Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Hryllingur og Airwaves gott
    Í þættinum í dag verður boðið upp á hryllingsmúsík í tilefni Hrekkjavöku sem er á miðvikudaginn, en íslendingar virðast spenntari fyrir Halloween með hverju árinu sem líður. Hrekkjavaka er hátíðisdagur ættaður úr keltneskri trú þar sem hét upphaflega Samhain. Drúídar færðu þá þakkir fyrir uppskeruna og boðuðu komu vetursins. Hrekkjavaka er haldin ár hvert 31. október, kvöldið fyrir Allraheilagramessu. Mörk heima hinna lifandi og hinna dauðu voru óljós þennan dag og draugar og aðrar óvættir voru taldar sveima um og voru því bálkestir kveiktir til að vernda hina lifandi. Drúídarnir dulbjuggu sig til að þekkjast ekki og buðu óvættunum mat og drykk til að friðþægja þær. Hrekkjavöku fylgdu ýmsar hefðir, leifar sumra þeirra lifa í hrekkjavöku nútímans þar sem fólk klæðist grímubúningum og sjá má drauga og aðrar óvættir í skreytingum. Börn ganga oft á milli húsa og biðja um nammi, og fái þau það ekki kasta þau oft eggjum í hús þeirra sem ekki gefa þeim. Í tilefni af Halloween ætla ég að spila soldið af Halloween og hryllings-tengdri músík, lög sem fjalla á einhvern hátt um skrýmsli, ófreskjur, morðingja og kölska sjálfan. Og í seinni hlutanum kemur Sindri Ástmarsson dagskrárstjóri Iceland Airwaves í heimsóknn með fim lög með fimm erlendum listamönnum sem hann segir að gestir hátíðarinnar ættu ekki að láta framhjá sér fara.
    1 hr 50 min
  • Ég syng fyrir þig...
    Björgvin Halldórsson er gestur Rokklands í dag. Alda music sendi nýverið frá sér á hvítum vinyl, plötuna Ég syng fyrir þig sem kom upphaflega út árið 1978, fyrir 40 árum síðan. Björgvin ætlar að hlusta á plötuna frá upphafi til enda með umsjónarmanni Rokklands og hlustendum í dag. Björgvin er safnari og man margt og segir okkur sögurnar á bakvið lög eins og; Ég er að tala um þig, Ég fann þig, Þó líði ár og öld, Fiðrildi og Eina ósk.
    1 hr 55 min
  • Sálin Hans Jóns Míns
    Sálin Hans Jóns Míns, ein allra lífseigasta og vinsælasta hljómsveit Íslenskrar tónlistarsögu kveður aðdáendur sína um næstu helgi með þrennum tónleikum í Eldborg í Hörpu. Það verða tvennir tónleikar á laudagradkvöld, klukkan 20 og 22.30. og aukatónleikar föstudaginn 19. október klukkan 19. Í þessum þætti rifjum við upp viðtal við forystusauði Sálarinnar, þá Gumma og Stebba frá því fyrir áratug þegar sveitin fagnaði 20 ára afmæli sínu með útgáfu mikils Sálar-safns sem Sena gaf þá út undir yfirskriftinni; Hvar er Daumurinn. Það voru í það heila þrjár glæsilegar afurðir sem báru allar þetta nafn; Hvar er Draumurinn. Stærstu viðhafnarútgáfunni og þreföldu hljóðdiskaútgáfunni fylgdi 92 blaðsíðna bók, fagurlega skreytt myndum og fróðleik um sögu sveitarinnar frá upphafi til þess tíma, skrifað af Stefáni Hilmarssyni. Sálin er merkileg hljómsveit, og bara það eitt að hafa verið starfandi í 30 ár er stórmerkilegt. Og þessi hljómsveit hefur afrekað svo margt, hún er búin af mikilli eljusemi og metnaði að senda frá sér helling af plötum auk þess að úti um allt fyrir fullu húsi áratugum saman. Og plötur Sálarinnar eru alls ekki ekki allar heðfbundnar smella-plötur, Sálin gerði plötu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hélt tónleika og gerði plötu með Gospelkór Reykjavíkur og samdi söngleik sem sýndur var í Borgarleikhúsinu fyrir fullu húsi mánuðum saman, svo eitthvað sé nefnt.En nú er komið að kveðjustund og af því tilefni tökum við ofan fyrir Sálinni og rifjum upp viðtal sem umsjónarmaður átti við þá Gumma og Stebba hérna í Rokklandi fyrir áratug í sitthvoru lagi. Þeir félagar segja frá áhrifvöldum sínum, frá samstarfinu sem stundum hefur verið gott en stundum ekki og margt fleira.
    52 min
  • Ísland - Finnland og Gospel
    Við byrjum í dag á nýrri íslenskri tónlist, heyrum svo nýja finnska tónlist og í seinni hlutanum er það svo Gospel-tónlist. Rokkland var á Reeperbahn Festival í Hamborg í þýskalandi fyrir hálfum mánuði og þar spjallaði umsjónarmaður við náunga sem heitir Niko Cangas og starfar við það að breiða út finnska músík-fagnaðareridnið. Hann vinnur hjá útflutningsskrifstofu finnskrar tónlistar og einbeitir sér að poppi og rokki. Hann valdi fyrir okkur fimm hljómsveitir og listamenn sem eru að gera það gott um þessar mundir og við heyrum í þessu fólki í þættinum. Svo er það hann Óskar Einarsson Gospel-kóngur Íslands. Hann er gestur Rokklands í seinni hlutanum og talar um gospel fyrr og nú og velur nokkur lög og listamenn til að spila. Óskar stjórnar tónleikum sem fara fram í Lindakirkju í kvöld þar sem taka á ofan fyrir þremur drottningum; Arethu Franklin sem var drottning sálartónlistarinnar, Mahaliu Jackson drottningu Gospel tónlistarinnar og Sister Rosettu Tharpe sem var eiginlega guðmóðir rokksins. Óskar fræðir hlustendur um Gospel og velur nokkur lög með þeim bestu. Vök, Teitur Magnússon, Guðrún Gunnarsdóttir, Stafrænn Hákon og Ylja koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Bowie, Wolf Alice og Kristileg tónlist
    Sunnudaginn 7. og mánudaginn 8. október verða tónleikar í Eldborg í Hörpu undir yfirskriftinni Celebrating David Bowie. Þetta eru tónleikar Bowie til heiðurs og hans tónlist. Þeir sem verða á sviðinu eru mestmegnis erlendir tónlistarmenn sem hafa spilað með fólki eins Beck, Chick Corea, Tom Waits, Herbie Hancock, Air, Jeff Beck, Brian Eno, Michael Jackson, Elvis Costello, Miles Davis, Nine Iinch Nails, Bob Dylan, Stevie Wonder, Lana Del Rey, Dr. Dre, Burt Bacharach, David Byrne, Red Hot Chili Peppers og The Who svo einhverjir séu nefndir. Sá sem leiðir tónlistarfólkið sem ætlar að spila lög Bowie´s er bandaríski gítarleikarinn Adrian Belew sem sló í gegn þegar hann spilaði með Frank Zappa 1977, og í kjölfarið spilaði hann svo með Bowie. Seinna túraði hann svo með Talking Heads, var lykilmaður þar í nokkur ár, og var svo í rúm 30 ár söngvari og gítarleikari King Crimson. Ótrúlegur gítarleikari sem kom með sérstakan og persónulegan stíl inn í gítar-heiminn á sínum tíma. Adrian Belew verður á línunni í Rokklandi. Wolf Alice sem er fjögurra manna rokkhljómsveit frá London, og Wolf Alice hlaut um síðustu helgi bresku Mercury tónlistarverðlaunin sem veitt eru árlega síðan 1992 bestu plötu ársins. 1992 var það Primal Scream sem hlaut verðlaunin fyrir Screamadelice og Suede með Suede 1993. Portishead fékk verðlaunin 95 og Pulp fyrir Different Class 1996. Sagt verður frá Wolf Alice í Rokklandi. Paul McCartney var í fókus í síðasta Rokklandi og nýja platan hans, Egypt station. Hún var á toppnum á Bandaríska vinsældalistanum í síðustu viku,fór beint á toppinn með 153.000 eintök seld í vikunni, og Eminem var i öðru sæti með 136.000 með plötuna Kamikaze. En þar fyrir neðan í þriðja sæti var í síðustu viku söngkona sem heitir Lauren Daigle með kristilega plötu sem heitir Look up child. Hún var fyrir ofan Drake, Ariana Grande, Post Malone, Nicki Minaj og fleiri með 115.00 eintök seld í vikunni. Þessi plata Lauren Daigle er ekki bara mest selda kristilega platan árið 2018 heldur mest selda plata söngkonu í kristlegu deildinni í meira en 20 ár. Það verður fjallað um hana í þættinum. Chris Cornell, Macy Gray, Florence & the Machine ofl koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Paul McCartney og Egypt Station
    Rokkland vikunnar er að mestu helgað Paul McCartney og nýju plötunni hans sem heitir Egypt Station. Umsjónarmaður segir frá bakgrunni plötunnar en Paul segir sjálfur heilmikið frá í þættinum og við heyrum stóran hluta laga plötunnar. En við heyrum líka nýja músík frá Mumford & Sons, Fræbbblunum, Mark Knopfler og Bob Dylan og svo heyrrm við líka í dúettinum Hugar sem umsjónarmaður sá spila á Reeperbahn Festival í Þ'yskalandi sl. föstudagskvöld. Hugar er flott hljómsveir sem landaði nýlega fjögurra platna samningi við Sony í Ameríku. Paul McCartney orðinn 76 ára gamall og enn að gera músík sem fólki fellur í geð , og meira að segja svo mjög að nýja platan sem er átjánda stúdíó-sólóplatan hans fór beinustu leið í toppsæti Bandaríska vinsældalistans þegar hún kom út og þar situr hún í dag fyrir ofan Eminem og Drake, Cardi B og Ariane Grande. Paul er á toppnum í fyrsta sinn í 36 ár eða síðan platan hans Tug of War kom út 1982. Þekktasta lag þeirrar plötu er Ebony & Ivory sem hann gerði með Stevie Wonder. En Paul er alls ekki ókunnugur toppi vinsældalistans vegna þess að gamla bandið hans frá Liverpool, The Beatles, þekktasta hljómsveit sögunnar, á ennþá metið yfir flestar plötur í fyrsta sæti eða 19. stykki. Þá eru allar plötur taldar með, stúdíóplötur, safnplötur og svo framvegis. Bítlarnir vor síðast á toppnum á Billboard um jól og áramót 2000-2001, í tvo mánuði með safnplötuna 1 (One) Egypt Station er áttunda platan hans Paul sem nær toppnum í Ameríku en þar telja þeir með plötur Wings sem voru amk. skráðar á Paul McCartney & Wings. En Egypt station er fyrsta platan hans sem fer beint á toppinn í útgáfuviku. Unglingurinn 76 ára gamli er búinn að vera alveg svakalega duglegur undanfarið í að kynna nýju plötuna. Það eru næstum 35 milljónir manna búnar að horfa á hann og James Corden í bílakarókíinu í Liverpool, en það fór eins og eldur í sinu um netheima fyrir nokkrum vikum, alveg ferlega skemmtilegt. Rokkland hvetur fólk til að horfa á en það er stytt útgáfa af þætti sem CBS sýndi á dögunum. Þátturinn er klukkutími en það sem fór á Youtube er 23 mínútur. McCartney heimsótti Howard Stern í útvarpsþáttinn hans sinn á SiriusXM 5. september, var í Podcasti Marc Maron (WTF) 6. sept sem er mjög skemmtilegt, það má finna það t.d. á Itunes. Og svo var hann í allskonar sprelli hjá Jimmy Fallon um daginn líka og 60 minutes heimsóttu hann. Mikið að gera hjá honum og eflaust hefur það haft mikið um sölu nýju plötunnar að segja en það skemmir ekki að Paul er hress og kátur og skemmtilegur. Fólki finnst gaman að hlusta á ha
    1 hr 50 min
  • Himnasending frá Ný Dönsk
    Þeir Björn Jörundur og Daníel ágúst eru gestir Rokklands og ætla að hlusta á plötuna Himnasendingu með umsjónarmanni. Himnasending er fimmta plata sveitarinnar en áður höfðu komið út: · Ekki er á allt kosið (1989) · Regnbogaland (1990) · Kirsuber (1991) · Deluxe (1991) Hljómsveitin sló í gegn strax með fyrstu plötunni en vegur hennar óx jafnt og þétt með hverri plötu. Þegar komið var að gerð Himnasendingar var ákveðið að fara til Englands og taka hana upp þar og reyna þar fyrir sér í leiðinni, þetta voru ungir menn með stóra drauma. Þeir Björn og Daníel voru rétt rúmlega tvítugir þegar þetta var og búnir að gefa út fjórar stórar plötur og spila um allt land síðan þeir voru 16-17 ára gamlir. Um næstu helgi ætlar Nýdönsk að flytja Himnasendingu, og plötuna sem kom út á eftir henni, Hunang (1993), í heild sinni á tónleikum í Eldborg í Hörpu.
    1 hr 50 min
  • Lykilorðið er já!
    Segir Midge Ure sem er gestur Rokklands í dag.
    Midge sem var söngvari og gítarleikari Ultravox ætlar að syngja og spila með hljómsveitinni Todmobile Eldborg í nóvember.
    Todmobile hefur nokkrum sinnum á undanförnum árum fengið erlenda gesti til að spila með sér þegar mikið hefur staðið til og yfirleitt hafa þetta verið enskar Proggrokk hetjur, en Todmobile er í raun progg-rokk hljómsveit ef grannt er skoðað. Jon Anderson útr Yes er búinn að koma, Steve Hacket gítarleikari Genesis og síðast Nik Kershaw.
    Nú er Todmobile að undirbúa 30 ára afmælistónleika í haust sem verða með þessu formi; Best of Todmobile og Best of Midge Ure.
    Midge Ure er merkilegur og skemmtilegur náungi. Hann er fæddur og alinn upp í Glasgow, flutti ungur til London tilað stofna hljómsveit með Glen Matlock bassaleikara Sex Pistols eftir að hann var rekinn úr þeirri sveir. Hann var m tíma gítarleikari Thin Lizzy, stofnaði Visage of kom inn í hljómsveitina Ultravfox þegar hún var að niðurlotum kominn og gerði hana að einni vinsælustu hljómsveit Evrópu.
    Midge Ure samdi líka ásamt Beob Geldof Band-Aid jólalagið Do they know it´s christmas sem var samið og gefið út til hjálpar hungruðum í Afríku, og Midge Ure og Bob Geldof eru líka mennirnir á bakvið stórtónleikana Live Aid sem voru haldnir samhliða í Englandi og Bandaríkjunum 13. júlí 1985 og þar komu allir fram sem voru eitthvað nafn. Heimsliðið í músík.
    Rokkland hringdi í Midge Ure í vikunni og hann segir sína sögu í þættinum og eitt af því sem kemur fram er að hann lifir samkvæmt heimsspekinni að segja já! Ef hann er beðinn um að gera eitthvað eða fær boð um að gera eitthvað segir hann yfirleitt já - frekar en nei og þetta segir hann að sé lykill að velgengni og ævintýrum í lífinu.
    1 hr 55 min
  • Lykilorðið er já!
    Segir Midge Ure sem er gestur Rokklands í dag. Midge sem var söngvari og gítarleikari Ultravox ætlar að syngja og spila með hljómsveitinni Todmobile Eldborg í nóvember. Todmobile hefur nokkrum sinnum á undanförnum árum fengið erlenda gesti til að spila með sér þegar mikið hefur staðið til og yfirleitt hafa þetta verið enskar Proggrokk hetjur, en Todmobile er í raun progg-rokk hljómsveit ef grannt er skoðað. Jon Anderson útr Yes er búinn að koma, Steve Hacket gítarleikari Genesis og síðast Nik Kershaw. Nú er Todmobile að undirbúa 30 ára afmælistónleika í haust sem verða með þessu formi; Best of Todmobile og Best of Midge Ure. Midge Ure er merkilegur og skemmtilegur náungi. Hann er fæddur og alinn upp í Glasgow, flutti ungur til London tilað stofna hljómsveit með Glen Matlock bassaleikara Sex Pistols eftir að hann var rekinn úr þeirri sveir. Hann var m tíma gítarleikari Thin Lizzy, stofnaði Visage of kom inn í hljómsveitina Ultravfox þegar hún var að niðurlotum kominn og gerði hana að einni vinsælustu hljómsveit Evrópu. Midge Ure samdi líka ásamt Beob Geldof Band-Aid jólalagið Do they know it´s christmas sem var samið og gefið út til hjálpar hungruðum í Afríku, og Midge Ure og Bob Geldof eru líka mennirnir á bakvið stórtónleikana Live Aid sem voru haldnir samhliða í Englandi og Bandaríkjunum 13. júlí 1985 og þar komu allir fram sem voru eitthvað nafn. Heimsliðið í músík. Rokkland hringdi í Midge Ure í vikunni og hann segir sína sögu í þættinum og eitt af því sem kemur fram er að hann lifir samkvæmt heimsspekinni að segja já! Ef hann er beðinn um að gera eitthvað eða fær boð um að gera eitthvað segir hann yfirleitt já - frekar en nei og þetta segir hann að sé lykill að velgengni og ævintýrum í lífinu.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners