðvikudaginn, 18. Apríl - síðasta vetrardag mun Bubbi ásamt hljómsveit, flytja í heild sinni í Eldborg í Hörpu tvær af sínum þekktustu plötum; Konu sem kom út 1985 og Sögur af landi sem kom út 1990.
    Sögur af Landi er ein af mest seldu plötum Bubba og þar eru lög eins og Syneta, Blóðbönd, Fjólublátt flauel og fleiri smellir.
    Platan var að mestu hljóðrituð og hljóðblönduð í Grjótnámunni 30. júlí - 16. ágúst 1990. Hægri hönd Bubba við gerð plötunnar var sænski upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Christian Falk, en með voru líka Ken Thomas og Hilmar Örn Hilmarsson.
    Bubbi segir sjálfur að Sögur af landi sé þjóðlagaplata (folkmúsík) og hljóðheimurinn ferðast víða.
    1 hr 55 min
  • Verðlaunamúsík og meira
    Music Moves Europe Talent Award og Golden Globe Við ætlum að hlusta á mikið af músík í þessum þætti sem hefur sjaldan eða aldrei heyrst áður í þessum þætti eða á Rás 2 Við ætlum að kynnast listafólkinu unga sem hlýtur í ár ný evrópsk tónlistarverðlaun; Music Moves Europe Talent Award, eða MMETA, en verðlaunaafhendingin fer fram miðvikudagskvöldið 16. janúar við hátíðlega athöfn í borginni Groningen í Hollandi á Eurosonic Festival. Reykjavikurdætur eru á meðal vinningshafa. Við ætlum líka að heyra lögin 5 sem voru tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna í ár í flokknum lag ársins frumsamið fyrir kvikmynd, en Golden Globe verðlaunin voru afhent fyrir viku.
    1 hr 50 min
  • Nýtt vín á misgömlum belgjum
    Í Rokklandi í dag ætlum við að heyra í nokkrum þeirra listamanna og hljómsveita sem þykja hafa gert bestu plöturnar á árinu sem var að líða. Það eru birtir listar yfir bestu plötur ársins í allskyns miðlum um allan heim núna um áramót í þætti dagsins skoðum við aðeins lista blaðana Mojo og Uncut og heyrum lög af ýmsum plötum héðan og þaðan af þessum listum með listamönnum eins og Elvis Costello - Rolling Blackouts Coastal Fever - Kurt Vile - Cat Power - Paul Weller - Fatoumata Diawara - Ry Cooder - Ty Segall - Elenaor Friedberger - Low - Kamashi Washington ofl. En svo fer líka talsvert púður í nýja plötu frá Van Morrison sem kom út í desember, og ensku pönk-rokksveitina Idles sem vakti talsverða athygli á árinu.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners