Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Rokkland - brot af því besta 2018
    það er löngu orðið hefð að nota áramót til að rifja upp eitt og annað sem var til umfjöllunar á árinu sem er að enda og í síðasta Rokklandi ársins rifjum við upp árið 2018. Paul McCartney kemur við sögu en hann fluag nokkuð hátt á árinu. Það gerði Magnús Þór líka. Midge Ure úr Ultravox heimsótti Íslandi í fyrsta sinn eins og Mick Jones úr Foreigner. BJörk fór í tónleikaferð, Sykurmolarnir fögnuðu 30 ára afmæli Life´s too good í Rokklandi. Stuðmenn voru heiðraðir á Íslensku tónlistarverðlaununum. Rás 2 tók þátt í alþjóðlega Clash deginum. Dolores O´Riordan úr Cranberries kvaddi okkur eins og Tómas M. Tómasson og Aretha Franklin. Bubbi sagði frá Sögum af landi í Rokklandi og Sam Beam úr Iron & Wine kom í heimsókn. Allir þessir listamenn og fleiri koma við sögu í þættinum.
    1 hr 50 min
  • Jól í Rokklandi 2018
    short_text=None long_text='Frá árinu 1997 eða í meira en 20 ár hefur Rokkland verið í jólafötunum fyrir jólin eða um jólin.\n\nÍ Jóla-Rokklandi hefur umsjónarmaður reynt að hræra saman jóla kotkeil sem inniheldur jóla-músík sem er eitthvað af eftirtöldu; Góð, skemmtileg, áhugaverð, skrýtin, frábær eða jafnvel svakalega vond.\n\nLeitin að jólalögum kveikti sérstakan áhuga hjá umsjónarmanni á jóla-tónlist svo hann hefði nú eitthvað skrýtið og skemmtilegt að bjóða upp í hinu árlega Jóla-Rokklandi, og það varð til þess að Sena gaf út Jólalaga safnið Jól í Rokklandi árið 2008 og svo framhaldið, Rokk og Jól, nokkrum árum seinna. Þar er margt skemmtilegt að finna.\n\nÞeir sem syngja fyrir okkur í jólaRokklandi í dag eru Bítlarnir, Yoko Ono, Mark Lanegan, Mark Kozalek, Chrissie Hynde, Tracy Thorn, Nick Lowe, Margrét Eir, Ragnheiður Gröndal, The Shins, Loretta Lynn, Johnny Cash, James Taylor, Carole KIng ofl.' language='is' valid_from=None
    1 hr 50 min
  • Jól í Rokklandi 2018
    Frá árinu 1997 eða í meira en 20 ár hefur Rokkland verið í jólafötunum fyrir jólin eða um jólin. Í Jóla-Rokklandi hefur umsjónarmaður reynt að hræra saman jóla kotkeil sem inniheldur jóla-músík sem er eitthvað af eftirtöldu; Góð, skemmtileg, áhugaverð, skrýtin, frábær eða jafnvel svakalega vond. Leitin að jólalögum kveikti sérstakan áhuga hjá umsjónarmanni á jóla-tónlist svo hann hefði nú eitthvað skrýtið og skemmtilegt að bjóða upp í hinu árlega Jóla-Rokklandi, og það varð til þess að Sena gaf út Jólalaga safnið Jól í Rokklandi árið 2008 og svo framhaldið, Rokk og Jól, nokkrum árum seinna. Þar er margt skemmtilegt að finna. Þeir sem syngja fyrir okkur í jólaRokklandi í dag eru Bítlarnir, Yoko Ono, Mark Lanegan, Mark Kozalek, Chrissie Hynde, Tracy Thorn, Nick Lowe, Margrét Eir, Ragnheiður Gröndal, The Shins, Loretta Lynn, Johnny Cash, James Taylor, Carole KIng ofl.
    1 hr 50 min
  • Með eld í hjarta í 40 ár
    Í Rokklandi dagsins ætlum við að hlusta saman á eina gamla góða íslenska jólaplötu sem margir halda mikið uppá. Við erum að tala um jólaplötu Brunaliðsins sem kom út um þetta leyti fyrir hvorki meira né minna en 40 árum síðan. Og við ætlum að hlusta á hana með tveimur liðsmönnum Brunaliðsins á þeim tíma, þeim Magnúsi Kjartanssyni og RagnhildirGísladóttur. Platan heitir með Eld í hjarta og er Brunaliðsplata númer tvö. Sú fyrsta heitir; Úr öskunni í eldinn og kom út sama ár, um vorið 1978 og sló heldur betur í gegn, sérstaklega lagið Ég er á leiðinni. En Ragga og Maggi ætla að hlusta á Með eld í hjarta með umsjónarmanni, rifja upp stemninguna og segja sgur frá liðinni öld.
    1 hr 50 min
  • Greta Van Fleet - Costello - Dúkkulísur ofl
    Í Rokklandi vikunnar heyrum við músík af nokkrum nýlegum plötum sem þykja standa uppúr því sem komið hefur út á árinu. Við heyrum í Elvis Costello en hann sendi frá sér þrítugustu stúdíóplötuna á árinu. Heyrum aðeins í Kamashi Washington sem er ultra svalur jazz-saxófónleikari. Hann sendi frá sér plötuna Heaven and earth á árinu og hún er plata ársins segir tónlistartímaritið Mojo. Rolling Blackouts Coastal Fever ástralskt rokkband sem sendi frá sér eina af bestu plötum ársins, við heyrum af henni. Og svo er það bandið sem er að gera allt vitlaust en platan þeirra hefur ekki fengið góða dóma; Bandaríska rokkbandið Greta Van Fleet. Við heyrum í þeirri sveit og af plötunni þeirra sem heitir Anthem of the Peaceful Army. Við heyrum svo í Dúkkulísunum Erlu og Grétu en Dúkkulísurnar voru að senda frá sér zex laga jólaplötu með þremur frumsömdum lögum og svo lögum eftir Raveonettes, Pretenders og Tom Petty.
    1 hr 50 min
  • Jónas og Milda hjartað
    Jónas Sigurðsson hefur verið einn vinsælasti og mest áberandi tónlistarmaður landsins undanfarinn áratug. Hann hefur átt fjölmara smelli hérna hjá okkur í útvarpinu og nýjasta platan hans; Milda Hjartað, er fjórða breiðskífan sem hann sendi frá sér. Fyrsta platan; Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, kom út 2007, Allt er eitthvað 2010, og Þar sem himin ber við haf 2012. Allt eru þetta stórfínar plötur, og sú nýja er þar ekki undanskilin. Eins og alltaf er Jónas með topp mannskap með sér á plötunni; Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Ómar Guðjónsson á gítar og Tómas Jónsson á píanó. Stjórn upptöku og upptaka var í höndum Ómars Guðjónssonar, Bassa Ólafssonar og Jónasar, en hljóðblöndun gerðu þeir Árni Bergmann Jóhannsson í Klitmøller í Danmörku og Guðmundur Kristinn Jónsson. Fyrsta lagið af plötunni sem Jónas sleppti út í heiminn heitir Dansiði, og það fór á dögunum í toppsæti vinsældalista Rásar 2. Jónas er gestur Rokklands að þessu sinni og segir frá plötunni og pælingunum á bakvið hana. Mark Knopfler fyrrum leiðtogi Dire Straits var líka að senda frá sér plötu. Hún heitir Down the road Wherever og er níunda sólóplatan hans. Mark á sjálfur útgáfufyrirtækið sem gefur út. Það heitir Grove og Universal/Virgin EMI dreyfir. Platan kom út á CD, deluxe CD, 2LP og í lúxus pakkningu, en þar er bæði vinill og deluxe CD, og líka fjögurra laga vinyl EP með aukalögum og fleira dót. Sumir láta sér Spotify duga en aðrir vilaj allan pakkann, allt sem hægt er að fá. Við heyrum lög af plötunni hans Mark í þættinum og líka lög af nýrri jólaplötu frá Eric Clapton.
    1 hr 50 min
  • Bruce Dickinson
    Bruce Dickinson söngvari Iron Maiden verður með kvöldstund í Eldborg í Hörpu sunnudagskvöldið 16. desember nk. Þar ætlar Bruce að tala fyrst og fremst, segja frá lífi sínu, uppvexti og svo framvegis en hann er skemmtilegur maður og mikill sögumaður og hefur frá mörgu að segja enda hefur líf hans bæði inn og utan sviðs hefur verið með miklum ólíkindum. Hann er ekki bara söngvari Iron Maiden heldur er hann líka flugstjóri, hefur meðal annars flogið talsvert til og frá Íslandi með farþega. Hann bruggar bjór, hefur leikið í kvikmyndum og sjónvarpi og stjórnað útvarpsþáttum auk þess sem hann er fyrrverandi skylmingakappi á heimsmælikvarða. Bruce ætlar að segja sögur í Hörpu, fer yfir fyrstu árin í bransanum og svo meira en 30 ár með Iron Maiden, talar um sólóferillinn, um flug og það sem á daga hans hefur dregið. Eftir hlé tekur Bruce svo á móti spurningum úr sal. Hann er í raun að fylgja eftir útgáfu á bók, æfisögu sinni sem heitir; What Does This Button Do og kom út fyrir skemmstu. Bókina skrifaði hann meðan á Book of Souls heimstúrnum stóð, 2016-17 þar sem sveitin spilaði fyrir troðna íþróttaleikvanga af fólki. Hann handskrifaði bókina, og hann var líka flugstjórinn í túrnum meira og minna, flaug Boeing 747 þotunni sem Iron Maiden leigði hjá flugfélaginu Atlanta fyrir túrinn og fékk nafnið Ed Force One. Bókinni hefur verið vel tekið og hún komst á topp bókalista NYC Times og Sunday Times og var tilnefnd sem Bók ársins í Bretlandi. Rætt er við Bruce í síma í þættinum og skautað yfir fyrstu ár tónlistarferilsins.
    1 hr 55 min
  • Magnús Þór - seinni hluti
    Magnús Þór Sigmundsson varð sjötugur fyrir skemmstu og Rokkland vikunnar er tileinkað honum, eins og þátturinn fyrir tveimur vikum. Magnús hélt upp á afmælið með tvennum afmælistónleikum í Háskólabíó núna í vikunni sem leið, á fimmtudag og föstudag. Þar var mikið fjör og allskonar góðir gestir eins og Jóhann Helgason, Þórunn Antonía dóttir hans, Ragnheiður Gröndal, Fjallabræður, Jónas Sigurðsson, Stefán Hilmarsson, Páll Óskar og hljómsveitin Árstíðir t.d. En Magnús var líka að senda frá sér plötu með nýjum lögum ásamt árstíðum og flutti á tónleikunum nokkur lög af þeirri plötu ásamt árstíðum. Þátturinn fyrir hálfum mánuði var tileinkaður Magnúsi. Þar sagði hann frá fyrri hluta ævinnar og ferilsins og þessi er líka tileinkaður Magnúsi, þetta er seinni hlutinn, framhaldið. Við vorum komin að árinu 1993 þegar við kvöddum Magga síðast og byrjum þar sem við enduðum þá. Magnús segir í þættinum frá því hvernig það vildi til að hann flutti af Laugaveginum og í Hveragerði á sínum tíma. Frá samstarfinu við Ragheiði Gröndal sem syngur lagið hans Ást, frá samstarfinu við Fjallabræður sem hefur t.d. fætt af sér tvö Þjóðhátíðarlög. Hann talar um ADHD og þunglyndi og margt fleira.
    1 hr 55 min
  • Iceland Airwaves í 20. skipti
    Iceland Airwaves fór fram um helgina í tuttugasta skipti. Rokkland veit ekki annað en allt hafi gengið eins og það átti að ganga. Það var skipt um áhöfn í brúnni á Airwaves togaranum eftir síðustu hátið, en síðasta hátíð skilaði eigendum tugmilljóna tapi. Hvort nýrri áhöfn (sem er Sena Live) hefur tekist að snúa þessum mínus í plús er ekki vitað á þessari stundu en það er búið að gera eitt og annað til að breyta um kúrs og ný stefna var tekin í ár. Nýja stefnan er kannski meira í þá átt sem farið var fyrstu árin þegar hátíðin var aðeins minni um sig og eingöngu spilað á litlum og stórum tónleikastöðum í miðborginni. Það var spilað í Listasafninu, Iðnó, á Gauknum og Húrra, í Gamla bíó og svo framvegis. Það var enginn salur í Hörpu notaður í ár en svið sett upp í því sem kallað er "Flói". Rokkland sá haft eftir einum af forsprökkum hátíðarinnar um helgina að gestir Airwaves í ár væru c.a. 8.000 með öllum og meirihlutinn útlendingar sem er dálítið merkilegt en ekkert sem ástæða er til að kvarta undan. Rokkland var á Airwaves og Rás 2 var mikið á Airwaves og sendi t.d. út mikið tónleikaprógramm á miðvikudagskvöldið frá Gamla bíó þar sem komu fram Hildur Vala, Moses Hightower, Kiriyama Family, Valdimar og fleiri. Poppland var í beinni úr Petersen svítunni í Gamla bíó á fimmtudag og föstudag og svo er Rokkland í dag tileinkað hátíðinni. Meðal þeirra sem koma við sögu í dag eru Addi í Sólstöfum, Axel Flóvent, Andrea Jónsdóttir, Mark frá London sem er búinn að koma 15 sinnum á Airwaves, Valdimar, Lárus í 12 tónum, sjálfboðaliðinn Graham frá London, Eivör Pálsdóttir, Arnar og Hrafn í hljómsveitinni Warmland, Bagdad Brothers, Árni Matthíasson frá mbl.is, Stafrænn Hákon, Hórmónar, Grísalappalísa, Snorri Helgason ofl.
    53 min
  • Magnús Þór - ástin og lífið
    Magnús Þór Sigmundsson er gestur Rokklands að þessu sinni. Magnús varð sjötugur fyrir skemmstu og hann heldur upp á það með ýmsum hætti, t.d. með tvennum afmælistónleikum í Háskólabíó fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. nóvember. Þar verða með honum ýmsir góðir gestir eins og Jóhann Helgason, Þórunn Antonía dóttir hans, Fjallabræður, Jónas Sigurðsson, Stefán Hilmarsson, Páll Óskar og hljómsveitin Árstíðir t.d. En Magnús var líka að senda frá sér plötu með nýjum lögum ásamt árstíðum, plötuna Garðurinn minn. Magnús segir í þættinum frá ýmsu sem hann hefur ekki sagt frá áður, er hreinskilinn og opinskár.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners